Hús dagsins: Skólastígur 3

Fyrstu lóðum við Skólastíg var úthlutað á fundi Byggingarnefndar Akureyrar þannPC070956 27. febrúar 1942(fyrir réttum 78 árum þegar þessi skrif eru birt hér) og voru það lóðir nr. 1 og 3. Lóð nr.1 fékk Kári Johansen, lengi forstjóri vefnaðarvörudeildar KEA en hina lóðina, nr. 3 fengu þeir Kristján Mikaelsson og Arinbjörn Steindórsson. Nokkrum mánuðum síðar, eða um sumarið fengu þeir leyfi til húsbyggingar á lóðinni. Fengu þeir að byggja hús á einni hæð á háum kjallara, með valmaþaki, byggt úr steinsteypu með steinlofti yfir kjallara. Stærð að grunnfleti 9,5x8,6m auk útskota 4,6x1,0m að vestan og 6,2x1,2m að norðan. Teikningar að húsinu gerði Guðmundur Gunnarsson. Þær teikningar, sem aðgengilegar eru á Landupplýsingakerfinu, eru raunar dagsettar tveimur áratugum eftir byggingu hússins. Fullbyggt mun húsið hafa verið 1943.

Skólastígur 3 er tveggja hæða steinsteypuhús með lágu valmaþaki, bárujárni á þaki, einföldum, lóðréttum póstum í gluggum og steiningu á veggjum. Austurhluti framhliðar skagar eilítið fram og í kverkinni á milli eru tröppur og inngöngudyr á efri hæð. Á vesturhlið er einnig útskot og svalir til SV. Þær voru stækkaðir árið 1991 eftir teikningum Bjarna Reykjalín.

Þeir Arinbjörn Steindórsson og Kristján Mikaelsson, sem byggðu húsið, voru báðir frumkvöðlar í svifflugi og tveir af þremur fyrstu hér í bæ, sem luku fullnaðarprófi í svifflugi, árið 1940. (Sá þriðji var Jóhannes Snorrason).  Arinbjörn var fæddur í Reykjavík en bjó hér í bæ um nokkurt árabil en fluttist aftur suður og rak þar Efnagerðina Sælkerann en seinna og lengst af við byggingarvinnu. Kristján Mikaelsson, sem var fæddur var á Akureyri var lengi vel búsettur í Bandaríkjunum og starfaði sem flugmaður, en hann var einnig múrarameistari að mennt. Margir hafa búið að Skólastíg 3, sem alla tíð hefur verið tvíbýlishús. Á fimmta áratugnum bjó hér, dr. Sveinn Þórðarson eðlisfræðingur sem þá ritstýrði tímaritinu Náttúrufræðingnum og kenndi við Menntaskólann á Akureyri. Hann varð síðar skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni og  prófessor við háskólann í Red Deer í Alberta í Kanada.

Skólastígur 3 er reisulegt og traustlegt hús og í góðri hirðu. Umhverfis norðausturhorn hússins er verkleg timburverönd og vesturhluti lóðar prýddur gróskumiklum trjá- og runnagróðri. Húsið hlýtur miðlungs- eða fjórða stigs varðveislugildi í Húsakönnun 2016 og sagt mynda heild ásamt húsi nr. 1, sem fulltrúar einfaldra funkishúsa.  Tvær íbúðir eru í húsinu, ein á hvorri hæð og hefur svo verið frá upphafi. Myndin er tekin þann 7. desember 2019.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 899, 27. feb 1942. Fundur nr. 917, 3. júlí 1942. óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, hefurðu séð þetta?

Rokkarinn Stefán Jakobsson, eða Stebbi Jak. eins og hann er jafnan kallaður, söngvari Dimmu, mætti í Síðdegisþáttinn hjá Sigga Gunnars og Loga Bergmann í vikunni … Stebbi, sem er úr Mývatnssveit, sagðist geta staðið undir megninu af alhæfingum um Mývetninga. „En ef við ætlum að tala um Akureyri þá skrifaði ég ritgerð í félagsfræði í verkmenntaskólanum um það hvað Akureyringar væru miklir „lúserar“,“ sagði Stebbi.

„Ég fékk tvo í mínus frá kennaranum og var sendur til skólastjórans. Þetta var ekki í fyrsta skiptið og ekki eina skiptið. En rökin mín voru meðal annars þessi að í stjórnum nemendafélaganna í menntaskólanum og verkmenntaskólanum, sem var með stærri framhaldsskólum á Íslandi, var enginn Akureyringur. Það var enginn Akureyringur formaður eins einasta félags í hvorugum skóla og sama átti við um mjög margar nefndir í menningarmálum. Og til að toppa þetta allt saman var bæjarstjórinn Dalvíkingur.“

 

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 3.3.2020 kl. 13:34

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð. 

Já, ég var búinn að sjá þetta og hef svosem lúmskt gaman af þessucool,enda þótt það sé óneitanlega óskemmtilegt að lesa Akureyringar og "lúserar" í sömu andrá.yell Ég kannast nú við Stefán og veit að hann er húmoristi mikill og öðlingur og þarna um hálfgerð bernsubrek að ræða hjá honum; ætli þetta sé ekki um 20 ár síðan hann skrifaði umrædda ritgerð. En fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta orðalag auðvitað "stuðandi" enda skal ætíð aðgát höfð o.s.frv....wink  

Arnór Bliki Hallmundsson, 4.3.2020 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 56
  • Sl. sólarhring: 96
  • Sl. viku: 352
  • Frá upphafi: 420373

Annað

  • Innlit í dag: 52
  • Innlit sl. viku: 255
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 52

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband