Hús dagsins: Ægisgata 18

Sumarið 1943 hugðust tveir stórhuga ungir menn,P5011000 Baldur Líndal og Þorsteinn Gunnarsson fá þrjár lóðir við Ægisgötu og reisa þar hús. Ekki gekk það eftir, en þeir fengu þó eina lóð, nr. 16, og reistu þar hús. Lóðina fengu þeir þann 30. júlí. Rúmum mánuði síðar eða 10. september var hinum tveimur lóðunum norðan úthlutað til tveggja manna, þeirra Pálma S. Ólafssonar og Ottós Gottfreðssonar. Sá síðarnefndi fékk nr. 18 en Pálmi S. Ólafsson, sem síðar var þekktur fyrir blaðasölu á vagni, fékk nr. 20.

Húsin sem þeir sóttu um að fá að reisa áttu að vera byggð úr timbri, ein hæð með háu risi, þak klætt asbesti og veggir múrhúðaðir. Þeir hugðust semsagt reisa múrhúðuð timburhús. Bygginganefnd samþykkti ekki fyrirliggjandi teikningu að húsunum. Það kemur ekki fram í fundargerð bygginganefndar en höfundur telur líklegast, að hús með háu risi hafi ekki verið vel séð við Ægisgötu, þar sem öll hús voru- og eru- með valmaþökum. En húsin risu, og eru sannarlega með valmaþökum. Líklega eru þau einu timburhúsin við Ægisgötuna. Upprunalegar teikningar að húsinu eru ekki aðgengilegar á kortagagnagrunni map.is en þar er að finna teikningar Antons Arnar Brynjarssonar frá 1993, þegar gerðar voru breytingar á húsinu.

Ægisgata 18 er einlyft timburhús, klætt einhvers konar múrplötun, mögulega steníplötum. Bárujárn er á þaki og krosspóstar í gluggum. Á bakhlið er þríhyrnt útskot, forstofubygging og sólskáli úr gleri á suðvesturhorni. Þess má geta hér, að lýsingar höfundar á „Húsum dagsins“ byggjast að öllu jöfnu á nokkurs konar sjónrænu mati frá götu.  

Ottó Gottfreðsson og Pálmi Ólafsson voru hálfbræður, sammæðra. Þeir voru framan úr Saurbæjarhreppi en móðir þeirra, Hólmfríður Bergvinsdóttir fór þar á milli bæja og tók að sér vinnu við saumaskap. Ottó starfaði m.a. á skrifstou Rafveitu Akureyrar. Ottó og eiginkona hans, Aðalheiður Halldórsdóttir frá Siglufirði bjuggu hér um áratugaskeið eða fram um 1990. Árið 1993 fékk húsið nokkra yfirhalningu, m.a. var byggður við það sólskáli og fékk húsið þá það útlit sem það nú hefur. Líklega er núverandi klæðning og gluggar frá svipuðum tíma.

Ægisgata 18 er snyrtilegt og glæst hús og í mjög góðri hirðu, enda allt tekið í gegn fyrir tæpum 30 árum og hefur greinilega verið vel við haldið síðan. Verklegir krosspóstar og sólskálinn og setja á húsið ákveðinn svip. Lóðin er vel hirt og prýdd blómabeðum upp við hús og ýmsum runnum. Ein íbúð er í húsinu, líkt og gengur og gerist með nær öll hús við Ægisgötuna. Ekki veit síðuhafi til þess, að húsakönnun hafi verið unnin um þennan hluta Oddeyrar en eitt er víst: Ef sá möguleiki væri fyrir hendi, að friðlýsa heilar götur og götumyndir stæði Ægisgatan svo sannarlega undir því. Leitun er að jafn heilsteyptri og samstæðri götumynd í þetta langri götu en við hana standa 30 hús. Myndin er tekin 1. maí 2021.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 951, 30. júlí 1943. Fundur nr. 956, 10. sept. 1943 Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 37
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 317
  • Frá upphafi: 420290

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 214
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband