5.10.2020 | 18:12
Hús dagsins: Grænagata 12
Grænagötu 12 reistu þeir Karl Friðriksson vegaverkstjóri og Valtýr Þorsteinsson útgerðarmaður eftir teikningum Konráðs Árnasonar. Munu þeir hafa selt íbúðirnar hverja í sínu lagi til annarra. Vorið 1958 fengu þeir lóðir nr. 12 og 14 við Grænugötu. Segir í Verkamanninum þ. 1. maí 1958, orðrétt:
Grænagata 12 veitt Karli Friðrikssyni vegaverkstj. og Grænagata 14 veitt Valtý Þorsteinssyni útgerðarmanni, með það fyrir augum, að þeir byggi sameiginlega á lóðum þessum sex íbúða hús, þrjár íbúðir hvor. Nokkurt þvarg hefur verið um úthlutun þessara lóða, þar sem hvor um sig, Karl og Valtýr, hafa sótt allfast að fá báðar lóðirnar, en bygginganefnd kaus að fara bil beggja með því að veita hvorum leyfi fyrir byggingu þriggja íbúða.
Niðurstaðan hefur verið að sú, að eitt hús væri reist í stað tveggja en í húsinu eru hins vegar ekki sex íbúðir heldur fimm, þrjár að austanverðu og tvær að vestanverðu. Vesturhluti fyrstu hæðar eru þvottahús og geymslur. Fullbyggt var húsið árið 1962. Hefur íbúðaskipan væntanlega haldist óbreytt frá upphafi.
Grænagata 12 er þrílyft steinsteypuhús með einhalla aflíðandi þaki. Á þaki er bárujárn, veggir múrsléttaðir og einfaldir póstar í gluggum. Stórir stofugluggar til suðurs og svalir við þá. Grænagata 12 er ekki ósvipuð að gerð lögun og fjölbýlishús sem nokkrum árum síðar í Skarðshlíð í Glerárþorpi og í Lundahverfi upp úr 1970, en er öll minni í sniðum. Þar eru blokkirnar margar hverjar með þremur stigagöngum og 7-8 íbúðir í hverjum stigagangi.
Grænagata 12 hefur alla tíð verið fjölbýlishús og h.u.b. óbreytt frá upphaflegri gerð. Fjölmargt heiðursfólk hefur búið þar um lengri eða skemmri tíma þessa tæpu sex áratugi. Á meðal fyrstu íbúa hússins má nefna þau Jón Kr. Níelsson og Petru Jónsdóttur, bæði fædd og uppalin á Árskógsströnd, hann á Birnunesi en hún m.a. á Stærra- Árskógi. Bjuggu þau hér um árabil, Jón til dánardægurs 1980 og Petra (d. 1993) lengi vel á eftir. Jón rak um árabil húsgagnaverslunina Kjarna við Skipagötu, ásamt Magnúsi Sigurjónssyni bólstrara. Var verslunin í Skipagötu 13, sem löngum var kennt við flóabátinn Drang, en rifið árið 1991.
Húsið er reisulegt og í mjög góðu standi. Þá er lóðin vel gróin og í góðri hirðu, þar er m.a. stórglæsileg nýleg verönd svo fátt eitt sé nefnt og vel hirt og ræktarleg reynitré. Grænagata 12 og umhverfi þess er til mikillar prýði í umhverfi sínu. Ekki er höfundi kunnugt um, að unnin hafi verið húsakönnun fyrir Grænugötu og varðveislugildi götumyndarinnar eða einstakra húsa metið þannig. Norðurgata 31, næsta hús austan við Grænugötu 1, er hins vegar á könnunarsvæði Húsakönnunar sem unnin var fyrir elsta hluta Oddeyrar fyrir um 30 árum og gefin út á bók og er þar metið með varðveislugildi sem hluti af heild. Það hús tekur raunar einnig þátt í götumynd Grænugötu. Ætli það væri þá bara ekki upplagt, að Grænugötuheildin hlyti varðveislugildi líka... Myndin er tekin þann 28. ágúst 2020.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. Sjá tengil í texta hér að ofan.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 5
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 422
- Frá upphafi: 440779
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 201
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.