12.12.2020 | 17:24
Hús dagsins: Hafnarstræti 81
Nyrst við Hafnarstrætið, undir bröttum brekkubrúnum standa stórhýsi, fimm til sjö hæða há, í röð allt út undir Ráðhústorg. Syðst í þessari röð steinsteyptra stórhýsa er Hafnarstræti 81, en húsið stendur norðan og neðan Sigurhæða og Akureyrarkirkju.
Húsið er byggt í áföngum á árunum 1944-47, (Steindór Steindórsson segir eldri hlutann byggðan 1941). En húsið er í raun tvö sambyggð hús, það syðra reistu þeir Jón Oddsson, Kári Hermannsson og Sigurbjörn Árnason en nyrðra húsið Björn Halldórsson og Samúel Kristbjarnarson. Það var 29. september 1944, sem þeir Jón, Kári og Sigurbjörn fengu lóðina nr. 81A úthlutaða. Tveimur vikum síðar fékk Björn Halldórsson leigða lóð, sem sögð var næst sunnan við Jón Oddsson. Vorið 1945 fá þeir Jón, Kári og Sigurbjörn leyfi til að byggja hús. Þeir vildu, og fengu að reisa, hús úr steinsteypu með járnbentum loftum og stigum, þrjár hæðir á háum kjallara að grunnfleti 14x10,5m. Skúrþak úr timbri, járnklætt. Í mars 1946 fengu þeir Björn Halldórsson og Samúel Kristbjarnarson síðan byggingaleyfi á sinni lóð. Ekki er vikið að lýsingu þeirra hús en fram kemur, að byggingarleyfi þeirri er veitt á grundvelli staðfests samþykkis þeirra Leonards Kristjánssonar og Alberts Kristjánssonar á lóðarmörkum. E.t.v. áttu þeir lóðina Hafnarstræti 79, en það kemur ekki fram í gögnum Bygginganefndar. Teikningarnar að Hafnarstræti 81 gerði Guðmundur Gunnarsson. Frá upphafi var gert ráð fyrir starfsemi ýmis konar á jarðhæð og skrifstofum og íbúðum á efri hæðum.
Hafnarstræti 81 er steinhús í módernískum stíl, fimm hæðir alls, en efstu tvær hæðirnar eru eilítið inndregnar og svalir á bríkinni milli þriðju og efri hæða. Fjölmargar svalir eru á húsinu og djúpt port á bakvið. Einfaldir lóðréttir póstar eru í flestum gluggum.
Akureyrarbær eignaðist húsið, eða hluta þess, fljótlega eftir byggingu þess. Þegar heimilisfanginu Hafnarstræti 81 er flett upp á timarit.is birtast um 1500 niðurstöður, þar sem eitthvað hefur verið auglýst í húsinu. Í lok árs 1947 er ný og glæst húsakynni Bókabúðar Rikku auglýst þarna., auk þess sem skrifstofa Flugfélagsins Loftleiða var þarna til húsa um svipað leyti. Árið 1955 er Raftækjavinnustofan Elding þarna til húsa en það sama ár flutti Náttúrugripasafnið á Akureyri í húsið og var þarna til húsa til 1996. Fram að því sýningarsalur á jarðhæð sunnanmegin. Nú mun Náttúrugripasafnið að mestu geymt í skúffum og kössum og væri óskandi, að það kæmist fyrir sjónir almennings, líkt og í Hafnarstræti 81 forðum tíð.
Önnur merk menningarstofnun, Amtsbókasafnið, var þarna til húsa um árabil, eða frá því um 1950 til 1968. Var það á annarri hæð hússins, en um var að ræða bráðabirgðahúsnæði þar til langþráð nýbygging risi af grunni en sú bygging hafði verið í bígerð frá fjórða áratugnum. En það var ekki fyrr en 1968 að Amtsbókasafnið flutti í glæsta nýbyggingu að Brekkugötu 17, þar sem það er enn.
Þriðja merka menningarstofnunin, sem átt hefur heimili að Hafnarstræti 81 er Tónlistarskólinn á Akureyri. Hann var hér til húsa á efri hæðum hússins í rúm 30 ár eða frá 1972 til 2003. Á árunum 2005-06 fór fram gagnger endurbygging hússins, þar sem það var endurinnréttað og byggt upp sem fjölbýlishús. Var þá byggt við fimmtu hæð hússins. Þær breytingar voru gerðar eftir teikningum Haraldar S. Árnasonar. Nú er húsið fjölbýli með 25 íbúðum.
Hafnarstræti 81 er reisulegt og stórbrotið hús, líkt og gengur og gerist með hús af þessari stærð sem byggð eru í mörgum áföngum. Húsið sem er ráðandi í umhverfi sínu; eitt af kennileitum Miðbæjarins er í mjög góðri hirðu og snyrtilega frágengið. Er það enda sem nýtt, þar eð það var nánast endurbyggt frá grunni fyrir hálfum öðrum áratug. Það er ekki metið með sérstakt varðveislugildi í Húsakönnun um Drottningarbrautarreit árið 2012 og eru þar raunar gerðar athugasemdir við viðbyggingu á fimmtu hæð. Myndin er tekin 17. ágúst 2020.
Heimildir:
Akureyrarbær, Teiknistofa Arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar. 2012. Drottningarbrautarreitur-Hafnarstræti- Húsakönnun 2012. Minjastofnun. Pdf-skjal aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Husakonnun-Drottningarbrautarreitur.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 993, 29. sept. 1994. Fundur nr 995, 14. okt. 1944. Fundur nr. 1013, 4. maí 1945. Fundur nr. 1046, 8. mars 1946. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.3.): 3
- Sl. sólarhring: 44
- Sl. viku: 301
- Frá upphafi: 443204
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 129
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll. Þegar maður horfir niður á Ráðhústorg á loftkortinu, stendur þar: óútvísað land. Hver ætli sé hugsunin að baki þessu? Skringilegt.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 14.12.2020 kl. 15:52
Sæl. Það er ekki gott að segja...spurning hvort þetta hafi með lóðaskipulag að gera, svo ég giski á eitthvað.
Arnór Bliki Hallmundsson, 17.12.2020 kl. 12:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.