Annar brúapistill: Eyjafjarðará

Í síðustu færslu tók ég fyrir Glerá og allar brýrnar sem yfir hana liggja, en þær eru æði margar eða raunar svo margar að ef þeim væri dreift með jöfnu millibili væru aðeins 1,5km á milli þeirra. Hins vegar er óvíst að þetta geri hana að mest brúuðu á landsins miðað við lengd. Eflaust má víða um land finna litlar lækjarsprænur með hærra "brúarhlutfalli" ef svo mætti að orði komast. Þá komum við að skilgreiningaratriði hvað ætti að telja á eða læk og jafnvel hvað ætti að kalla brú. Ekki fer ég nánar út í sálma hér. En í beinu framhaldi af brúapistli um Glerá er eðlilegt að taka fyrir annað vatnsfall sem rennur í nágrenni Akureyrar. Reyndar er þetta vatnsfall ekki nema að örlitlu leyti innan við sveitarfélagsmarka Akureyrar en neðstu 3km af þessu fljóti, sem er alls 60km renna þar um. Þarna á ég að sjálfsögðu við Eyjafjarðará. Á henni eru einnig nokkuð margar brýr, sumar aflagðar og sumar í fullri notkun.  Byrjum neðst.

Það má kannski deila um hvort Leiruvegur, þjóðvegur nr. 1 og brúin á honum liggi yfir Eyjafjarðaránna eða fjörðinn sjálfan en ég ætla að miða við ánna. Í hugum margra liggja eflaust mörkin milli fjarðar og ár við veginn. ( Hugsa reyndar að fæstir séu neitt að pæla í þessu yfirhöfuð Woundering) En þar er komin ein brú. Gamli þjóðvegurinn sunnan flugvallar leggur til einar þrjár brýr en þær eru komnar vel til ára sinna, þó ekki sé mér kunnugt um byggingarár þeirra. Þar með eru brýrnar orðnar fjórar. Skammt sunnan Hrafnagils liggur síðan Miðbrautin. Það er eftir því sem ég kemst næst nýjasta brúin yfir Eyjafjarðará, byggð um 1988. Þó er hún einbreið eins og raunar allar brýr yfir ánna utan Leirubrú. Sjötta brúin er við Melgerðismela, lítið eitt framan við Fellshlíð er brú ætluð hestamönnum. Til móts við Möðruvelli (austanmegin), 26km frá Akureyri er síðan önnur brú. Kallast það stór Eyjafjarðarhringur þegar farið er frá Akureyri og yfir þá brú og aftur til baka hinu megin, en lítill ef farið er yfir Miðbraut. Þá eru brýrnar orðnar sjö. Næst er ansi skemmtileg gömul bogabrú, byggð 1933, kölluð Hringmelsbrú. Er hún við bæinn Sandhóla um 30km framan Akureyrar. Níunda brúin er um 7km sunnar, en það er frumstæð göngubrú rétt undir hólaþyrpingunni við Hólavatn við merki Ártúns og Skáldstaða (vestanmegin). Sunnan undir hólunum er síðan brú fyrir bílaumferð. Sú brú og áðurnefnd bogabrú loka síðan um 20km hring fremst í firðinum, sem ég myndi kalla Hólahring og er það stærsti Eyjafjarðarhringurinn ef sá hringur er tekin til viðbótar við þann stóra. Ég hefði reyndar kallað þann hring, stóra Eyjafjarðarhringinn og Hólahring Eyjafjarðaráttuna. Sú leið er alls um 100km og skal eindregið mælt með bíltúrum þessar hringleiðir fyrir hvern þann sem heimsækir Akureyri eða Eyjafjarðarsveitir. Fremsta brúin er á heimreiðinni að bænum Halldórsstöðum og Tjörnum sem standa báðir austanmegin um 46km frá Akureyri. Sú brú var reist 1968 og mun hafa leyst af tvær brýr sem voru á sitt hvorri heimreiðinni. Þannig er heildarfjöldi brúa í byggð yfir Eyjafjarðará 11. Ekki veit ég hvort fleiri brýr leynast frammi á Eyjafjarðardal en ef einhver hefur upplýsingar um slíkt eru þær vel þegnar.

Sú heimild sem ég studdist við í þessum pistli, varðandi byggingarár brúnna o.þ.h. er bókin Byggðir Eyjafjarðar 1990, gefin út af Búnaðarsambandi Eyjafjarðar 1993.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Berðu föður þínum kveðju mína, hann leystu gátuna um Dældir...var að sjá emailið frá honum í kvöld. Ég hef barist við undarlega tölvubilun, sum email skiluðu sér ekki.

Ragnheiður , 12.10.2009 kl. 22:50

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Skila kveðjunni. Takk fyrir innlitið.

Arnór Bliki Hallmundsson, 13.10.2009 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 64
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 344
  • Frá upphafi: 420317

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 236
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband