15.5.2021 | 12:05
Hús dagsins: Norðurgata 44
Norðurgötu 44 reisti Þorsteinn Sigurbjörnsson árið 1946. Hann fékk lóðina og leyfi til þess að reisa hús á tveimur hæðum úr steinsteypu með valmaþaki úr timbri, að stærð 10,7x8,2m. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson.
Norðurgata 44 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Veggir eru með steiningarmúr, bárujárn á þaki og einfaldir, lóðréttir póstar í gluggum. Austanmegin á suðurhlið er útskot með svölum til suðvesturs á efri hæð.
Þorsteinn Sigurbjörnsson, sem reisti húsið var fæddur á Fagrabæ í Grýtubakkahreppi og vann lengst af sem kokkur á hinum ýmsu skipa. Hann var kvæntur Sigríði Guðnadóttur frá Meðalheimi á Svalbarðsströnd. Þau bjuggu hér í um hálfa öld, en Þorsteinn lést 1994 og Sigríður árið 2001. Húsið er að mestu leyti óbreytt frá upphafi, en það er ekki óalgengt þegar sömu eigendur voru frá upphafi um áratugaskeið. Í upphafi virðist húsið hafa verið einbýlishús en nú eru í því tvær íbúðir, ein á hvorri hæð.
Norðurgata 44 er látlaust en glæst hús og í mjög góðri hirðu. Á því er t.d. nýlegt þakjárn. Suðvestanvið húsið er verklegur sólpallur úr timbri og á lóðarmörkum er steyptur verkur með járnavirki, sem móðins var um miðja 20. öld og eru mikil prýði. Höfundi er ekki kunnugt um húsakönnun hafi verið unnin fyrir þetta svæði eða að húsið hafi varðveislugildi. Af öðrum mannvirkjum á lóðinni má nefna bílskúr á norðausturhorni, sem Þorsteinn og Sigríður byggðu um 1962 en bílskúrinn teiknaði Páll Friðfinnsson. Allt er húsið, umhverfi þess og lóð vel frágengið og snyrtilegt og til mikillar prýði. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1045, 1. mars 1946. Fundur nr. 1051, 26. apríl 1946. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 508
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 354
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alltaf batnar það! Nú á að byggja mörg ný hús við Drottningarbraut. Ekki má gleyma sjóvarnargarði, því Grænlandsjökull o.fl. eru alltaf að bráðna meira og meira, og það hækkar í sjónum.
P.S. Borgarbúar hafa alltaf hlegið að Akureyringum fyrir að kalla götuna þetta.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 19.5.2021 kl. 13:11
Já það stendur víða til að byggja. Fyrirhugaðar framkvæmdir á Drottningarbrautarreit myndi ég segja að væru sannkölluð hátíð í samanburði við herlegheitin sem fyrirhuguð eru á Tanganum og við Spítalaveg. Varnargarðar eru vissulega eitthvað sem huga þarf að í framtíðinni, hvar sem byggð stendur við sjávarmál, ekki lækkar í sjónum og svo getur nú gefið ansi vel á þetta tiltekna svæði í ofsafengnum austanáttum. Drottningarbraut er kannski ekki hógværasta götunafn á landinu, viðurkenni það, en það er eflaust eitt og annað á Höfuðborgarsvæðinu sem Akureyringar hlæja að...
.
Arnór Bliki Hallmundsson, 19.5.2021 kl. 18:19
Sæll. Það er búið að byggja yfirþyrmandi mikið af ljótum stórhýsum í miðbæ Rvíkur, skyggja fyrir útsýnið á Snæfellsjökul, Akrafjall og Skarðsheiði. Og aldrei hafa íbúar verið spurðir um álit, hvað þá að við höfum fengið einhverju að ráða. Það er ekki hlæjandi að þessu, miklu meiri ástæða til að gráta.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 20.5.2021 kl. 09:36
Já, tek heilshugar undir það, sannarlega frekar grátlegt en hlægilegt þegar gömul og rótgróin byggð er múruð inni og byrgt fyrir útsýni með háhýsum og stórkarlalegum byggingum. Hvar svo sem það er. Tek fram, að ég er enginn hatursmaður háhýsa eða stórra bygginga. Mismunandi byggingargerðir passa einfaldlega misjafnlega vel á ólíkum stöðum.
Arnór Bliki Hallmundsson, 21.5.2021 kl. 14:28
Byggingaverktakar fengu að vaða uppi í 101 Rvík, með leyfi þáverandi borgarstjórnar (sem þóttist vera til vinstri). Fyrir nokkrum árum voru hér auglýsingar um Druslugönguna; plaköt með myndum (einn á hverju) af nokkrum þekktum körlum, þ.á.m. Degi borgarstjóra, með áletruninni: Ég er drusla. Einmitt.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 21.5.2021 kl. 16:55
Vonandi heyra svona "gloríur" í skipulagsmálum að mestu sögunni til, hvort sem er í Reykjavík, á Akureyri eða annars staðar...
Arnór Bliki Hallmundsson, 23.5.2021 kl. 10:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.