30.9.2018 | 20:35
Hús dagsins: Sniðgata 1
Sniðgata er ein af styttri og brattari götum bæjarins og liggur á milli Brekkugötu og Munkaþverárstrætis og skásker hallan til suðvesturs, uppfrá norðurgafli Brekkugötu 25. Við götuna standa einungis þrjú hús, byggð árin 1935- 40. Sniðgata er einungis um 80 metra löng.
Neðsta, eða öllu heldur neðra þar eð húsin eru einungis tvö, húsið við Sniðgötu sunnanverða er hús nr. 1, tvílyft steinsteypuhús í Funkisstíl. Húsið byggði Júlíus Davíðsson um 1936-37, en hann fékk lóð og byggingarleyfi haustið 1935 og fékk að reisa íbúðarhús úr steinsteypu, 8x9m eina hæð á kjallara. Gerð var krafa um, að burðarveggir kjallara væru 20 cm þykkir. Ári síðar er Júlíusi leyft að hafa steinloft á húsinu (hefur líklega verið gert ráð fyrir timburlofti í upphafi) og r-stein í útveggjum og loks fékk hann að breyta þaki úr skúrþaki í valmaþak. Húsakönnun 2015 segir Stefán Reykjalín hafa teiknað húsið, en upprunalegar teikningar er ekki að finna á Landupplýsingakerfisvefnum, en þar má sjá nýlegar útlits- og uppmælingarteikningar Aðalsteins V. Júlíussonar og þar kemur fram, að þær séu unnar út frá teikningum Gunnars Pálsson frá 23.9.1935. Fullbyggt mun húsið hafa verið 1940, það er alltént skráð byggingarár hússins. Húsið hefur hins vegar verið risið vorið 1939, en þann 5. apríl það ár auglýsir Júlíus Davíðsson stofu til leigu í húsinu.
Sniðgata 1 er einlyft steinhús á háum kjallara, sem er að hluta óniðurgrafinn vegna mishæðar á lóð, og með einhalla aflíðandi þaki; sk. skúrþaki. Veggir eru múrhúðaðir, bárujárn á þaki og gluggapósta mætti kannski kalla H-pósta, þar eð þeir mynda nokkurs konar H, tvö lóðrétt fög nærri jöðrum og eitt lárétt opnanlegt fag á milli þeirra. Á austurhlið er útskot eða forstofubygging með steyptum tröppum að götu en og viðbygging til austurs.
Árið 1956 var byggður bílskúr á lóðinni eftir teikningum Stefáns Reykjalín og byggt við húsið til austurs, einnig eftir teikningum Stefáns en ekki er vitað hvenær þaki var breytt úr valmaþaki í einhalla aflíðandi þak; mögulega hefur það verið á sama tíma. En Sniðgata 1 er ekki eina húsið á þessum slóðum sem Júlíus Davíðsson byggði, því skömmu áður hafði hann reist Hamarstíg 1 og nokkrum árum fyrr Oddeyrargötu 22 ásamt Ásgeiri Kristjánssyni. Síðar byggði hann Munkaþverárstræti 33. Sniðgata 1 hefur alla tíð verið íbúðarhús og margir þar átt heima gegn um tíðina. Tvær íbúðir eru í húsinu, hvor á sinni hæð og líklega hefur sú íbúðaskipan verið mest alla tíð. Húsið er í góðri hirðu og lítur vel út, og segir í Húsakönnun 2015 að það sé talsvert breytt frá upprunalegri mynd en stendur ágætlega með þeim breytingum (Ak.bær, Teiknistofa Arkitekta 2015: 214). Það er nefnilega vel hægt að bæta við og breyta eldri húsum án þess að það lýti þau, sem sannast m.a. á Sniðgötu 1. Myndin er tekin þann 18. febrúar 2018.
Heimildir:Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 757, 16. sept. 1935. Fundur nr. 3. Okt. 1935. Fundur nr. 773, 27. apríl 1936. Fundur nr. 778, 7. ágúst 1936.
Óprentað og óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 13
- Sl. sólarhring: 53
- Sl. viku: 430
- Frá upphafi: 440787
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 208
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.