4.4.2019 | 08:55
Hús dagsins: Holtagata 10
Holtagötu 10 mun Jóhann Franklín bakarameistari hafa byggt árið 1946, en lóðina fékk hann 1945. Nokkrum árum áður, eða í árslok 1941, hafði Guðmundur Ólafsson fengið lóðina ásamt nr. 8, en ekki byggt þarna. Ekki fann höfundur byggingarleyfi fyrir Holtagötu 10 í bókunum Byggingarnefndar en Jónas Franklín fékk allavega lóðina árið 1945 og nærtækast að gera ráð fyrir, að hann hafi byggt húsið. Teikningarnar að húsinu gerði Guðmundur Gunnarsson.
Holtagata 10 er tvílyft steinsteypuhús með lágu valmaþaki, útskotum til suðurs og vesturs. Í kverkinni við vesturútskot eru inngöngudyr og steyptar tröppur á efri hæð en svalir við suðurskot. Gluggar eru með lóðréttum póstum og bárujárn á þaki en veggir eru múrsléttaðir.
Húsið var frá upphafi tveir eignarhlutar, hvor á sinni hæð og árið 1946 rak Björgvin Friðriksson klæðskerastofu á neðri hæð hússins. Þremur árum síðar auglýsir Jóhann Franklín neðri hæðina til sölu, en hann bjó hins vegar þarna ásamt fjölskyldu sinni til dánardægurs árið 1978. Eiginkona Jóhanns, María Jóhannesdóttir Franklín náði 102 ára aldri, lést 2016. Ýmsir hafa búið í húsinu um lengri eða skemmri tíma þessi rúmu 70 ár sem það hefur staðið. Húsið hefur verið tvíbýli mest alla tíð, íbúðirnar á efri og neðri hæð. Árið 1995 var byggt við húsið til norðurs og byggður bílskúr á lóðinni en að öðru leyti er húsið óbreytt frá upphafi. Á lóðarmörkum er steypt girðing með járnavirki, sem er einmitt í stíl við handrið á útitröppum og svölum. Húsið hlýtur varðveislugildi 1 í Húsakönnun 2015, og viðbygging sögð fara húsinu vel. Að byggja við hús svo haganlega falli að upprunalegu húsi, líkt og í tilfelli Holtagötu 10 er ákveðin list. Lóð er einnig vel gróin og í góðri hirðu, sunnan við húsið er um 10 metra hátt stæðilegt grenitré, sem höfundur giskar á að sé blágreni. Myndin er tekin þann 9. október 2018.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 894, þ. 29. des. 1941. Fundur nr. 1012, 27. apríl 1945. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 23
- Sl. sólarhring: 43
- Sl. viku: 440
- Frá upphafi: 440797
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 214
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Arnór. Ég fór að skoða á loftkortinu svæðið sem þú hefur verið að fjalla um og rak þá augun í mikið glæsihýsi, Helgamagrastr.10. Hefurðu skrifað pistil um þetta hús?
P.S. Nú er búið að gera á loftkortið af Akureyri gul strik þar sem nýju "hagarnir" eru. Svona er líka gert f. sunnan. Ekki veitti af að fá ný loftkort, á Rvíkurkortinu er t.d. bygging sem brann í mars 2016.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 4.4.2019 kl. 15:01
Sæl og blessuð.
Þetta er rétt með loftkortin, þau þarf að endurnýja reglulega, á nokkurra ára fresti þar sem bæir eru síbreytilegir. Varðandi Helgamagrastræti 10 þá er gaman að segja frá því að Helgamagrastræti er á dagskrá hjá mér á næstu vikum. Á eftir Holtagötu er það Lögbergsgata og svo reikna ég með að taka Helgamagrastrætið eins og það leggur sig. Það mun líklega taka nokkra mánuði. Miðað við áætlaða "pistlatíðni" gæti pistill um Helgamagrastræti 10 birst nærri mánaðamótum maí - júní.
Kveðja, Arnór.
Arnór Bliki Hallmundsson, 4.4.2019 kl. 23:35
Sæll aftur og takk f.svarið. Ég skoðaði Hagana í google-farartækinu s.l. ár, eftir að þú bentir mér á hvar þeir væru. En getur þú sagt mér hvaða konur þetta eru, Margrét og Geirþrúður? Elísabet var myndlistarkona, er það ekki rétt? Er þetta Halldóra ekkja Sig.Guðm. skólameistara? Og hvaða Kristján er þetta? Sá frá Djúpalæk eða kannski bílakóngurinn, sem beitti sér gegn því að önnur stytta yrði sett upp eftir Jónas sem gerði þá af Þórunni+Helga magra? Frá þessu segir Jón Hjaltason í Sögu Akureyrar(5).
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 5.4.2019 kl. 00:25
Sæl aftur, ekkert að þakka. Þetta er líkast til rétt tilgáta varðandi Elísabetarhaga, Elísabet Geirmundsdóttir var listakona sem bjó allan sinn aldur við Aðalstræti; kölluð Listakonan í Fjörunni. Ég er ekki viss hver Margrét var (mögulega Margrét Schiöth. Geirþrúður er væntanalega Eyrarlandsmaddaman, Geirþrúður Thorarenssen, húsfrú á Stóra Eyrarlandi, sem var líklega ríkasta konan í Eyjafirði um miðja 19. öld. Átti hún á tímabili stóran hluta landsvæðisins sem Akureyri sunnan ár er byggð á. Kristján held ég að sé Kristján frá Djúpalæk, er þó ekki viss. Mögulega má finna þessar upplýsingar einhvers staðar á veraldarvefnum, s.s. akureyri.is
Kveðja, Arnór.
Arnór Bliki Hallmundsson, 7.4.2019 kl. 13:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.