18.11.2020 | 18:31
Hús dagsins: Geislagata 5
Geislagötu 5 reisti Kristján Kristjánsson bílasali (kallaður bílakóngur) árið 1952, eftir teikningum Gunnlaugs Halldórssonar. Hann fékk vorið 1951 leyfi til þess að reisa hús á þessum stað, 21x12m að stærð, allt að fimm hæða hátt. Hann mun hafa þurft að leita umsagnar m.a. eiganda næstu húsa og skipulagsyfirvalda. Bygginganefnd heimilaði bygginguna með fyrirvara um umsögn skipulagsyfirvalda, en fyrir lá, að Templarar sem áttu næsta hús norðan við, Hótel Norðurland, samþykktu bygginguna fyrir sitt leyti. Tæpum tveim árum síðar, eða í mars 1953, voru fullnaðarteikningar lagðar fram en endanlega hæð hússins, sem þá var risið, var raunar óákveðin.
En stórhýsi Kristjáns bílakóngs varð ekki fimm hæðir heldur þrjár og er að mestu leyti óbreytt frá upphafi; þriggja hæða steinsteypuhús með flötu eða aflíðandi þaki. Veggir eru múrsléttaðir, dúkur er á þaki og gluggar flestir póstlausir en síðir verslunargluggar á jarðhæð. Á framhlið er lítil anddyrisbygging úr gleri.
Í upphafi var húsið reist sem bílasala og skrifstofuhús, höfuðstöðvar fyrirtækja Kristjáns Kristjánssonar. Elstu auglýsingar, sem timarit.is finnur um Geislagötu 5 eru einmitt frá nóvember og desembermánuði 1953, þar sem auglýst er ný bílasala, Bílasalan Hf. Ekki virðist þar hafa verið um bílasölu í eiginlegum skilningi að ræða, heldur eru auglýstir þarna til sölu varahlutir í Ford, en einnig þvottavélar, kæliskápar og hrærivélar; nýmóðins tæki um miðja síðustu öld. Í Alþýðumanninum, 8. des. 1953 segir orðrétt: VEGLEG BÚÐ Bílasalan h.f. hefir opnað veglega búð í Geislagötu 5, hinni myndarlegu byggingu Kristjáns Kristjánssonar, forstjóra BSA. Verzlun þessi verzlar með bifreiðavarahluti, kæliskápa og ýmis rafurmagns-heimilistæki. Einnig skrifstofuáhöld. Búðarplássið er stórt og mjög vistlegt. Á sjötta áratugnum var einnig starfræktur þarna tískufatamarkaður, sem hét einfaldlega Markaðurinn Þá er þetta hús í hugum margra óneitanlega tengt hinni valinkunnu húsgagnaframleiðslu Valbjörk, en verslun fyrirtækisins var um nokkurt skeið staðsett á þriðju hæð hússins. Valbjarkarhúsgögn prýddu flest heimili á Akureyri og nærsveitum upp úr miðri síðustu öld og prýða mörg þeirra enn; á þeim árum var ævinlega um að ræða vandaða smíði í húsgögnum, sem gerð var til þess að endast.
Kristján Kristjánsson seldi húsið árið 1961. Grípum niður í frásögn Alþýðublaðsins þ. 15. sept. 1961:
BÚNAÐARBANKINN hefur keypt stórhýsi Kr. Kristjánssonar, Geislagötu 5, á Akureyri, og er .ætlunin að útibúi Búnaðarbankans þar færi þangað starfsemi sína. Kristján byggði Geislagötu 5 fyrir einum 10 árum, en síðan fluttust viðskipti hans hingað til Rvíkur í stórum mæli. Hann hafði og hefur umfangs mikinn rekstur á Akureyri en virðist nú ætla að selja flest þar. [...] Útibú Búnaðarbankans á Akureyri er nú til húsa í Strandgötu 5 og mun húsnæðið þykja orðið lítið og óhentugt. Alþýðublaðinu hefur ekki, tekizt að afla sér upplýsinga um söluverðið á hinu nýja húsnæði útibúsins, Geislagötu 5, sem er fjögurra hæða [svo; húsið er sannarlega þriggja hæða] og með stærstu húsum Akureyrar, ef ekki stærst fyrir ut an verksmiðjubyggingar. Blaðið hefur heyrt að söluverðið hafi numið fimm milljónum, en veit engar sönnur á því. Fasteignaverðið er rúm þrjú hundruð þrjátíu og fjögur þúsund og óhætt að margfalda það með fimm, en þá kemur út rúm ein og hálf milljón sem söluverð, en að sjálfsögðu hefur verð hússins verið hærra. Húsið stendur á góðum stað, nærri Ráðhústorgi og bætir úr skák, að í framtíðinni er talið að Geislagatan verði eins konar Laugavegur þeirra Akureyringa í framtíðinni.
Hvort Geislagatan varð einhvern tíma, eða er, sambærileg við Laugaveg skal ósagt látið hér. Margir sjá þó eflaust samsvörum í nærliggjandi götum Miðbæjarins við verslunargötur Reykjavíkur, kannski einna helst þó í ysta hluta Hafnarstrætis og Skipagötu/Ráðhústorgi. En nóg um það. Geislagata 5 var í tæpa sex áratugi aðalútibú Búnaðarbankans - síðar KB og Arionbanka eða til vorsins 2019. Þá fluttits útibúið á Glerártorg sem vill svo til, að er einmitt að stofni til byggt á hluta umræddra verksmiðjubygginga, sem minnst er á í greininni hér að ofan.
Geislagata 5 er reisulegt hús og í mjög góðu standi, hefur enda alla tíð hlotið gott viðhald. Jafnvel þótt húsið sé hvorki stórbrotið í útliti né það prýði mikið skraut er það engu að síður eitt af kennileitum Miðbæjarsvæðisins. Í Húsakönnun 2014 er það sagt hafa mikið gildi fyrir götumynd Geislagötu og Hólabrautar, en vesturstafn hússins snýr að síðarnefndu götunni. Þar er varðveislugildi hússins ekki talið verulegt. Þegar þetta er ritað, stendur húsið að mestu ónotað en bíður nýrra eigenda og nýrrar starfsemi. Kannski verður þarna hótel, kannski íbúðir eða eitthvað allt annað. Hver veit, nema ein hæð eða tvær til viðbótar verði einhvern tíma byggðar ofan á húsið, og húsið nái þeim hæðum sem Kristján bílakóngur Kristjánsson ætlaði í upphafi. Myndin er tekin þann 19. janúar 2020.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1948-1957. Fundur nr. 1136, 4. maí 1951. Fundur nr. 1166, 6. mars 1953. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.4.): 39
- Sl. sólarhring: 138
- Sl. viku: 370
- Frá upphafi: 445348
Annað
- Innlit í dag: 36
- Innlit sl. viku: 250
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.