Hús dagsins: Norðurgata 44

Norðurgötu 44 reisti Þorsteinn Sigurbjörnsson árið 1946. P4220985Hann fékk lóðina og leyfi til þess að reisa hús á tveimur hæðum úr steinsteypu með valmaþaki úr timbri, að stærð 10,7x8,2m. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson.

Norðurgata 44 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Veggir eru með steiningarmúr, bárujárn á þaki og einfaldir, lóðréttir póstar í gluggum. Austanmegin á suðurhlið er útskot með svölum til suðvesturs á efri hæð.

Þorsteinn Sigurbjörnsson, sem reisti húsið var fæddur á Fagrabæ í Grýtubakkahreppi og vann lengst af sem kokkur á hinum ýmsu skipa. Hann var kvæntur Sigríði Guðnadóttur frá Meðalheimi á Svalbarðsströnd. Þau bjuggu hér í um hálfa öld, en Þorsteinn lést 1994 og Sigríður árið 2001.  Húsið er að mestu leyti óbreytt frá upphafi, en það er ekki óalgengt þegar sömu eigendur voru frá upphafi um áratugaskeið. Í upphafi virðist húsið hafa verið einbýlishús en nú eru í því tvær íbúðir, ein á hvorri hæð.

Norðurgata 44 er látlaust en glæst hús og í mjög góðri hirðu. Á því er t.d. nýlegt þakjárn. Suðvestanvið húsið er verklegur sólpallur úr timbri og á lóðarmörkum er steyptur verkur með járnavirki, sem móðins var um miðja 20. öld og eru mikil prýði. Höfundi er ekki kunnugt um húsakönnun hafi verið unnin fyrir þetta svæði eða að húsið hafi varðveislugildi. Af öðrum mannvirkjum á lóðinni má nefna bílskúr á norðausturhorni, sem Þorsteinn og Sigríður byggðu um 1962 en bílskúrinn teiknaði Páll Friðfinnsson. Allt er húsið, umhverfi þess og lóð vel frágengið og snyrtilegt og til mikillar prýði. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1045, 1. mars 1946. Fundur nr. 1051, 26. apríl 1946. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf batnar það! Nú á að byggja mörg ný hús við Drottningarbraut. Ekki má gleyma sjóvarnargarði, því Grænlandsjökull o.fl. eru alltaf að bráðna meira og meira, og það hækkar í sjónum.

P.S. Borgarbúar hafa alltaf hlegið að Akureyringum fyrir að kalla götuna þetta.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 19.5.2021 kl. 13:11

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Já það stendur víða til að byggja. Fyrirhugaðar framkvæmdir á Drottningarbrautarreit myndi ég segja að væru sannkölluð hátíð í samanburði við herlegheitin sem fyrirhuguð eru á Tanganum og við Spítalaveg. Varnargarðar eru vissulega eitthvað sem huga þarf að í framtíðinni, hvar sem byggð stendur við sjávarmál, ekki lækkar í sjónum og svo getur nú gefið ansi vel á þetta tiltekna svæði í ofsafengnum austanáttum. Drottningarbraut er kannski ekki hógværasta götunafn á landinu, viðurkenni það, en það er eflaust eitt og annað á Höfuðborgarsvæðinu sem Akureyringar hlæja að...wink.  

Arnór Bliki Hallmundsson, 19.5.2021 kl. 18:19

3 identicon

Sæll. Það er búið að byggja yfirþyrmandi mikið af ljótum stórhýsum í miðbæ Rvíkur, skyggja fyrir útsýnið á Snæfellsjökul, Akrafjall og Skarðsheiði. Og aldrei hafa íbúar verið spurðir um álit, hvað þá að við höfum fengið einhverju að ráða. Það er ekki hlæjandi að þessu, miklu meiri ástæða til að gráta.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 20.5.2021 kl. 09:36

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Já, tek heilshugar undir það, sannarlega frekar grátlegt en hlægilegt þegar gömul og rótgróin byggð er múruð inni og byrgt fyrir útsýni með háhýsum og stórkarlalegum byggingum. Hvar svo sem það er. Tek fram, að ég er enginn hatursmaður háhýsa eða stórra bygginga. Mismunandi byggingargerðir passa einfaldlega misjafnlega vel á ólíkum stöðum.   

Arnór Bliki Hallmundsson, 21.5.2021 kl. 14:28

5 identicon

Byggingaverktakar fengu að vaða uppi í 101 Rvík, með leyfi þáverandi borgarstjórnar (sem þóttist vera til vinstri). Fyrir nokkrum árum voru hér auglýsingar um Druslugönguna; plaköt með myndum (einn á hverju) af nokkrum þekktum körlum, þ.á.m. Degi borgarstjóra, með áletruninni: Ég er drusla. Einmitt.

 

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 21.5.2021 kl. 16:55

6 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Vonandi heyra svona "gloríur" í skipulagsmálum að mestu sögunni til, hvort sem er í Reykjavík, á Akureyri eða annars staðar... 

Arnór Bliki Hallmundsson, 23.5.2021 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 72
  • Sl. viku: 303
  • Frá upphafi: 420276

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 206
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband