25.11.2018 | 17:22
Hús dagsins: Hríseyjargata 13
Eftir að hafa haldið mig við neðri hluta Ytri brekku um all nokkurt skeið færi ég mig um set úr miðjum Bjarkarstíg. Þaðan er einmitt stórkostlegt útsýni niður á Oddeyri, en þangað skal einmitt haldið. Nánar tiltekið á Hríseyjargötu en við nyrsta hluta hennar, stendur skemmtileg heild tiltölulega smárra steinhúsa í funkisstíl frá fimmta áratug 20. aldar (1940-45). Er hún nokkuð áþekk húsaröðinni geðþekku við næstu götu vestan við, Ægisgötu, en sú röð er örlítið eldri (b. 1936-40) en Hríseyjargöturöðin. Hríseyjargata liggur til norðurs frá Strandgötu, en ysti hlutinn, sem er umfjöllunarefni næstu vikna er á milli Eiðsvallagötu í suðri og Eyrarvegar í norðri.
Sumarið 1942 sækir Ásgeir Austfjörð um lóð og byggingarleyfi f.h. Björns L. Jónssonar við Hríseyjargötu. Birni er heimilað að reisa íbúðarhús, eina hæð með valmaþaki með kjallara undir 2/3. Grunnflötur hússins 14,6x8,9m auk útskots að SA 1,2x6,1m. Ekki fylgir sögunni hver teiknaði en ef ég ætti að giska á mögulegan höfund hússins myndi ég veðja á Tryggva Jónatansson. Hríseyjargata 13 er nokkuð dæmigert einnar hæðar funkishús, með lágu valmaþaki og horngluggum. Í gluggum eru lóðréttir þverpóstar með opnanlegum þverfögum en bárujárn á þaki og veggir múrsléttaðir. Húsið hefur alla tíð verið einbýlishús og ýmsir búið hér í gegn um tíðina. Þarna bjó um árabil Jórunn Bjarnadóttir ljósmóðir, frá Geitabergi í Svínadal. Hún var um langt skeið, fyrir tíma Fjórðungssjúkrahússins, eina starfandi ljósmóðirin á Akureyri og tók þannig á móti allflestum börnum sem fæddust í bænum á þessum árum. Hún mun hafa ræktað garðinn við húsið og hefur mögulega gróðursett birkitrén sem prýða lóðina framanverða. Ein íbúð er í húsinu. Mér vitanlega hefur ekki verið gefin út Húsakönnun fyrir Oddeyrina norðan Eiðsvallagötu ( mögulega er hún þó til einhvers staðar) þannig að varðveislugildi húsanna við Hríseyjargötu norðanverða liggur ekki fyrir. Væri ég spurður álits myndi ég segja að Hríseyjargata 13 ætti hiklaust að hljóta varðveislugildi. Húsið er í góðu standi og lítið sem ekkert breytt frá upprunalegri gerð. Þá hefði ég sagt, að hinar heillegu þyrpingar einlyftu funkishúsanna við Ægisgötu og Hríseyjargötu ættu að hafa ótvírætt varðveislugildi, ef ekki friðaðar, sem merkar og skemmtileg heildir. Myndin er tekin þann 18. nóvember 2018.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 917, 3. júlí 1942. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 25
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 483
- Frá upphafi: 441390
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 342
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.