Húsaannáll 2014

Þessi tómstundaiðja mín að ljósmynda valin hús á Akureyri og birta um þau litlar greinar hér á vefnum hefur nú staðið í fimm og hálft ár. Ég nenni ekki að rekja söguna á bakvið það í tíunda skiptið eða gefa nokkur fyrirheit hvenær eða hvort ég læt staðar numið. Síðastliðið ár hef ég að mestu tekið fyrir hús sem mér fannst ég eiga eftir- á grundvelli þess að fyrst ég hafði tekið ákveðin hús í vissum götum þá hlyti ég að taka þau hin líka. Þau hús sem hljóta þann heiður að vera Hús dagsins eru ævinlega eldri hús eða standa í eldri hverfum Akureyrar (eða annarra bæjarfélaga þar sem ég á leið um með myndavélina). 

Aðeins voru liðnar tæpar 16 klukkustundir af árinu 2014 þegar fyrsta húsagreinin mín birtist um húsið Sunnuhvoll í Glerárþorpi.

7. janúar var það Lundargata 6

13.janúar Lundargata 13

Laugardaginn 18.janúar lagði ég upp í göngutúr um Miðbæinn til að ljósmynda hús í Miðbænum sem mér fannst eiga skilda umfjöllun og birtust greinar um þau hús fram eftir vetrinum. En fyrst lauk ég við að skrifa um hús sem ég hafði myndað á Eyrinni 2.des 2013.

22. janúar Norðurgata 19

27.janúar Norðurgata 12

28.janúar Norðurgata 10

5.febrúar Norðurgata 8 

7.febrúar Norðurgata 2b Ég hafði séð það að ég yrði að birta mynd og skrifa um Söluturninn við Norðurgötu 8 fyrst ég hafði fjallað um 10,12 og 19. Stökk því til þann 30.janúar og myndaði það hús og nr. 2b. Þar með hafði ég lokað hringnum um elsta hluta Norðurgötu en fyrsta húsið sem ég tók nokkurn tíma fyrir hér á vefnum var einmitt Norðurgata 17. 

Fyrsta húsið úr Miðbæjarröltinu mínu þ. 18.jan birtist þann 12.febrúar.

12.febrúar Hólabraut 13 

16.febrúar Hafnarstræti 108

25.febrúar Hafnarstræti 104

1.mars Hafnarstræti 102

8.mars Kaupangsstræti 19-23

17.mars Kaupangsstræti 10-12

27.mars Kaupangsstræti 14 og 16

Næst kom meira en þriggja vikna hlé. En laugardag fyrir páska, 19. apríl, mundi ég eftir því að hafa fjallað um neðri hluta Eyrarlandsvegs en ætti efri hlutan eftir að mestu. Svo ég skellti mér upp á brekku í vorsólinni og stífri norðanátt. 

20.apríl Eyrarlandsvegur 27

22.apríl Eyrarlandsvegur 29

25.apríl Eyrarlandsvegur 31

29.apríl Eyrarlandsvegur 33

Á heimleið úr Eyrarlandsveginum myndaði ég svo nokkur hús í Miðbænum- sem sum bíða raunar enn umfjöllunar ;) 

5.maí Hafnarstræti 100

14.maí Geislagata 7; Sjallinn

26.maí Aðalstræti 42 (Þarna var um að ræða fjögurra ára gamla mynd sem ég fann í grúski um myndasafnið, því lengi er von á einum )

Um hvítasunnuhelgina brá ég mér í Reykjanesbæ og komst þar í Sögugöngu um gamla Varnarliðssvæðið. Þar var ég að sjálfsögðu með myndavélina á lofti og lagði vel á minnið hvað leiðsögumaðurinn sagði. 

16.júní Nokkur hús á Ásbrú

Um ellefuleytið að morgni hins 19.júní brá ég mér suður í Innbæinn að mynda nokkur hús við Aðalstræti. Eftir að hafa snætt hádegisverð sem samanstóð af soðinni ýsu, kartöflum ,rófum og hamsatólg hófst ég handa við skrif um Aðalstræti 2.

19.júní Aðalstræti 2.

23.júní Aðalstræti 17

25.júní voru 5 ár liðin síðan þetta brölt hófst hjá mér og auðvitað fylgdi langur afmælispistill

29.júní Aðalstræti 19

2.júlí Aðalstræti 20  

7.júlí Aðalstræti 21

17.júlí Aðalstræti 22

29.júlí Aðalstræti 28

18.ágúst Hafnarstræti 15

Oftar en ekki líður langur tími milli færsla á sumrin. Það stafar einfaldlega af því að þegar veður er gott og nætur bjartar er ég afspyrnu latur við setu við tölvu og skriftir innandyra. En góðviðrisdag einn í september, nánar til tekið þann áttunda brá ég mér í stuttan túr um Eyrina og myndaði nokkur hús þar;

11.september Fróðasund 9

15.september Fróðasund 4

19.september Gránufélagsgata 19

Sunnudagsmorguninn 14.september brá ég mér inn í Innbæ að mynda hús við Lækjargötuna og ætlunin var að öll húsin við götuna fengju umfjöllun hér.

30.september Lækjargata 11

7.október Lækjargata 11a

16.október Lækjargata 14. Þar hafði ég afgreitt alla Lækjargötuna.

21. október Aðalstræti 54b

Í handraðunum leynist oft ýmislegt og í myndasafninu átti ég mynd úr Eiðsvallagötunni frá ársbyrjun 2013.

1.nóvember  Eiðsvallagata 30

 

Ég ákvað að ráðast í það mynda öll húsin við þá götu og vatt mér í það þann 31.okt. Og að sjálfsögðu að skrifa um alla götuna eins og hún leggur sig. Þar er í raun um að ræða einhverskonar frumrannsókn af minni hálfu en þær heimildir sem til eru um húsin við götuna liggja helst í fundargerðum Byggingarnefndar, sem varðveittar eru á Héraðsskjalasafninu. Einnig má nálgast teikningar á Landupplýsingakerfi Akureyrar en þar kemur yfirleitt fram fyrir hvern er teiknað. En það er eiginlega nauðsynlegt að vita hverjir byggðu húsin áður en flett er upp í bókunum Byggingarnefndar, því þar er allt flokkað eftir nöfnum þeirra sem sækja um byggingarleyfin. Þá kemur vefurinn timarit.is að góðum notum þegar athugað skal hvort og hvaða starfsemi var í húsunum, því hafi auglýsingar birst frá viðkomandi starfsemi og heimilisfang hennar tilgreint kemur það fram í leitinni. Svona rannsóknarvinna getur verið gríðarlega umfangsmikil og eflaust væri hægt að skrifa margra blaðsíðna ritgerð um hvert hús. En ég reyni yfirleitt að hafa þetta stutt og hnitmiðað og miða við að koma fram eftirfarandi upplýsingum um húsin:

Byggingarár- hver byggði- hver teiknaði- hvaða starfsemi var þar gegn um tíðina (ekki endilega tæmandi upptalning)- MYND. Og síðustu vikur hef ég birt pistla um Eiðsvallagötuhúsin í númeraröð:

6.nóvember Eiðsvallagata 1

13.nóvember Eiðsvallagata 3

16.nóvember Eiðsvallagata 4

19.nóvember Eiðsvallagata 5

26.nóvember Eiðsvallagata 6; Bóla

29.nóvember Eiðsvallagata 8

7.desember Eiðsvallagata 9

10.desember Eiðsvallagata 11

13.desember Eiðsvallagata 13

16.desember Eiðsvallagata 14; Gamli Lundur

19.desember Eiðsvallagata 18; Lárusarhús

20.desember Eiðsvallagata 20

Og þá er það upp talið...

Á árinu 2014 tók ég þannig fyrir um 50 hús í 46 pistlum. Flest eru húsin í Innbænum og á Oddeyrinni. Meðalaldur húsanna gæti ég trúað að væri nálægt 80 árum. 

Ég mun halda áfram umfjöllun minni um Eiðsvallagötuna á nýju ári, en þau hús sem út af standa eru 22, 24, 26, 28 og 32. Fyrsta "Hús dagsins" á árinu 2015 verður því Eiðsvallagata 22. Eftir það er líklegast að ég taki Brekkugötuna fyrir á sama hátt, en ég hef fátt ákveðið í þeim efnum. Einnig hef ég í hyggju að vinna eitthvað í skipulagningu og utanumhaldi á þessum pistlum en þeir eru orðnir um 300 og finnst mér þetta vera svolítið í belg og biðu hér á þessari síðu. (Ég bý kannski til færslur með tenglum á öll húsin við ákveðnar götu, þ.a. hægt að sé að flett upp auðveldlega). Annars er, líkt og fyrri daginn, fátt skipulagt eða ákveðið varðandi þennan húsavef minn og verður væntanlega svo áfram. 

Takk fyrir öll innlitin á árinu 2014.

Arnór B. Hallmundsson.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 33
  • Sl. sólarhring: 204
  • Sl. viku: 642
  • Frá upphafi: 419733

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 518
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband