Hús dagsins: Glerárgata 18

Á meðal þess, sem Byggingarnefnd Akureyrar, tók fyrir á fundi sínum þann 23. febrúar P11909911946 var úthlutun tveggja lóða við austanverða Hörgárbraut (sem síðar varð Glerárgata). Syðri lóðina[Glerárgötu 16] fékk Skarphéðinn Guðnason en ytri lóð hlaut Guðrún Þórhallsdóttir. Fjórum mánuðum síðar var Þórhalli Antonssyni, föður Guðrúnar, veitt byggingarleyfi á lóðinni, „að því tilskildu, að rými sé nægt“. Ekki kemur fram nánari lýsing á fyrirhuguðu húsi. En teikningar Þórðar S. Aðalsteinssonar að húsinu munu þá hafa legið fyrir.

Glerárgata 18 er tvílyft steinsteypuhús á lágum grunni, með lágu valmaþaki. Norðurhluti götuhliðar skagar eilítið fram og í kverkinni á milli eru svalir til suðvesturs. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og einfaldir, lóðréttir póstar í gluggum.

Þórhallur Antonsson og Guðlaug Jónasdóttir, sem byggðu húsið höfðu áður verið bændur m.a. á Grund og Hrafnagili í Eyjafirði og Völlum í Svarfaðardal. Þórhallur var frá Finnastöðum í Eyjafirði en Guðlaug frá Bakka í Fljótum. Dóttir þeirra, Guðrún, sem fékk lóðina í febrúar 1946,  bjó líkast til ekki lengi í húsinu því árið 1947 fluttist hún til Reykjavíkur í myndlistarnám. Guðrún Þórhallsdóttir mun hafa verið fyrsta konan hérlendis til að ljúka flugprófi. Glerárgata 18 var frá upphafi tvíbýli og munu þau Þórhallur og Guðlaug hafa leigt neðri hæðina. Ef heimilisfanginu er flett upp á timarit.is birtast 45 niðurstöður, þar á meðal frá ljósmyndastofunni Myndveri, sem þarna hafði afgreiðslu snemma á áttunda áratug 20. aldar.  

Glerárgata 18 er reisulegt og traustlegt og í mjög góðri hirðu. Á lóðarmörkum erP8280971 steyptur veggur með járnavirki, sem sömu gerðar og svalahandrið, skemmtilegt samræmi þar. Húsakönnun hefur ekki verið unnin fyrir þetta svæði svo síðuhafi viti til, svo ekki liggur fyrir hvort húsið hafi varðveislugildi. Er það hins vegar persónulegt álit þess sem þetta ritar, að þessi skemmtilega röð steinhúsa frá miðri síðustu öld við fjölförnustu götu bæjarins ætti svo sannarlega skilið einhvers konar varðveislugildi. . Lóðin er gróin og vel hirt og ber þar mest á mjög svo gróskumiklum reynitrjám, silfurreyni og ilmreyni. Eru þau til mikillar prýði í umhverfinu. Ekki er ólíklegt, að tré þessi hafi Guðlaug Jónasdóttir gróðursett á sínum tíma en hún var mjög ötul við ræktun garðsins við húsið.  Myndin af húsinu er tekin 19. janúar 2020 en myndin af reynitrjánum miklu við Glerárgötu 18 er tekin 28. ágúst 2020. 

Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1941-1948. Fundur nr. 1044, 23. feb. 1946. Fundur nr. 1057, 28. júní 1946. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, afsakaðu að ég spyr um allt annað mál. Í  vefmyndavélinni sést við Kaupvangsstræti 23 e-ð gráhvítt eða silfurlitt sem bílar á niðurleið virðast aka yfir eða framhjá. Geturðu sagt mér hvað þetta er?

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 9.9.2020 kl. 14:07

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl

Einhverra hluta vegna næ ég ekki að opna vefmyndavélina. En ég hef grun um að þarna sé um að ræða færanlega hraðahindrun, löng, ávöl málmstykki, boltuð niður í götuna tímabundið. Ekki er óalgengt að þetta sé sett niður að vori og tekið upp að hausti (eins og kartöflurnar laughing), sérstaklega á stöðum sem vitað er að menn vilja gefa í, t.d. upp Gilið.  

Arnór Bliki Hallmundsson, 10.9.2020 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 21
  • Sl. sólarhring: 39
  • Sl. viku: 260
  • Frá upphafi: 420943

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 207
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband