5.8.2016 | 15:55
Hús dagsins: Oddeyrargata 17
Oddeyrargatan er að mestu byggð á 3.áratug 20.aldar. Þá voru flest hús sem byggð voru steinhús, enda standa aðeins tvö timburhús við götuna. Annars vegar elsta hús götunnar, númer 3 sem byggt var 1908 og hins vegar númer 17, sem byggt er 1920-21. En það var haustið 1920 að Eggert M. Melsteð fékk lóð og leyfi til húsbyggingar á þessum stað. Húsið yrði timburhús á steinkjallara samkvæmt framlögðum uppdrætti. Umræddur uppdráttur hefur ekki varðveist og ekki er vitað hver teiknaði. Hugsanlega hefur Eggert teiknað húsið sjálfur en hann teiknaði húsið Oddagötu 9 sem byggt var fyrir Odd C. Thorarensen apótekara árið 1928.
Mér finnst stundum dálítið gaman að ímynda mér, hvernig umhorfs hefur verið í næsta nágrenni húsa þegar þau voru nýbyggð. Árið 1921, þegar þetta hús var fullbyggt, hefur það staðið hæst húsa við Oddeyrargötuna, ásamt næsta húsi neðan við, en 15 var einnig byggt 1920. Næstu hús neðan við risu ekki fyrr en fáeinum síðar og enn var rúmur áratugur í að nokkuð yrði byggt við Bjarmastíg. Húsin hafa því staðið nokkuð hátt í brekkunni bak við húsin við Brekkugötu, og nokkrar húsalengdir í næstu hús við Oddeyrargötuna þ.e. nr. 3 og 8. Vestan við það, handan götunnar hafa verið móar, klappir og beitilönd alla leið til fjalls. Húsið hefur verið á mörkum þess að standa upp í sveit líkt og Melshúsin handan Skátagils (sem raunar fékk ekki það nafn fyrr en löngu síðar), en nú er þessi staður nánast í Miðbænum.
Oddeyrargata 17 er einlyft timburhús með háu risi og miðjukvisti að framan en á bakhlið er kvistur að suðurgafli, með einhalla aflíðandi þaki. Á suðurgafli er einnig forstofubygging með svölum ofan á. Sexrúðupóstar eru í gluggum en skrautpóstur í suðurglugga á forstofu og er allt húsið bárujárnsklætt. Húsið hefur alla tíð verið einbýlishús. Þarna bjó um áratugaskeið Knud Ottersted rafveitustjóri og kona hans Lena Ottersted. Þau fluttust til Akureyrar árið 1922 frá Svíþjóð en Knud kom hér til starfa við byggingu háspennulínumannvirkja vegna Glerárvirkjunar. Hún var tekin í notkun haustið 1922 og þar með var Rafveita Akureyrar orðin að veruleika. Knud veitti henni forstöðu og gegndi því starfi í fjóra áratugi. Upprunalegar teikningar af húsinu hafa sem áður segir, ekki varðveist. Ekki er víst að kvistur hafi verið á því frá upphafi, en lengi vel var framkvistur með einhalla þaki. Sá kvistur sem nú prýðir húsið er raunar nýlegur eða frá því um 2000. Þá var húsið, sem var forskalað með perluákastsmúrhúð (skeljasandi) allt tekið til gagngerra endurbóta og fékk þá það útlit sem það síðan hefur. Skipt var gluggapósta, húsið allt bárujárnsklætt og ýmis bragarbót gerð, sem sjá má nánar á teikningu frá 1996. Húsið er þannig allt sem nýtt og með glæstari húsum og lóðin er vel hirt og gróin- þótt lítið beri á grósku þeirri á meðfylgjandi mynd sem tekin er í febrúar á tiltölulega snjóþungum vetri. Þess má geta að þáverandi eigendur, Kristján Magnússon og Snjólaug Brjánsdóttir, fengu viðurkenningu frá Húsverndarsjóði árið 2004 fyrir endurgerð á húsinu og má með sanni segja, að þau hafi verið vel að þeim heiðri komin. Ein íbúð er í húsinu. Þessi mynd er tekin þann 21.2.2016.
Heimildir: Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. Upplýsingar um upprunasögu húsa á Akureyri árið 1933.
Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 508
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 354
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.