18.3.2019 | 12:14
Hús dagsins: Holtagata 5
Holtagötu 5 reisti Snorri Pálsson múrarameistari eftir teikningum Stefáns Reykjalín árið 1939. Hann fékk lóð við vestanverða Holtagötu, aðra lóð norðan við hús Hauks Stefánssonar (þ.e. Holtagötu 1). Snorra var leyft að byggja húsið eftir framlögðum teikningum en var leyfið háð nokkrum skilyrðum þ.á.m. að reykháfseftirlíking yrði felld burt og smávægilegar útlitsbreytingar yrðu gerðar í samráði við byggingarfulltrúa. Húsið er, einlyft steinsteypuhús með aflíðandi einhalla þaki undir háum þakkanti, stölluðum á hliðum. Að framan eða austan er útskot og inngangur í kverkinni á milli og einnig er lágt útskot, geymsla að norðan. Suðvestan á húsinu er bogadregið útskot og tröppur að inngangi einnig bogadregnar. Einfaldir lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum eru í gluggum og bárujárn á þaki. Húsið er sagt sérstakt funkis í Húsakönnun 2015 og má það sem sannarlega má segja nokkuð sérstakt fyrir funkishús er hið mikla og áberandi skraut sem einkennir húsið. Ber þar helst að nefna steinhlaðinn turn á framhlið, sem er væntanlega reykháfseftirlíkingin sem Byggingarnefnd vildi burt, steinhleðslumunstur á bogadregnu útskotinu og steypt bönd ofarlega á sömu hlið.
Snorri Pálsson sem byggði húsið, var fæddur árið 1904 á Staðarhóli í Eyjafirði (nánar tiltekið Öngulsstaðahreppi, nú Eyjafjarðarsveit) Hann bjó ekki mörg ár á Holtagötu 5, en haustið 1944 auglýsir hann húsið til sölu. Kona Snorra var Hólmfríður Ásbjarnardóttir frá Litla Hóli í Eyjafirði. Þau fluttust síðar, eða 1953, til New York þar sem Snorri vann við iðn sína. Þannig eru eflaust þó nokkur hús vestan hafs sem Snorri Pálsson hefur komið að. Snorri lést á Akureyri árið 1983. Ýmsir hafa búið í húsinu á eftir Snorra og Hólmfríði en húsið mun alla tíð hafa verið einbýlishús.
Holtagata 5 er í einstaklega góðri hirðu og mun nýlega hafa hlotið endurbætur. Húsið er að mestu óbreytt frá upprunalegri gerð. Það er sérlega skrautlegt og glæst og setur hleðslan, steyptu skrautlínurnar og falski skorsteinninn sérstæðan og einstakan svip á húsið. Í Húsakönnun 2015 er húsið einmitt sagt mjög sérstakt funkishús með bogaformi, skrautlínum og hleðsluformi í múrnum (Ak.bær, Teiknistofa Arkitekta 2015: 128) og hlýtur fyrir vikið + í kladdann ásamt varðveislugildi 1. Lóðin er einnig vel hirt og aðlaðandi, hún er að hluta á klöpp sem aftur kallast skemmtilega á við húsið sjálft og steyptan vegg á lóðarmörkum. Hlaðin varða undir fánastöng á klöppinni sunnan við húsið er einnig til prýði. Holtagata 5 og lóðin í kring er svo sannarlega til mikillar prýði í umhverfinu og að áliti undirritaðs ein af helstu perlum Ytri Brekkunnar. Myndin er tekin þann 9. okt. 2018.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 829, þ. 21. febr. 1939. Fundur nr. 832, 18. apríl 1939. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 9
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 380
- Frá upphafi: 440813
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 182
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.