17.12.2018 | 23:15
Hús dagsins: Bjarkarstígur 7
Eftir að hafa dvalið sl. vikur við Hríseyjargötu auk viðkomu í Glerárþorpi bregðum við okkur aftur í Bjarkarstíginn á Brekkunni.
Síðla vetrar 1944 fékk Bragi Sigurjónsson, síðar alþingismaður og landbúnaðar- og iðnaðarráðherra, lóð vestarlega í Bjarkarstíg, næstu lóð við hornlóð við Helgamagrastræti og Bjarkarstíg. Í kjölfarið fékk byggja íbúðarhús, eina hæð á kjallara úr steinsteypu með flötu steinþaki. 9,5x8,3m að stærð auk útskota: að sunnan, 1,9x5m og vestan 1,0x4,7m. Litlu síðar fékk Bragi að breyta þaki hússins úr flötu í járnklætt valmaþak með steyptri þakrennu. Teikningarnar gerði Adam Magnússon trésmiður, sem skömmu áður hafði reist hús við Bjarkarstíg 2.
Sú lýsing sem gefin er upp í bókunum Byggingarnefndar á að mestu leyti við húsið enn í dag, það er einlyft steinsteypuhús á háum kjallara (raunar er kjallari það hár að sjálfsagt mætti kalla hann jarðhæð eða segja húsið tvílyft) með valmaþaki, útskoti til vesturs og steyptum tröppum og inngangi á efri hæð í kverkinni á milli álmanna. Steining er á veggjum og bárujárn á þaki en einfaldir póstar í gluggum.
Ein af helstu heimildum höfundum við ritun greinanna hér á síðunni er gagnagrunnurinn timarit.is. Það er ekki óalgengt, að sé íbúðarhúsi frá 5. áratugnum flett upp þar að um 50-70 niðurstöður komi upp. En sé Bjarkarstíg 7 flett upp á timarit.is birtast hvorki meira né minna en 514 niðurstöður og þar af 309 frá bilinu 1950-59. Ástæðan fyrir því er sú, að á þessum árum var Bragi Sigurjónsson ritstjóri Alþýðumannsins og var heimilisfangs hans getið í hverju einasta tölublaði. Bragi gegndi hinum ýmsu störfum gegn um tíðina, við kennslu og fulltrúi við almannatryggingar og útibústjóri Útvegsbankans og ritstjóri. Hann var kjörinn á Alþingi 1967 og sat þar til 1971, og sat sem landbúnaðar- og iðnaðarráðherra 1979-80 í ríkisstjórn Benedikts Gröndal. Bragi var auk þess rithöfundur og skáld. Meðal þekktustu rita Braga er líklega safnritið Göngur og réttir sem kom út á árunum 1948-53. Bækurnar hafa, eins og nafnið gefur til kynna, að geyma ýmsar frásagnir af göngum, gangasvæðum og gangna- og réttatilhögum, að ógleymdum svaðilförum og ævintýrum gangnamanna. Bragi bjó hér ásamt konu sinni Helgu Jónsdóttur allt til æviloka, 1995 en Helga lést ári síðar. Eins og gjarnt er þegar sömu eigendur eru að húsum frá upphafi og í áratugi í þessu tilfelli ríflega hálfa öld- er húsið lítið breytt frá upphafi en að sama skapi í mjög góðri hirðu. Lóðin er einnig vel hirt og gróskumikil, þar eru m.a. mörg stæðileg birkitré, sérlega viðeigandi á Bjarkarstíg, sem Bragi og Helga hafa væntanlega gróðursett á sínum tíma. Á lóðarmörkum er einnig, eins og segir í Húsakönnun 2015 upprunaleg vönduð girðing við götu (Ak. bær, Teiknistofa arkitekta 2015: 31) steyptir stöplar með járnavirki. Í sömu Húsakönnun er húsið metið með varðveislugildi sem hluti af þeirri samstæðu heild sem húsaröðin við Bjarkarstíg er. Meðfylgjandi mynd er tekinn í haustblíðunni þann 9. október 2018.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-57. Fundur nr. 969, 20. mars 1944. Fundur nr. 971, 14. Apríl 1944. Fundur nr. 983, 21. Júlí 1944. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 11
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 273
- Frá upphafi: 441404
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 233
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.