28.6.2010 | 19:36
Hús dagsins: Brekkugata 5
Húsin sem ég hef birt hér á síðunni eru í misjöfnu standi. Í flestum tilfellum er þó um að ræða hús sem hafa verið gerð upp af miklum myndarbrag síðustu 10-15 ár en voru kannski áður orðin mjög hrörleg. En hér er hús sem er í miðri endurbyggingu. Er þetta Brekkugata 5, en húsið er byggt 1908 og stendur í Miðbæ Akureyrar rétt norðvestan Ráðhústorgs. Brekkugata 5 er einlyft timburhús á háum kjallara með portbyggðu risi og miðjukvisti . Líklega hefur kjallarinn alltaf verið verslunarrými en nú er þarna ferðaskrifstofa . Held að efri hæðir séu innréttaðar að mesti sem skrifstofur í dag. Þar hafa þó væntanlega verið íbúðir upprunalega, væntanlega ein fyrst en gæti svo hafa fjölgað með árunum. Lengst af var húsið bárujárnsklætt en nú er verið að setja á það panelklæðningu. Húsið á örugglega eftir að verða til mikillar prýði og verður spennandi að sjá hvernig endurbæturnar takast til. Það sem komið er sýnist mér bara lofa góðu. Þessi mynd er tekin fyrir rúmri viku, 19.júní 2010.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2010 | 21:40
"Hús dagsins" 1 árs!
25.júní í fyrra birti ég í fyrsta skipti hér á síðunni mynd af húsi ásamt fróðleikskorni um það undir fyrirsögninni Hús dagsins. Var það Norðurgata 17,Gamla Prentsmiðjan, byggð 1880 sem varð fyrir valinu. Nú eru þessir pistlar orðnir um 80 ( hef ekki nákvæma tölu, en myndirnar í albúminu Hús og byggingar eru 87 ). Enn á ég þó nokkrar húsamyndir sem ég á eftir að deila hér á síðunni svo Hús dagsins ganga eitthvað áfram. Hús dagsins eiga það yfirleitt sameiginlegt að vera gömul, sögufræg eða bara skrautleg hús á Akureyri sem ég hef myndað og kynnt mér eitthvað. Oft eru þetta hús sem "allir" kannast við. En mér finnst einnig gaman að birta myndir sem sýna kannski eitthvað allt annað (hús t.d. eða ýmislegt annað í umhverfinu) en þeir sem heimsækja Akureyri eða Eyjafjörð sjá. Einskonar "falin leyndarmál" eða þess háttar. En hér er afrit af fyrsta "Hús dagsins" pistlinum:
25.6.2009 | 10:28
Hús dagsins: Norðurgata 17
Ég hef í nokkrar vikur birt myndir sem ég á af húsum á Akureyri og stutta umfjöllun um þau á Facebook. Hérna mun halda áfram með það. Eru þetta yfirleitt gömul hús á Oddeyri eða Innbænum en ég á orðið ágætis myndasafn af þeim. Heimildir um byggingarár og sögu húsanna eru fengnar úr öllum mögulegum bókum um byggingarsögu Akureyrar auk þess sem ég hef sótt a.m.k. eina sögugöngu Minjasafnsins um þessi eldri hverfi á hverju sumri síðan 1997.
Hús dagsins er Norðurgata 17, einnig kallað Steinhúsið eða Gamla Prentsmiðjan. Húsið er það eina á Akureyri sem hlaðið er úr blágrýti svipað og Alþingishúsið og Hegningarhúsið. Byggingarár mun vera 1880 og er þetta hús í 3.-4.sæti yfir elstu hús á Oddeyri. Í þessu húsi var lengst af starfandi prentsmiðja en ýmis önnur starfsemi hefur einnig verið stunduð í húsinu á 130 árum.
Ég minntist á að þetta væri 3.-4. elsta hús Oddeyrar. Sjálfsagt mál er að telja upp þau hús á Oddeyri sem teljast eldri en Steinhúsið. Norðurgata 11 er jafn gamalt (1880), Lundargata 2 (1879), Strandagata 27 (1876) og elst er Strandgata 49, Gránufélagshúsið, (1874).
Þá langar mig til að þakka innlitin hingað inn og athugasemdir, ágætt að vita að einhverjir hafi áhuga á þessu grúski mínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2010 | 20:30
Ársafmæli
"Þá er ég af öllum mönnum farinn að blogga. Ég hef nú hingað til verið mjög virkur að skoða blogg og eyði alltaf drjúgum tíma dags í slíkt og hef þá mest gaman af dægurþrasi og alls konar yfirdrulli. Því verður ekki til að dreifa hér. Ástæða: Það er einfaldlega nóg af svoleiðis bloggum. Þetta verður meira til gagns og gamans. Luma á ýmsum fróðleik og ljósmyndum sem ætlunin er að deila hérna. Njótið vel."
Þetta ritaði undirritaður þann 22.júní í fyrra undir fyrirsögninni Formáli á þessa síðu. Þannig að í dag á þessi síða eins árs afmæli. Eins og kemur fram þarna þá ætlaði ég þessa síðu fyrst og fremst undir myndir sem ég hef tekið. Ég hafði prófað myndasíður á Flickr o.þ.h. en það sem mér fannst alltaf vanta á slíkum síðum var að geta sett einhvern almennilegan texta og fróðleik með myndunum. Finnst það einhvern vegin nauðsynlegt, jafnvel þótt mynd segi vissulega meira en 1000 orð ! Frá fyrsta degi ætlaði ég síðuna undir húsamyndir og fróðleik um þau enda hafði ég þá þegar birt slíkt í nokkrar vikur á Facebook (byrjaði þar einmitt 8.maí eða 5 vikum fyrr), en þótti um að gera að deila þeim með fleirum en (á þeim tíma) 20 Facebook vinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2010 | 19:30
Sumarsólstöður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2010 | 23:12
Ganga og matur
Eins og einhverjir sem heimsækja þessa síðu reglulega hafa tekið eftir þá þvælist ég stöku sinnum uppum fjöll og firnindi. Þá geng ég uppundir 4-8km daglega um götur Akureyrar. Eitt það almikilvægasta í lengri gönguferðum og fjallabrölti er nestið. Matur er mannsins megin og eldsneyti göngumannsins, líkt og bensín/dísel fyrir bílinn. Um nesti í lengri gönguferðum gildir í raun einföld meginregla: Maturinn skal vera sem orkuríkastur en sem fyrirferðarminnstur og léttastur. Samlokur með feitu áleggi og feitu smjöri eru þar góður kostur og heitt kakó í brúsa er náttúrulega klassískt. Sumir kjósa heldur kaffi- en kakóið er orkumeira. Að auki er suðusúkkulaði nauðsynlegur orkugjafi en ekki er sniðugt að keyra eingöngu á því. Ég hef vanið mig á göngunesti sem samanstendur af flatbrauði með hangikjöti, skinku eða rúllupylsu. Flatbrauð þykir mér mikið hentugra en "venjulegt" brauð, sem vill oft klessast og verða leiðinlegt í meðförum. Kakó er alveg skilyrðislaust með að vetrarlagi, á sumrin lætur maður stundum fernudrykki á borð Svala, Trópí eða Kókómjólk duga. Harðfiskur er helvíti góður einnig og skyr hef ég einhvern tíma haft meðferðis á Súlumýrar. Oft er því þannig farið að matarlyst og smekkur er svolítið öðruvísi en vanalega í gönguferðum. Þannig er það allavega hjá mér- get að sjálfsögðu ekki fullyrt að að það sé algilt. En þegar maður hefur erfiðað upp nokkur hundruð metra lóðrétta hækkun og orkuleysi farið að segja til sín þá hámar maður ýmislegt í sig sem maður liti ekki við á láglendi. Þá er bitinn einhvern vegin miklu, miklu bragðbetri og drykkurinn sjaldan eins svalandi. Og talandi um svalandi þá er ekkert betra en ferskt íslenskt fjallavatn. Þess má hins vegar geta að í gönguferðum er ekki sniðugt að drekka mikið af ÍSKÖLDUM drykkjum. Best er raunar að drykkurinn sé sem næst líkamshita- það fer svo geysileg orka í að hita upp vatnið.
