4.3.2019 | 07:35
Hús dagsins: Holtagata 2
Holtagata 2 er byggð 1938 og stendur á horni Holtagötu og Lögbergsgötu og raunar er aðkoman að húsinu við síðarnefndu götuna. Í september 1937 fékk Halldór Halldórsson f.h. Byggingafélags Akureyrar lóðir fyrir hús félagsins, annars vegar þrjár lóðir við Fjólugötu á Oddeyri og hins vegar staka lóð á horninu norðan Lögbergsgötu og austan Holtagötu. Húsið á síðarnefnda staðnum skyldi vera steinsteypuhús, ein hæð með valmaþaki að stærð 6,6x8,6m + 7,2x7,2m (tvær álmur). Í janúar 1938 fengu þeir Jóhannes Jóhannesson og Jón Sigurjónsson lóð Byggingafélagsins, væntanlega með byggingarleyfi inniföldu þó ekki sé það tekið fram í bókun byggingarnefndar. Reistu þeir húsið og þann 14. maí 1938 fluttu þau Jón Sigurjónsson og Birna Finnsdóttir á Holtagötu 2. Í Manntali 1940 kemur fram, að í húsinu búi 12 manns, þ.e. fjölskyldur þeirra Jóns og Jóhannesar og einnig er tekið fram sérstaklega, að það sé vikurklætt að innan.
Holtagata 2 er einlyft steinsteypuhús á háum kjallara og með lágu valmaþaki. Austurhluti hússins skagar eilítið til suðurs frá þeim vestari og í kverkinni er inngöngudyr og svalir. Þar er aðkoma að húsinu, sem snýr að Lögbergsgötu. Á austurálmu er einnig útskot, viðbygging til austurs með inngöngudyrum og steyptum tröppum og þar eru svalir sem liggja í boga fyrir SA horn. Í gluggum eru krosspóstar með opnanlegum neðri hornfögum og stórir gluggar til suðurs á viðbyggingu. Glugga af því tagi hefur sá sem þetta ritar kallað stofuglugga einfaldlega vegna þess að gluggar af þeirri gerð eru oftar en ekki í stofum íbúðarhúsa. Veggir hússins eru múrsléttaðir og bárujárn á þaki.
Jóhannes og kona hans Karolína Jósefsdóttir og þau Jón og Birna bjuggu um áratugaskeið í húsinu, Jón allt til dánardægurs árið 1986. Árið 1953 var byggt við húsið til austurs, álma jafn há húsinu stofa á efri hæð og geymsla (bílskúr) á þeirri neðri. Hönnuður að viðbyggingunni var , líkt og að húsinu í upphafi, Guðmundur Gunnarsson. Fellur enda viðbygging vel að upprunalegu húsi, svo sem segir í Húsakönnun 2015. Margir hafa átt heima í húsinu um lengri eða skemmri tíma þau 80 ár sem það hefur staðið. Húsið er í sérlega góðri hirðu, þak og gluggar virðast t.d. nokkuð nýlegir. Húsið tekur sem hornhús þátt í götumyndum tveggja gatna og er til mikillar prýði í mikilli og heilsteyptri torfu funkishúsa á Norðurbrekkunni. Í áðurnefndri Húsakönnun er húsið metið til varðveislugildis 1 og sómir sér ágætlega við Lögbergsgötu (Ak. bær, Teiknistofa Arkitekta 2015: 125). Tvær íbúðir eru í húsinu, hvor á sinni hæð. Myndin er tekin í haustblíðunni þann 9. okt. 2018.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 804, þ. 4. sept. 1937. Fundur nr. 810, 25. jan. 1938. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Manntal á Akureyri 1940.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 422
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 329
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.