22.12.2018 | 18:01
Hús dagsins: Hríseyjargata 22
Ég birti pistil um Hríseyjargötu 19 þann 19. og nr. 20 þann 20. og þá er auðvitað ekki um annað að ræða en að fylgja því eftir. Í dag er 22. des, dagurinn eftir vetrarsólstöður, og hér Hríseyjargata 22 en byggði hinn valinkunni bátasmiður Nói Kristjánsson árið 1942. Ekki verða hins vegar pistlar um 23, 24 eða ofar einfaldlega vegna þess, að hæsta númer við Hríseyjargötu er einmitt 22. Um Hríseyjargötu 21 skrifaði ég í febrúar 2011.
Kristján Nói Kristjánsson, kallaður Nói bátasmiður, fékk árið 1941 lóð við Hríseyjargötu, hornlóð við Eyrarveg. Fékk hann að byggja íbúðarhús, á einni hæð og kjallaralaust, 14x9m að grunnfleti, steinsteypt og þiljað að innan með timbri og þak járnklætt úr timbri. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson. Sú lýsing byggingarnefndar á enn við húsið; það er einlyft steinsteypuhús með valmaþaki og útskoti til norðausturs. Gluggar eru með einföldum lóðréttum fögum og bárujárn á þaki en veggir múrsléttaðir.
Nói bátasmiður, sem var frá Innri- Lambadal í Dýrafirði, hóf að stunda skipasmíðar á Akureyri 1924 starfrækti skipasmíðastöð sína um áratugaskeið og smíðaði marga stærri og smærri báta. Þeirra stærstur var Fagriklettur sem gerður út frá Hafnarfirði, 135 tonn. Trillur, hringnótabáta og snurpubáta og sand af árabátum að eigin sögn smíðaði hann, auk þess sem hann smíðaði fjóra 48 tonna báta fyrir Nýsköpunarstjórnina. Hér má sjá mynd af Gylfa EA628 sem Nói smíðaði fyrir Valtý Þorsteinsson í Rauðuvík árið 1939. Nói var sérlega afkastamikill og víðfrægur fyrir báta sína og skip og þegar Erlingur Davíðsson heimsótti hann hingað í Hríseyjargötu 21 í fyrsta bindi bókaflokksins Aldnir hafa orðið árið 1972 var hann enn að, 76 ára gamall (Nói var fæddur 1896). Erlingur gaf sex árum síðar út ævisögu Nóa, sem kallaðist einfaldlega Nói bátasmiður. Kristján Nói Kristjánsson lést 1983.
Húsið, sem er það ysta við austanverða Hríseyjargötu, er næsta lítið breytt að ytra byrði frá upphafi og í mjög góðri hirðu, þak virðist t.d. nýlegt sem og hurðir og gluggar. Það er hluti skemmtilegrar og samstæðrar heildar funkishúsa með valmaþökum frá árunum 1940-43 og kallast sú heild einnig skemmtilega á við aðra sambærilega röð, eilítið eldri við Ægisgötuna, næst vestan við. Snyrtilegir runnar eru á lóðarmörkum og er húsið og lóðin til mikillar prýði á þessum stað, horni Eyrarvegar og Hríseyjargötu. Myndin er tekin sunnudaginn 18. nóvember 2018 en þá var síðuhafi á vappi um Hríseyjargötuna með myndavélina, í haustblíðu og nærri 10 stiga hita.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 882, 22. ágúst 1941. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Erlingur Davíðsson. 1973. Aldnir hafa orðið I bindi: Nói bátasmiður. Akureyri: Skjaldborg.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 191
- Frá upphafi: 441425
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 148
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.