Hver kannast ekki við að hafa verið í erfiðri göngu og verið orðinn svangur/svöng og uppí hugann koma miklar steikur eða saðsamir skyndibitar. Flatbrauðsneiðin virkar þá kannski ekkert svo ofboðslega freistandi. Í einni göngu uppá Súlur fyrir fáeinum árum gerði ég einskonar tilraun. Hafði með tilbúnar langlokur úr sjoppu, löðrandi í sinnepsósu og gumsi og gosflöskur. Í 800m gerði ég veglegt nestisstopp, orðinn nokkuð svangur og þreyttur. Hugsaði mér gott til glóðarinnar og settist niður með langloku með skinku, ananas og sinnepsósu og ½ líters Mix í flösku. Ég náði varla einum bita og sopa áður en ég hreinlega kúgaðist. Þótt ekki vantaði hungrið þá náði ég varla að pína ofaní mig hálfri langlokunni og ég hélt aðeins niðri nokkrum sopum af gosinu. Mín niðurstaða af þessu var sú að fjallgöngur og skyndibitar fara ekki vel saman. En auðvitað er svona lagað persónubundið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2010 | 22:10
Sumarnótt á Akureyri
Myndirnar hér eru teknar á vappi um Miðbæ Akureyrar og nærliggjandi svæði þegar klukkan er langt gengin í 2 að nóttu þ. 17.júní. Skammdegisþunglyndi er landlægt hér og er það skiljanlegt að það fari illa í marga þegar sólin rétt hengslast upp um ellefuleytið og dvelur í örfáa klukkutíma eins og raunin er um jólaleytið. En bjartar sumarnætur eru sannarlega frábært mótvægi við svart skammdegið og um þessar mundir er dagurinn lengstur og birtan mest; Sumarsólstöður renna upp eftir rúmar tvær klukkustundir þegar þetta ritað. Hér eru nokkrar svipmyndir af aðfararnótt Þjóðhátíðardagsins 2010.
Horft upp Oddeyrargötu, sem liggur í skáa uppfrá Miðbænum á Brekkubrún. Áður fyrr, þegar Oddeyringar áttu kýr voru þær leiddar á beit uppá Brekku (þetta var áður en hún byggðist að ráði) og voru þær leiddar upp og niður Oddeyrargötu sem kölluð var Kúagata þess vegna. Fremsta húsið er nr. 4 og er það reist 1916. Annars byggðist gatan á bilinu 1920-35.
Kaldbakur 1167m séður frá Hamarkotsklöppum. Frá Akureyri séð virðist hann loka firðinum í norðurendan. Leirdalsheiði liggur fyrir miðju milli Kaldbaks og Blámannshattar 1214m sem er hægra megin á myndinni.
Þessar myndarlegu aspir standa ofan Akureyrarvallar, austan undir Brekkugötu. Vaðlaheiðin gægist á milli.
Við Sjallann, sem er einn elsti og annálaðasti skemmtistaður landsins og eftir því sem ég best veit sá stærsti utan Höfuðborgarsvæðisins. Hann stendur á horni Geislagötu og Gránufélagsgötu. Hér er hópur fólks á horninu við innganginn að "djamma og djúsa" og gleðin við völd. Einhverjir úti að reykja og enn aðrir hafa sjálfsagt ekki náð 18 ára aldri og sitja því úti með sárt ennið.
Bloggar | Breytt 23.6.2010 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.6.2010 | 21:36
Hús dagsins: Gamla Gróðrarstöðin v. Eyjafjarðarbraut

Bloggar | Breytt 19.6.2010 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2010 | 15:12
Hús dagsins: Spítalavegur 1
Spítalavegur er nokkuð skemmtileg gata sem tengir Innbæinn við Neðri-Brekku. Hann beygir niður frá Eyrarlandsvegi við SA horn Lystigarðsins og og sker brekkubrúnina ofan Hafnarstrætis og steypist í hlykkjum niður í kjaft Lækjargils. Horn götunnar og Lækjargötu er annálað leiðindahorn m.t.t. umferðar.
En húsið á myndinni stendur neðst við Spítalaveginn og er þar nr.1. Húsið reisti Guðmundur Vigfússon skósmiður árið 1903 en stækkaði það til suðurs fjórum árum seinna. Hann rak skósmíðaverkstæði sitt í húsinu og bjó þar, og seinna meir var annar iðnaðar- og verslunarrekstur í húsinu. Húsið er tvílyft* timburhús á háum steyptum kjallara með lágu risi. Það stendur raunar dálítið neðan við Spítalaveg þar sem hann liggur og snýr raunar að Aðalstrætinu en myndin er tekin úr þeirri götu. Ástæðan fyrir því mun vera sú að núverandi Spítalavegur er raunar annar en hinn upprunalegi, þ.e. neðri parturinn. Neðan við húsið má sjá hvar stígur sker brekkuna. Er þetta göngustígur sem liggur gegn um skógarþykkni efst í Hafnarstrætisbrekkunni og kemur upp ofarlega á Spítalaveg. Sá stígur skilst mér að sé hinn upprunalegi Spítalavegur(eða Spítalastígur ) Neðri hluti núverandi Spítalavegs er þá hluti annarrar götu sem hét Ráðhússtígur. Spítalavegur 1 hefur síðustu áratugi verið íbúðarhús, hvort að séu 3 eða 4 íbúðir í því. Fyrir svosem áratug var það í heldur lélegu ásigkomulagi að utan en síðustu ár hefur það verið tekið alveg í gegn, bæði húsið sjálft og nærumhverfi þess og er mikill sómi að. Þessi mynd er tekin 29.maí sl.
* Allur gangur er á því hvernig farið er með orðin einlyft, tvílyft, þrílyft o.s.frv. Stundum sér maður að talað sé um þrílyft hús ef hæðir eru alls þrjár kannski kjallari, hæð og ris. Það myndi hinsvegar annars staðar kallast einlyft með kjallara og risi. Svo hefur maður séð ýmist annaðhvort ris eða kjallara tekin með í "lyft" hugtakinu. Ég hef vanist því að nota "lyft" yfir allar hæðir húsa utan kjallara og ris. Þannig að tvær hæðir og ris er þá tvílyft með risi, og kjallari+hæð+ris myndi ég kalla einlyft á kjallara með risi. Sjálfsagt má deila um þetta en í flestum fræðibókum sem ég hef lesið um sögu húsa hefur orðnotkunin miðast við þetta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2010 | 19:44
Allt tekur enda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2010 | 18:55
Hús dagsins: Aðalstræti 52
Aðalstræti 52 er í hópi allra elstu húsa Akureyrar byggt 1840 og líklega eru það aðeins Gamli Spítalinn (175)* og Laxdalshús (215) eru eldri. Ekki er vitað með vissu hver byggði þetta hús en 1853 bjó kjarnakonan Vilhelmína Lever í húsinu og rak þar einnig veitingasölu. Hugsanlega byggði hún húsið. Vilhelmína Lever einn af helstu stórlöxum Akureyrar um miðja 19. öld og kannski þekktust fyrir að hafa kosið í bæjarstjórnarkosningum (1863) fyrst kvenna, löngu áður en konur fengu slíkum. Fyrir rúmri viku komst Vilhelmína einmitt í sjónvarpsfréttir , en fyrir skömmu fann Hörður Geirsson á Minjasafninu myndir af henni, en þeirra hafði verið leitað svo árum skipti og jafnvel talið óvíst hvort þær væru til. Vilhelmína seldi húsið 1859 Sveini Skúlasyni, prentara og mun hann hafa stækkað húsið undir prentverkið. Þremur árum seinna keypti Jón Chr. Stephansson, timburmeistari, ljósmyndari og bæjarfulltrúi og bjó hann þar til í hálfa öld, til dánardags 1910. Jón byggði m.a. Gamla Apótekið (151). Eftir daga Jóns hefur húsið líklega skipt oft um eigendur og leigjendur og nokkuð öruggt þykir mér að á tímabili hafi margar fjölskyldur búið þarna samtímis. En líkast til hefur húsinu alla tíð verið vel við haldið; það var í hópi fyrstu húsa á Akureyri sem voru friðuð. Var það um 1980 og var friðunin tvenns konar, A og B flokkur. Þetta hús féll undir síðarnefnda flokkinn og hefur því verið breytt talsvert að innan. Enda má telja það eðlilegt, þar sem geta má nærri að kröfur íbúa til húsnæðis hafi gjörbreyst frá miðri 19. öld til ofanverðrar 20. Húsið er nú stórglæsilegt að sjá og mikil bæjarprýði og hefur verið fært sem næst upprunalegu útliti. Byggt hefur verið við það með þeim hætti sem talinn er til fyrirmyndar þegar í hlut eiga gömul og friðuð hús. Þannig hefur nýtískuleg viðbygging verið reist á bakvið, ekki áberandi frá götu og greinileg afmörkun milli eldra og yngra húss. Ljóst er að þessi framkvæmd er geysi vel heppnuð. Þessi aðferð hefur líka verið farin á Aðalstræti 44 ( sem er einmitt jafngamalt þessu húsi, 170). Þessa mynd tók ég 29.maí sl.
*Tölurnar í svigum vísa til aldurs húsanna. Finnst það nokkuð skemmtilegt fyrirkomulag.
Bloggar | Breytt 4.5.2015 kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 15
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 296
- Frá upphafi: 447498
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 227
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar