"Hús dagsins" 1 árs!

25.júní í fyrra birti ég í fyrsta skipti hér á síðunni mynd af húsi ásamt fróðleikskorni um það undir fyrirsögninni Hús dagsins. Var það Norðurgata 17,Gamla Prentsmiðjan, byggð 1880 sem varð fyrir valinu. Nú eru þessir pistlar orðnir um 80 ( hef ekki nákvæma tölu, en myndirnar í albúminu Hús og byggingar eru 87 ). Enn á ég þó nokkrar húsamyndir sem ég á eftir að deila hér á síðunni svo Hús dagsins ganga eitthvað áfram. Hús dagsins eiga það yfirleitt sameiginlegt að vera gömul, sögufræg eða bara skrautleg hús á Akureyri sem ég hef myndað og kynnt mér eitthvað. Oft eru þetta hús sem "allir" kannast við. En mér finnst einnig gaman að birta myndir sem sýna kannski eitthvað allt annað (hús t.d. eða ýmislegt annað í umhverfinu) en þeir sem heimsækja Akureyri eða Eyjafjörð sjá. Einskonar "falin leyndarmál" eða þess háttar.  En hér er afrit af fyrsta "Hús dagsins" pistlinum:

Hús dagsins: Norðurgata 17

Ég hef í nokkrar vikur birt myndir sem ég á af húsum á Akureyri og stutta umfjöllun um þau á Facebook. Hérna mun halda áfram með það. Eru þetta yfirleitt gömul hús á Oddeyri eða Innbænum en ég á orðið ágætis myndasafn af þeim. Heimildir um byggingarár og sögu húsanna eru fengnar úr öllum mögulegum bókum um byggingarsögu Akureyrar auk þess sem ég hef sótt a.m.k. eina sögugöngu Minjasafnsins um þessi eldri hverfi á hverju sumri síðan 1997. P6050029

Hús dagsins er Norðurgata 17, einnig kallað Steinhúsið eða Gamla Prentsmiðjan. Húsið er það eina á Akureyri sem hlaðið er úr blágrýti svipað og Alþingishúsið og Hegningarhúsið. Byggingarár mun vera 1880 og er þetta hús í 3.-4.sæti yfir elstu hús á Oddeyri. Í þessu húsi var lengst af starfandi prentsmiðja en ýmis önnur starfsemi hefur einnig verið stunduð í húsinu á 130 árum.

Ég minntist á að þetta væri 3.-4. elsta hús Oddeyrar. Sjálfsagt mál er að telja upp þau hús á Oddeyri sem teljast eldri en Steinhúsið. Norðurgata 11 er jafn gamalt (1880), Lundargata 2 (1879), Strandagata 27 (1876) og elst er Strandgata 49, Gránufélagshúsið, (1874).

Þá langar mig til að þakka innlitin hingað inn og athugasemdir, ágætt að vita að einhverjir hafi áhuga á þessu grúski mínu. Smile



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með daginn.   Það er gaman að fylgjast með þessum pistlum þínum.  Haltu áfram !

Guðm.Logi (IP-tala skráð) 3.7.2010 kl. 20:56

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Þökk fyrir :)

Arnór Bliki Hallmundsson, 5.7.2010 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 48
  • Sl. sólarhring: 207
  • Sl. viku: 564
  • Frá upphafi: 420641

Annað

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 443
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband