6.9.2020 | 10:58
Hús dagsins: Glerárgata 18
Á meðal þess, sem Byggingarnefnd Akureyrar, tók fyrir á fundi sínum þann 23. febrúar 1946 var úthlutun tveggja lóða við austanverða Hörgárbraut (sem síðar varð Glerárgata). Syðri lóðina[Glerárgötu 16] fékk Skarphéðinn Guðnason en ytri lóð hlaut Guðrún Þórhallsdóttir. Fjórum mánuðum síðar var Þórhalli Antonssyni, föður Guðrúnar, veitt byggingarleyfi á lóðinni, að því tilskildu, að rými sé nægt. Ekki kemur fram nánari lýsing á fyrirhuguðu húsi. En teikningar Þórðar S. Aðalsteinssonar að húsinu munu þá hafa legið fyrir.
Glerárgata 18 er tvílyft steinsteypuhús á lágum grunni, með lágu valmaþaki. Norðurhluti götuhliðar skagar eilítið fram og í kverkinni á milli eru svalir til suðvesturs. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og einfaldir, lóðréttir póstar í gluggum.
Þórhallur Antonsson og Guðlaug Jónasdóttir, sem byggðu húsið höfðu áður verið bændur m.a. á Grund og Hrafnagili í Eyjafirði og Völlum í Svarfaðardal. Þórhallur var frá Finnastöðum í Eyjafirði en Guðlaug frá Bakka í Fljótum. Dóttir þeirra, Guðrún, sem fékk lóðina í febrúar 1946, bjó líkast til ekki lengi í húsinu því árið 1947 fluttist hún til Reykjavíkur í myndlistarnám. Guðrún Þórhallsdóttir mun hafa verið fyrsta konan hérlendis til að ljúka flugprófi. Glerárgata 18 var frá upphafi tvíbýli og munu þau Þórhallur og Guðlaug hafa leigt neðri hæðina. Ef heimilisfanginu er flett upp á timarit.is birtast 45 niðurstöður, þar á meðal frá ljósmyndastofunni Myndveri, sem þarna hafði afgreiðslu snemma á áttunda áratug 20. aldar.
Glerárgata 18 er reisulegt og traustlegt og í mjög góðri hirðu. Á lóðarmörkum er steyptur veggur með járnavirki, sem sömu gerðar og svalahandrið, skemmtilegt samræmi þar. Húsakönnun hefur ekki verið unnin fyrir þetta svæði svo síðuhafi viti til, svo ekki liggur fyrir hvort húsið hafi varðveislugildi. Er það hins vegar persónulegt álit þess sem þetta ritar, að þessi skemmtilega röð steinhúsa frá miðri síðustu öld við fjölförnustu götu bæjarins ætti svo sannarlega skilið einhvers konar varðveislugildi. . Lóðin er gróin og vel hirt og ber þar mest á mjög svo gróskumiklum reynitrjám, silfurreyni og ilmreyni. Eru þau til mikillar prýði í umhverfinu. Ekki er ólíklegt, að tré þessi hafi Guðlaug Jónasdóttir gróðursett á sínum tíma en hún var mjög ötul við ræktun garðsins við húsið. Myndin af húsinu er tekin 19. janúar 2020 en myndin af reynitrjánum miklu við Glerárgötu 18 er tekin 28. ágúst 2020.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1941-1948. Fundur nr. 1044, 23. feb. 1946. Fundur nr. 1057, 28. júní 1946. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 7
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 235
- Frá upphafi: 436947
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 167
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll, afsakaðu að ég spyr um allt annað mál. Í vefmyndavélinni sést við Kaupvangsstræti 23 e-ð gráhvítt eða silfurlitt sem bílar á niðurleið virðast aka yfir eða framhjá. Geturðu sagt mér hvað þetta er?
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 9.9.2020 kl. 14:07
Sæl
Einhverra hluta vegna næ ég ekki að opna vefmyndavélina. En ég hef grun um að þarna sé um að ræða færanlega hraðahindrun, löng, ávöl málmstykki, boltuð niður í götuna tímabundið. Ekki er óalgengt að þetta sé sett niður að vori og tekið upp að hausti (eins og kartöflurnar ), sérstaklega á stöðum sem vitað er að menn vilja gefa í, t.d. upp Gilið.
Arnór Bliki Hallmundsson, 10.9.2020 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.