Hvað er að frétta af "Húsum dagsins"?

Rauði þráðurinn á þessum vef hafa verið myndaþættir og söguágrip af eldri eða skrautlegum húsum á Akureyri. Þeir sem heimsækja þessa síðu reglulega kunna að hafa tekið eftir því að ekki hefur komið Húsapistill í rúman mánuð. Og því eflaust einhverjir sem kunna að spyrja að þessu. En staðreyndin er sú að ég er búinn að skrifa um lang flestar húsamyndir sem ég á og ekki komið mér í að taka fleiri myndir. Það stendur alveg örugglega til bóta. Það verður líka sífellt erfiðara að muna hvaða hús ég er búinn að mynda og fjalla um eða ekki- þ.e. ég er ekki með það á hreinu þegar ég fer út með myndavélina, hvort hús sé í hópi þeirra rúmlega 130 sem ég hef tekið fyrir. En flest sögufræg eða byggingarsöguleg hús á Akureyri hef ég fjallað um hér auk margra annarra húsa. Grundvallarreglan í þessum skrifum mínum er sú að í hverjum Húsapistli er mynd af húsinu- og  myndina verð ég að hafa tekið sjálfur.En ég get nokkurn vegin lofað því að Hús dagsins verða fleiri. Sem dæmi má nefna að ég á eftir að taka fyrir margar byggingar í Miðbæ Akureyrar og einhver býli í Glerárþorpi á ég eftir að taka fyrir. En það mun kannski líða talsverður tími á milli. Ég var einhvern tíma búinn að lýsa því yfir að ég myndi láta vita þegar þessum pistlum yrði formlega hætt en er eiginlega búinn að skipta um skoðun hvað það varðar. Því auðvitað yrði það þannig að strax eftir að ég lýsti því yfir að Hús dagsins yrðu ekki fleiri myndi ég uppgötva einhverja byggingu til að fjalla um eða mér bent á hana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er frábær síða hjá þér! Endilega haltu áfram að mynda og skrifa:)

Inga Lísa (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 13:55

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl Inga Lísa, ég mun að sjálfsögðu halda áfram- þó færslur verði etv. eilítið stopular. Þakka innlitið- og hvatninguna .

Arnór Bliki Hallmundsson, 18.11.2011 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 25
  • Sl. sólarhring: 36
  • Sl. viku: 598
  • Frá upphafi: 420851

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 486
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband