8.8.2019 | 08:27
Hús dagsins: Helgamagrastræti 24
Árið 1946 fékk Aðalsteinn Einarsson lóð við Helgamagrastræti ásamt byggingarleyfi fyrir húsi, steinsteyptu á einni hæð með valmaþaki og með kjallara undir hluta, 13x10m auk útskots 6,6x2,2m. Fullbyggt mun húsið hafa verið 1949, en það er alltént skráð byggingarár þess.
Helgamagrastræti 24 er tvílyft steinsteypuhús (í byggingarleyfi er reyndar talað um eina hæð á kjallara, og neðri hæð er vitaskuld niðurgrafin að hluta ) með lágu valmaþaki. Á framhlið er útskot og í kverkinni á milli inngöngudyr. Veggir eru múrhúðaðir og bárujárn á þaki, og einfaldir lóðréttir póstar í gluggum. Á suðurhlið er gluggi sem er áberandi stærri en aðrir gluggar hússins, að þeirri gerð sem undirritaður hefur jafnan kallað stofuglugga og utan um hann steyptur rammi auk þess sem steypt lóðrétt bönd prýða útskot framhliðar.
Aðalsteinn Einarsson, sem byggði Helgamagrastræti 24 var frá Eyrarlandi í Öngulsstaðahreppi (nú Eyjafjarðarsveit) og starfandi lengi vel sem aðalgjaldkeri Kaupfélags Eyfirðinga, KEA. Hann var sonur Einars Árnasonar, sem sat á Alþingi fyrir Eyfirðinga árin 1916- ´42 og gegndi embætti fjármálaráðherra árin 1929-´31. Eiginkona Aðalsteins, Ólöf Friðriksdóttir, sem var frá Selabóli í Önundarfirði, starfaði áratugum saman sem hjúkrunarkona, og veitti ungbarnaeftirlitinu forstöðu um árabil. Eflaust eru þeir ófáir Akureyringarnar sem notið hafa umönnunar hennar í upphafi æviskeiðs. Þá var hún mjög virk í félagsstarfi hvers konar, s.s. í Stúkunni Brynju, þar sem hún sat í stjórn og Friðbjarnarhúsnefnd. Hún var og virk í andlegum málefnum, var félagi í Guðspekifélagi Íslands í hálfa öld. Aðalsteinn og Ólöf bjuggu hér um áratugaskeið, eða til dánardægra, hann lést 1985 en hún 1996. Þau ræktuðu garð sinn af mikilli natni, og hlutu þau verðlaun Fegrunarfélags Akureyrar árið 1956 fyrir fegursta skrúðgarðinn á Norðurbrekku (Þarna er þessi bæjarhluti kallaður Norðurbrekka, en hvort tveggja mun viðurkennt, Norðurbrekka og Ytri Brekka).
Húsið og lóðin hefur líkast til fengið afbragð viðhald frá upphafi enda ástand húss mjög gott. Það mun nokkurn veginn óbreytt frá upphafi að ytra byrði en 2013 munu hafa verið gerðar ýmsar breytingar á innra skipulagi skv. Húsakönnun 2015. Hönnuðir þeirra breytinga voru Einar Hlér Einarsson og Shrutti Basappa. Í áðurnefndri Húsakönnun er húsið metið með varðveislugildi 1 sem hluti áhugaverðrar heildar. Sem fyrr segir, eru hús og lóð í góðri hirðu og sama er einnig að segja að steyptri stöplagirðingu með járnavirki á lóðarmörkum. Lóðin er prýdd ýmsum trjám og gróðri, ber þar mest á miklu lerkitré. Væntanlega er þarna um að ræða tré sem þau Aðalsteinn og Ólöf gróðursettu á sínum tíma. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin þann 3. maí 2019.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1059, þ. 19. júlí 1946. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.2.): 1
- Sl. sólarhring: 48
- Sl. viku: 206
- Frá upphafi: 441536
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 155
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.