Hús dagsins: Hamarstígur 12

Hamarstígur 12 stendur á  norðausturhorni götunnar og Þórunnarstrætis.P5030918 Húsið byggði Pétur Jónsson læknir árið 1939. En það var 10. mars það ár sem Bygginganefnd tók fyrir erindi hans um byggingalóð við Hamarstíg, ofan við Halldór Halldórsson (þ.e. Hamarstíg 10). Stóð erindi hans nokkuð í Bygginganefnd sem bundin var af þágildandi skipulagi en það gerði ráð fyrir, að Hamarstígur endaði við Helgamagrastræti. Bókar nefndin því í kjölfarið að hún hyggist leggja það til við bæjarstjórn að gatan verði framlengd að Þórunnarstræti og hún lögð samsíða Helgamagrastræti (líklega þar átt við Þórunnarstræti). Þessi tillaga þurfti að hljóta blessun, ekki aðeins bæjarstjórnar, heldur líka skipulagsnefndar og Stjórnarráðs; hvorki meira né minna. Yrði það svo, fengi Pétur lóðina.

Um vorið, eða 23. maí lá niðurstaðan fyrir og eftir ítrekun Péturs á erindi sínu var honum veitt lóðin og byggingarleyfi. Þannig er ljóst, að það hafði fengist í gegn að framlengja Hamarstíginn að Þórunnarstræti og síðarnefnda gatan lögð samsíða Helgamagrastræti. Blasir það enda við hverjum þeim, sem leið á þarna um. Hamarstígur var síðar lagður enn lengra upp á Brekkuna,samhliða uppbyggingu þéttbýlis um miðja 20. öld, m.a. Mýrahverfis. Árið 1939 voru þéttbýlismörk Akureyrar hins vegar nokkurn veginn við Helgamagrastrætið, allt þar ofan við var „uppi í sveit“.  En byggingarleyfi Péturs var fyrir húsi, 11,5x9,5m að grunnfleti. Húsið byggt úr steini á einni hæð með flötu þaki og kjallara undir hálfu húsinu.  Teikningarnar, sem ekki eru aðgengilegar á Landupplýsingakerfinu, gerði Snorri Guðmundsson.

Hamarstígur 12 er einlyft steinsteypuhús á nokkuð háum kjallara, með háu, sveigðu „mansard“ risi. Á framhlið er stór miðjukvistir og tveir smærri hvor sínu megin við hann. Í gluggum eru krosspóstar með mjóum fögum, veggir múrsléttaðir og bárujárn á þaki. Á bakhlið er inngönguskúr eða stigahús.  

Húsið var upprunalega, svo sem fram kemur í byggingarleyfi, ein hæð með flötu þaki; nokkuð dæmigert funkishús, ekki ósvipað nærliggjandi húsum við Helgamagrastrætið. Árið 1951 var byggð rishæð og mun Pétur Jónsson, sem byggði húsið, hafa staðið fyrir þeim framkvæmdum en teikningarnar gerði Stefán Reykjalín. Fékk húsið þá það útlit sem það síðan hefur í stórum dráttum, en síðar (1969) var byggt við húsið bakatil. Pétur Stefán Jónsson, sem byggði Hamarstíg 12, var Húnvetningur, fæddur að Syðri- Þverá í Vesturhópi. Hann nam læknisfræði við Háskóla Íslands og var m.a. héraðslæknir (staðgengill) í Vestmannaeyjum og Siglufirði áður en hann settist að Akureyri 1928. Hann starfaði fyrstu árin sem aðstoðarmaður Steingríms Matthíassonar og síðar sjálfstætt við sjúkrahúsið. Bjó Pétur hér til æviloka, en hann lést árið 1968. Hann var kvæntur Ástu Sigvaldadóttur, sem tók upp föðurnafn hans, Jónsson og bjó hún hér áfram til dánardægurs, eða 1988. Ásta var frá Stykkishólmi á Snæfellsnesi. Í hennar tíð, eða 1969 var byggð við húsið stigahús bakatil, eftir teikningum Guðmundar Kristinssonar. Ásta bjó hér til dánardægurs, eða 1988. Á áttunda áratugnum bjuggu hér einnig þau Gunnlaugur P. Kristinsson fræðslufulltrúi KEA og Iris Gunborg Kristinsson. Gunnlaugur var stofnandi Samtaka sykursjúkra á Akureyri, en hann glímdi við insúlínháða sykursýki frá barnsaldri. Margir hafa búið hér eftir tíð þeirra Péturs og Ástu, en síðastliðna áratugi hafa tvær íbúðir verið í húsinu, ein á hvorri hæð.

Öllum eigendum og íbúum Hamarstígs 12 gegnum tíðina hefur auðnast að halda húsi og lóð vel við, svo prýði er af. Lóðin er vel gróin og ber þar mikið á gróskumiklum birkitrjám. E.t.v. hafa þau Pétur og Ásta Jónsson gróðursett þau á sínum tíma. Húsið er stórbrotið, reisulegt og skrautlegt og gerir mansardrisið það sérlega svipmikið. Í Húsakönnun 2015 hlýtur það miðlungs eða  1. stigs varðveislugildi, á skalanum 0 til 2, þar sem 2 er hátt varðveislugildi, og sagt „óvenjulegt hús með blönduðum byggingastílum“. (Ak.bær, Gylfi Guðjónsson o.fl. 2015: 65) Húsið er sem áður segir, í mjög góðu standi og lítur vel út. Á lóðarmörkum er upprunalegur, steyptur veggur með járnavirki, sem einnig er mjög vel við haldið. Myndin er tekin þann 3. maí 2019.

 

Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á  slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf

 

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 831, þ. 10. mars 1939. Fundur nr. 835, 23. maí 1939. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

 


Bloggfærslur 15. febrúar 2020

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 550
  • Frá upphafi: 420867

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 459
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband