25.6.2018 | 10:02
Hús dagsins 9 ára; 9 hús númer 9.
Það var þann 25.júní árið 2009 að ég hóf að birta myndir af eldri húsum á Akureyri ásamt textum. Fyrsta færalan var aðeins 3-4 setningar að mig minnir, enda var ætlunin aðeins sú að birta myndir og örstutt söguágrip. En með árunum fóru eigin kröfur vaxandi. Fyrst um sinn snerist þetta aðeins um að setja inn myndir og skrifa það sem ég mundi en þegar frá leið fór ég að fletta upp í bókum. Um Innbæinn og Oddeyrina (þ.e. elsta hluta hennar) hafa lengi verið til ítarlegar húsakönnunarbækur og svo er það auðvitað Akureyri; Höfuðborg hins bjarta norðurs eftir Steindór Steindórsson. Síðar uppgötvaði ég vef Landupplýsingakerfisins en eftir að Oddeyrinni og Innbænum sleppti var ekki hlaupið að því að komast að því hverjir byggðu húsin. Af einhverjum ástæðum hugkvæmdist mér ekki að sækja Héraðsskjalasafnið fyrr en fyrir fáeinum árum. Trúlega datt mér einfaldlega ekki í hug, að hægt væri að finna þar gögn frá Bygginganefnd o.fl. eða þá að þau væru ekki aðgengileg almenningi. En þessar heimildir eru afar öflugar, að ekki sé minnst á Jónsbók, en þar eru birtar Bygginganefndarupplýsingar fyrir hvert hús sem stóð á Akureyri um 1933-35. Það getur nefnilega verið dálítið "púsluspil" að fletta upp í Bygginganefndarfundargerðum frá 3. og 4. áratug því þar er lóðum og húsum undantekningalítið lýst sem "næsta lóð vestan við Jón Jónsson, þriðja að norðan" við tilteknar götur. Ég hef svosem verið frekar skriflatur upp á síðkastið, sé aðeins horft til þessarar síðu. En í tilefni þess, að ég hef nú sett inn færslur á þessa síðu í níu ár hyggst ég hér birta tengla á 9 hús númer 9.
Goðabyggð 7; Silfrastaðir eða Vesturgata 9
Ég hef svosem verið frekar skriflatur upp á síðkastið, sé aðeins horft til þessarar síðu. En það kemur til af því, að ég hef fengist við að búa bókarhandrit til prentunar. "Norðurbrekkan milli Gils og klappa" og á hún að ná til neðri hluta Ytri Brekku. Enda þótt handritið liggi að miklu leyti fyrir hér á síðunni er mikil vinna að sníða af vankanta og villur og setja texta upp og myndir o.s.frv. Í sumum tilvikum hefur textinn sem til var fyrir frekar þvælst fyrir. En það er tómt mál að tala eða rita um þessa fyrirhuguðu bók ef ekki næst fjármagn til prentunar. Ég ligg aldeilis ekki á digrum sjóðum og hef enga slíka á bak við mig og treysti því alfarið á hópfjármögnun gegn um Karolina Fund. Hvet auðvitað sem flesta til að heita á, og færi þeim sem þegar hafa stutt við verkefnið mínar bestu þakkir. Minni einnig á, að enginn er rukkaður nema söfnun takist.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 23
- Sl. sólarhring: 44
- Sl. viku: 471
- Frá upphafi: 445677
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 350
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.