15.12.2021 | 13:49
Kannski ekki svo slæmt...
Einhverjir kunna að hvá við að heyra minnst á sorpbrennslu- þetta hljóti nú að tilheyra fortíðinni og sé á mengandi og subbulegt. En er urðun endilega eitthvað skárri ? Auðvitað skiptir máli að sorp sé flokkað í hvívetna (og að hið flokkaða sorp sé endurunnið- safnist ekki fyrir geymslum í Svíþjóð eða öskuhaugum í öðrum heimsálfum!), þannig að sem allra minnst endi í urðun eða brennslu.
Einhvern tíma sá ég flennifyrirsögn í tímaritinu Lifandi vísindum "Við verðum afmáð úr sögunni" sem vísar til skammlífis stafrænna gagna samanborið við skinnhandrit og bókrollur sem varðveist hafa í aldir og jafnvel þúsaldar. (Finn þetta ekki á timarit.is) Þetta er rétt hvað varðar umrædd gögn en aldeilis ekki hvað varðar úrgangsefni. Flest það sorp sem fellur til og er urðað er nefnilega þeim eiginleikum gætt, að það verður til staðar í jarðveginum næstu aldir ef ekki þúsundir ára. En flest þessi efni brotna eitthvað örlítið niður og alls konar ógeðsefni seytla af því í jarðveg, grunnvatn og lífríkið. Og svo auðvitað metan, sem er hátíð hjá örplasti og efnum sem finnast í gerviefnum sl. áratuga, en engu að síður um 70 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur.
Þá hlýtur eiginlega að vera skömminni skárra að sorpinu sé "eytt" af yfirborði jarðar með hátæknibrennslu. Ég veit ekki nákvæmlega hvað átt er við með hátæknibrennslu en væntanlega er um ræða sérlega hátt hitastig- sem dregur úr myndun skaðlegra efna og sjálfsagt yrði til staðar öflugur hreinsibúnaður. Því það er auðvitað ekki svo, að reykur úr svona brennslu sé eitthvert heilsubótarefni né heldur að skaðlegu efnin hverfi við brennsluna. Efni verður nefnilega aldrei eytt heldur breytir aðeins um form.
Sorpbrennsla framleiðir líka orku. Það er í sjálfu sér ákveðið form af endurvinnslu; ef við nefnum plast sem dæmi. Því af því sorpi, sem urðað er í dag má örugglega áætla, að plast telji einhver tugi prósenta. Plast er auðvitað ekkert annað en olía. Ef það er mögulega hægt að brenna plasti sem ekki er hægt að endurvinna er auðvitað skárra að sé gert í stað þess að ný olía sé sótt einhverja kílómetra í jarðskorpuna og svo flutt aðra þúsundir kílómetra á áfangastað. Auðvitað er æskilegt að plast sé endurunnið en hitt hlýtur að vera skárri kostur að því sé brennt til orkuvinnslu en að það sé urðað, brotni niður og safnist fyrir höfum og jarðvegi. Örplast er líklega með stærri umhverfisslysum. Brennsla, með réttu hitastigi og hreinsibúnaði, að ekki sé minnst á að hún framleiði orku hlýtur þannig í öllu falli að vera skárri en urðun. Lesendur mega ekki misskilja sem svo, að ég telji sorpbrennslu einhverja allsherjar lausn á förgun úrgangs. Svo það sé sagt, er auðvitað best, að allt sé endurunnið sem mögulega hægt er- (Jafnvel enn betra, að dregið sé úr neyslu og umbúðanotkun...)
Brennsla álitin betri kostur en urðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 19
- Sl. sólarhring: 58
- Sl. viku: 510
- Frá upphafi: 436905
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 341
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll. Ég sé að það á að leggja niður fótboltavöllinn milli Glerárgötu og Brekkugötu og byggja þar. Þá verður því líka hætt að reykspóla þar á Bíladögum. Ég valdi mér gistingu í Brekkug.27 um árið, til að vera fjarri miðbænum, þegar ég kom við á Ak. þessa daga. En ég hafði komið mér úr öskunni í eldinn, því mestu lætin voru einmitt á vellinum, en að vísu bara eitt kvöld.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 15.12.2021 kl. 19:13
Sæl. Það eru uppi hugmyndir um uppbyggingu á Akureyrvelli, já. Á eflaust eftir að verða verulega umdeilt enda á völlurinn sér langa sögu. En hvað spólið varðar, þá er til allrar lukku löngu búið að flytja allt slíkt úr þéttbýlinu, á athafnasvæði Bílaklúbbsins við Hlíðarfjallsveg.
Arnór Bliki Hallmundsson, 16.12.2021 kl. 19:16
Þetta er a.m.k. miklu betri og öruggari staður til að byggja og búa á en Tónatröð. Engin hætta á skriðum eða vatnsflóðum þarna.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 17.12.2021 kl. 15:55
Hið besta byggingarland og staðsetningin gæti tæpast verið betri, held að fáir staðir á Akureyri séu verri en Tónatröð til byggingar á tröllauknum fjölbýlishúsum.
Arnór Bliki Hallmundsson, 17.12.2021 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.