16.5.2019 | 12:24
Hús dagsins: Helgamagrastræti 1
Helgamagrastræti er nokkuð löng gata sem þræðir Ytri Brekkuna (Norðurbrekku) frá Hamarkotsklöppum í norðri að Þingvallastræti í suðri. Mót Þingvallastrætis og Helgamagrastrætis eru við Sundlaugina og suðurendi götunnar er nokkurn veginn beint á móti vatnsrennibrautunum miklu á laugarsvæðinu. Helgamagrastræti er kennt við landnámsmann Eyjafjarðar, Helga magra og liggur samsíða Þórunnarstræti, sem er kennt við konu hans Þórunni hyrnu. Á elstu skipulagsuppdráttum af Akureyri frá fyrstu árum 20. aldar má sjá götuna Helgastræti áætlaða samsíða og austan Þórunnarstrætis. Helgastræti kemur fyrst fyrir á prenti í grein Páls Briem Um Skipulag bæja í blaðinu Norðurlandi, snemma árs 1904. Það er þó ekki fyrr en 1928 að ákvörðuð er gatan Helga-magrastræti á fundi veganefndar. Þá er götuheitið skrifað í tveimur orðum með bandstriki og tíðkaðist það almennt fyrstu árin og tíðkast raunar enn. Gagnagrunnurinn timarit.is finnur 417 dæmi um eldri ritháttinn með bandstriki en 2400 án bandstriks. Elsta heimildin sem finna má á timarit.is þar sem Helgamagrastræti kemur fyrir í einu orði er frá haustinu 1939. Þess má geta að umrædd heimild er auglýsing frá föðurafa þess sem þetta ritar, Kristni Sigmundssyni, þar sem hann býður kartöflur til sölu á þáverandi heimili sínu, Helgamagrastræti 3. Helgamagrastræti er um 700 metrar að lengd.
Helgamagrastræti 1
Öll húsin við vestanvert Helgamagrastrætið, á milli Þingvallastrætis og Hamarstígs (og nokkur austanmegin líka) eru byggð árin 1936-37 á vegum Samvinnubyggingafélagsins, eftir sömu teikningu. En það var um miðjan september 1935 sem Vilhjálmur Þór sótti um, fyrir hönd áðurnefnds Samvinnubyggingafélagsins, byggingarlóðir beggja vegna Helgamagrastrætis. Gatan var þá ekki tilbúin, því Byggingarnefnd óskaði eftir því að Helgamagrastrætið yrði lögð svo fljótt sem auðið er. (B.nefnd Ak. 1935, 757). Ekki stóð á því, að byggingafélagið fengi lóðirnar, því aðeins nokkrum dögum síðar var félaginu veitt leyfi til að byggja hús á lóðunum. Húsin skyldu vera tvær hæðir með flötu þaki og kjallaralaus, veggir og loft úr steinsteypu, 7,6x8,10m að grunnfleti. Húsin voru byggð eftir teikningu Þóris Baldvinssonar.
Á síðari hluta ársins 1935 var Samvinnubyggingafélagið komið með lóðir og byggingarleyfi fyrir Svo vildi til, að fyrsta verk Byggingarnefndar á árinu 1936 var að yfirfæra lóðir Byggingarfélagsins til nokkurra félagsmanna. Var það gert á fundi nr. 767, þann 4. janúar 1936. Lóð nr. 1 fékk Kjartan Sæmundsson, og lauk hann við byggingu hússins. Kjartan var fæddur á Ólafsfirði, og kona hans var Ásta Bjarnadóttir frá Húsavík. Kjartan fluttist nokkrum síðar (1942) til Bandaríkjanna þar sem fékkst við vöruinnkaup á vegum SíS. Hann varð síðar deildarstjóri við búsáhaldadeild SíS og kaupfélagsstjóri KRON frá 1957. Kjartan Sæmundsson lést árið 1963, langt fyrir aldur fram. Kjartan var fæddur á Ólafsfirði árið 1911, og kona hans var Ásta Bjarnadóttir frá Húsavík.
Helgamagrastræti 1 er tvílyft steinsteypuhús á lágum grunni og með lágu valmaþaki. Horngluggar í anda funkisstefnunnar eru til suðurs, sem og svalir á efri hæð á SA horni. Perluákast eða gróf steining er á veggjum og eru þeir málaðir en bárujárn á þaki. Einfaldir lóðréttir póstar eru í gluggum. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, einbýli og er að mestu óbreytt frá upphafi. Árið 1954 var þó byggt á húsið valmaþak, en upprunalega var þakið einhalla, aflíðandi undir kanti. Helgamagrastræti 1 er í senn einfalt og látlaust, í anda funkisstílsins en engu að síður stórglæsilegt hús. Það er í góðri hirðu og sómir sér vel í þessari heilsteyptu og samstæðu götumynd frá fjórða áratug síðustu aldar. Þá er lóðin vel hirt og gróin, þar eru m.a. gróskumikil reynitré.
Húsakönnun 2015 metur þessa húsaröð við ofanvert Helgamagrastræti sem varðveisluverða og merkilega Helgamagrastræti 1 hlýtur í Húsakönnun 2015 varðveislugildi 2, sem hluti af mikilvægri heild. Þessi umrædda heild við Helgamagrastræti, funkishúsin eru sögð [...] verðugir fulltrúar funkisstílsins og mynda heild sem vert er að varðveita. (Ak.bær, Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson o.fl. 2015: 66). Sá sem þetta ritar tekur svo sannarlega undir hvert orð þarna. Myndin er tekin þann 24. Febrúar 2019.
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr.758, 17. sept 1935. Fundur nr. 759, 21. okt. 1935. Fundur nr. 767, 4. jan. 1936. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 60
- Sl. sólarhring: 61
- Sl. viku: 531
- Frá upphafi: 436886
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 340
- Gestir í dag: 37
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.