28.10.2021 | 15:39
Hús dagsins: Ránargata 31
Ránargötu 31 reistu þeir Þór Steinberg Pálsson og Jóhannes Hjálmarsson árið 1954. Þeir fengu lóðina og byggingarleyfið þá um vorið en voru hins vegar gerðir afturreka með þá teikningu, sem þeir lögðu fram. Skyldu þeir lækka þak í 2 metra og að aðalstigi væri samkvæmt fyrirmælum byggingasamþykktar. Brugðust þeir skjótt við og lögðu fram nýja teikningu, en teikningarnar gerði Páll Friðfinnsson. Þess má geta, að hann var faðir Steinbergs.
Ránargata 31 er tvílyft steinhús með tiltölulega háu valmaþaki. Veggir eru með rauðleitum steiningarmúr, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar í flestum gluggum. Útskot eða inngöngu- og stigaálma er til norðurs en á suðurhlið er mjótt, skástætt útskot vestanmegin og bogadregnar svalir til austurs áfastar því.
Steinberg Pálsson, húsasmiður, sem fæddur var í Glerárþorpi árið 1933 var aðeins 21 árs þegar þeir Jóhannes byggðu húsið. Sá síðarnefndi var ekki gamall heldur eða 24 ára en Jóhannes Ingólfur Hjálmarsson var fæddur árið 1930 á Þórshöfn. Jóhannes stundaði sjómennsku um árabil en eftir að í land kom rak hann Smurstöð Shell og stundaði síðar ýmis verkamannastörf. Jóhannes var mjög virkur í hinum ýmsu félagasamtökum og einn af hörðustu Þórsurum bæjarins, kjörin heiðursfélagi þar 2005. Steinberg bjó ekki mörg ár hér, en árið 1960 byggði hús við Kringlumýri á Ytri Brekkunni og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni um áratugaskeið, raunar allt til æviloka 2016. Á timarit.is fer ekki mörgum sögum af Ránargötu 31, aðeins 8 niðurstöður í Degi og ein einasta í Íslendingi. Hins vegar birtast 16 niðurstöður í Viðskiptatíðindum fyrir Akureyri og Eyjafjörð, en þar er um að ræða auglýsingar frá Þóri Jónssyni málarameistara. Hann var búsettur hér, líkast til í áratug en hann lést 1964 (var fæddur 1898). Þórir var, auk þess að vera farsæll í sinni iðn sem málarameistari, einn af stofnendum Karlakórs Akureyrar- Geysis.
Ránargata 31 er traustlegt og reisulegt hús. Skástætt útskot og bogadregnar svalir gefa húsinu ákveðin sérkenni og þá er rauðleitur steinmulningurinn auðvitað einkennandi. Húsið er hluti geysilega umfangsmikillar torfu tveggja hæða steinhúsa með (háum og lágum)valmaþökum, frá miðri 20. öld, sem nær yfir m.a. ytri hluta Ránargötu og Norðurgötu auk drjúgs hluta Grenivalla og Reynivalla. Sem hornhús tekur húsið þátt í götumyndum tveggja gatna, en húsið stendur austan Ránargötu og sunnan Grenivalla. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti að liggja ljóst fyrir. Lóðin er snyrtileg og vel hirt, þar er m.a. gróskumikið reynitré. Norðanmegin á lóðinni má einnig finna minnisvarða liðins tíma, nefnilega niðurgrafinn olíutank, frá tímabili olíufýringar. Skorsteinar eru einnig í mörgum tilfellum minnisvarðar um olíu- og kolakyndingar. Þjóni þeir ekki hlutverki sínu t.d. fyrir arna eða kamínur eru þeir oftast nær fjarlægðir þegar þök eru endurnýjuð því þeir bjóða oftar en ekki lekahættu heim.
Sem fyrr segir, eru tveggja hæða steinhús með valmaþökum einkennandi fyrir þessar götur yst á Oddeyrinni. Í næstu götu vestan við, Ægisgötu, er einnig að finna heilsteypta röð áþekkra húsa, en þau eru hins vegar ólík húsunum við t.d. Ránargötu að því leyti, að öll eru þau á einni hæð. Ytri hluti Ægisgötu verður einmitt til umfjöllunar á næstu vikum.
Meðfylgjandi mynd er tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1190, 23. apríl 1954. Fundur nr.1191, 7. maí 1954. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2021 | 17:00
Hús dagsins: Ránargata 30
Ránargötu 30 reistu Árni og Svan Ingólfssynir árið 1955. Þeir fengu vorið 1954 byggingarleyfi en sett var það skilyrði, að húsið væri með valma og breytt þannig, að allar hliðar væru með sama halla. Þremur árum hafði Kristinn Halldórsson falast eftir þessari lóð en verið synjað á grundvelli þess, að ekki var búið að úthluta lóðum nr. 26 og 28. Fékk hann lóð og byggði á nr. 26, en bygginganefnd gaf engan afslátt af því, að eigi væri hlaupið yfir lóðir. Upprunalegar teikningar liggja ekki fyrir á kortavef Akureyrarbæjar en þar má hins vegar finna raflagnateikningar Hrólfs Sturlaugssonar af húsinu, frá 1955.
Ránargata 30 er tvílyft steinhús með háu valmaþaki. Á hverri hlið eru kvistir með aflíðandi, einhalla þökum og svalir á suðurkvisti. Kjallari er undir húsinu að hálfu. Útskot er nyrst á framhlið (vesturhlið) og svalir sunnanmegin á þeirri hlið. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar í gluggum.
Þeir bræður, Árni Magnús (1927-1998) og Svan Ingólfssynir (1925-2017) voru innfæddir Akureyringar, fæddir og uppaldir á Oddeyri. Þeir voru synir þeirra Ingólfs Árnasonar og Margrétar Magnúsdóttur, sem lengst af bjuggu í Hríseyjargötu 8 en bjuggu áður í húsi neðarlega við Gránufélagsgötu, á Oddeyrartanga, sem kallað var Litla-Reykjavík. (Það hús var rifið 1991). Svan starfaði lengi vel við sjómennsku en fékkst síðar við ýmis störf, m.a. hjá Hitaveitu Akureyrar. Síðar var innréttuð sérstök á rishæð, en árið 1972 eru auglýstar til sölu tvær íbúðir, annars vegar efri hæð og hins vegar rishæð. Á timarit.is kemur heimilisfangið að öðru leyti u.þ.b. 30 sinnum fyrir í Akureyrarblöðum á þessum 66 árum. Eitt fyrsta skipti sem Ránargötu 30 er getið í blöðum er tilkynning um það í Viðskiptatíðindum í mars 1955, að Svan Ingólfsson selji Árna bróður sínum og hins vegar Indíönu Kristjánsdóttir sinn hluta lóðarinnar, 44% til Árna og 26% til Indíönu.
Ránargata 30 er traustlegt og reisulegt hús og í afar góðri hirðu. Lóð er einnig gróin og vel hirt. Kvistirnir til allra átta gefa því ákveðin sérkenni en þau eru nokkur húsin við utanverða Ránargötuna sem skarta kvistum á háum valmaþökum. Sem hornhús tekur húsið þátt í götumyndum tveggja gatna, en húsið stendur austan Ránargötu og sunnan Grenivalla. Síðarnefnda gatan er nyrst af Völlunum, íbúðagötum sunnan og Eyrarvegar og vestan Norðurgötu. Þrjár íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti hins vegar að liggja ljóst fyrir. Meðfylgjandi mynd er tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.21. maí 1954. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2021 | 13:44
Hús dagsins: Ránargata 29
Um miðjan 6. áratug 20. aldar bjuggu í Norðurgötu 60 þeir Sveinn Brynjólfsson, vélstjóri frá Nesi og Stefán H. Jakobsson. Þeir áttu það einnig sameiginlegt, að fá á leigu aðra ystu lóð við Ránargötu, sem liggur fáeina tugi metra sunnan Norðurgötu 60. Sveinn fékk hana í maí 1954 án þess þó að byggja, en árið 1956 fékk Stefán hana. Ekki liggur fyrir byggingarleyfi honum til handa í bókunum Bygginganefndar árin 1956-57. Svo vill til, að í bók þeirri innbundinni, sem geymir fundargerðir Bygginganefndar Akureyrar fyrir árin 1957-1959 (og æ síðan) eru engar nafnaskrár eða registur. Þannig er nánast ógerningur að fletta upp í þeim einstaka nöfnum, sem er eiginlega lykilatriði, í heimildaleit undirritaðs í þessum fundargerðarbókum. Það er í raun ekki ósvipað því, að ætla að leita að stöku nafni í 200 blaðsíðna símaskrá, þar sem nöfnum væri raðað tilviljanakennt upp!
Það liggur hins vegar engu að síður fyrir, að hvorki Sveinn né Stefán reistu Ránargötu 29, heldur Árni Valmundsson árin 1960-61. Það kemur fram á raflagnateikningum Jóh. Sigurðarsonar, sem aðgengilegar eru kortavef Akureyrarbæjar. Teikningarnar að húsinu gerði Páll Friðfinnsson.
Ránargata 29 er tvílyft steinhús með háu valmaþaki. Útskot eða álma er til norðurs og þar eru inngöngudyr og kvistur í kverkinni á milli á þaki. Einnig er kvistur með einhalla þaki á framhlið. Á suðurhlið er einnig mjótt, skástætt útskot vestanmegin og svalir til austurs. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í flestum gluggum.
Árni Valmundsson sem reisti húsið, var fæddur og uppalinn á Akureyri. Hann var vélsmiður og starfaði við þá iðn lengi en hóf síðar störf hjá Skipaskoðun ríkisins, þar sem hann varð umdæmisstjóri. Árni var kvæntur Önnu Pétursdóttur, sem var úr Svarfaðardalnum, til heimilis að Brekkukoti í Manntali 1920. Bjuggu þau hér um langt árabil en fluttust síðar í Espilund á Brekkunni. Hafa síðan margir búið og átt húsið, sem alla tíð hefur verið tvíbýli.
Ránargata 29 er reisulegt og glæst, í senn stórbrotið og látlaust og setja skástæð útskot og bogadregnar svalirnar með skrautlegum steyptum handriðum vissan svip á húsið. Húsið er í frábærri hirðu og allt hið snyrtilegasta. Þá er lóð mjög gróin og vel hirt og ber þar mikið á grenitré miklu, suðaustan við húsið. Sá sem þetta ritar giskar á, að tréð sé sitkagreni (?) en það er a.m.k. 15 m hátt. Mögulega hafa Árni eða Anna gróðursett það á sínum tíma, en ljóst er af hæðinni, að tréð er áratuga gamalt. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti að liggja ljóst fyrir. Meðfylgjandi myndir eru tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr. 1192, 21. maí 1954. Fundur nr.1246, 12. júní 1956. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Breytt 27.10.2021 kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2021 | 17:26
Hús dagsins: Ránargata 28
Ránargötu 28 reistu þeir Jón Þorvaldsson og Þorvaldur Jónasson árið 1952. Sá síðarnefndi fékk leyfi til byggingar íbúðarhúss, eftir Hauk Árnason, snemmsumars 1952. Ári síðar veitir bygginganefnd honum leyfi til þess að reisa á húsið bráðabirgðaþak þar sem hann hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að reisa efri hæð. Var honum veittur frestur til þriggja ára til að reisa efri hæðina en neðri hæð skyldi gerð íbúðarhæf sem fyrst. Væntanlega hefur þetta gengið efir, en alltént er húsið tveggja hæða.
Ránargata 28 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Á suðurhlið er mjótt útskot austanmegin en svalir á báðum hæðum vestanmegin á sömu hlið. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar í flestum gluggum. Á gluggum efri hæðar eru víðir krosspóstar.
Þeir Jón og Þorvaldur sem reistu húsið voru, eins og lesendur hafa kannski getið sér til um, feðgar. Þorvaldur Jónasson, sem fullu nafni hét Magnús Þorvaldur Jónsson, sem starfaði lengst af sem netagerðarmaður, var fæddur 1867 og var því kominn vel á níræðisaldur þegar húsið þeir feðgar byggðu húsið. Hann var úr S-Múlasýslu og er í Manntali 1880 skráður til heimilis að Árnagerði í Kolfreyjustaðasókn og bjó m.a. í Norðfirði og á Seyðisfirði (Manntal 1910). Hvort hann var fæddur þar fylgir ekki sögunni. Þorvaldur lést snemma árs 1954. Jón Ágúst, sonur hans, sem fæddur var á Norðfirði, bjó hér áfram um áratugaskeið. Hann stundaði sjómennsku, var m.a. kyndari á togurum sem sigldu til Englands á árum síðari heimstyrjaldar. Hann var kvæntur Auði Sigurpálsdóttur, frá Nesi í Saurbæjarhreppi. Hún lést árið 1984 og var þá búsett hér en skömmu síðar fluttist Jón á Kristneshæli, þar sem hann lést 1991. Hafa síðan ýmsir átt og búið í Ránargötu 28 en öllum auðnast að halda húsinu vel við. Það mun að mestu óbreytt frá upphaflegri gerð að ytra byrði.
Ránargata 28 er reisulegt og glæst hús og í mjög góðri hirðu. Sömu sögu er að segja af lóð, en Jón Þorvaldsson mun hafa ræktað þarna ræktarlegan skrúðgarð. Sjálfsagt er lítið eftir af þeim plöntum nú en lóðin er vel hirt og gróin og römmuð inn af steyptum vegg, líkt og flest hús í nágrenninu. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti að liggja ljóst fyrir. Meðfylgjandi mynd er tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1156, 30. Maí 1952. Fundur nr.1169, 5. júní 1953. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2021 | 16:21
Hús dagsins: Ránargata 27
Ránargötu 27 reistu þeir Haddur og Ingvi Júlíussynir árið 1953. Fengu þeir lóðina og byggingarleyfið samkvæmt meðfylgjandi teikningum, sem Mikael Jóhannsson gerði. Um og eftir 1950 virðist sú hefð bygginganefndar bæjarins, að lýsa húsunum sérstaklega í veitingu byggingaleyfa, nokkurn veginn leggjast af. Fram að þeim tíma var ævinlega tekið fram hve stórt húsið væri á grunnfleti, hæðir, byggingarefni o.s.frv. en þegar nær dregur miðri 20. öld er þess yfirleitt aðeins getið, að húsið sé reist eftir meðfylgjandi teikningum. Hvort þetta stafi af því, að teikningar hafi þótt fullkomnari eða ítarlegri en áður en einfaldlega vegna þess, að fleiri byggðu og fleiri umsóknir þurftu að afgreiða, er síðuhafa ekki kunnugt um en þykir þetta ekki ólíklegar kenningar. Þá getur það einnig haft áhrif, að í flestum nýjum hverfum lá fyrir eitthvert heildarskipulag. Á þessum slóðum á Eyrinni áttu t.d. að rísa tveggja hæða steinhús með valmaþökum.
Húsið er tvílyft steinhús með háu valmaþaki, og kvistum á þaki. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn eða stál á þaki og lóðréttir póstar í gluggum. Þegar þetta er ritað standa yfir viðamiklar endurbætur á húsinu, nýtt þak og pallur á þaki bílskúrs með tengingu með efri hæð hússins. Þær framkvæmdir eru eftir teikningum Valbjörns Ægis Vilhjálmssonar.
Líkt og hús næsta hús sunnan við, Ránargata 25, var númer 27 reist af tveimur bræðrum. Ingvi og Haddur Júlíussynir voru frá Svalbarðsströnd, sá fyrrnefndi fæddur á Halllandsnesi árið 1923 en þegar síðarnefndi fæddist, 1928, höfðu foreldrar þeirra flutt að Sólheimum. Þeir bræður voru um tíma báðir starfandi hjá Vegagerðinni og vann Ingvi þar allan sinn starfsaldur, mestmegnis á jarðýtum. Haddur var vélstjóri að mennt, og vann sem vélamaður hjá Vegagerðinni, síðar í eigin rekstri sem ýtustjóri. Þá var hann vélstjóri á skipum Útgerðarfélags Akureyrar síðustu ár starfsævinnar en hafði í millitíðinni viðkomu á hinum valinkunna fljótabáti Drangi. Ingvi var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur en Haddur var kvæntur systur hennar, Elínu Rannveigu Jónsdóttur. Þær systur voru frá bænum Brekku í Aðaldal. Skemmst er frá því að segja, að öll bjuggu þau hér til æviloka, Ingvi lést 1995 og Guðrún lést 2008, Haddur árið 2011 og Elín Rannveig árið eftir. Þannig hélst húsið innan sömu fjölskyldu í hartnær 60 ár.
Húsið er reisulegt og glæst og statt í miðri yfirhalningu þegar þetta er ritað. Ekki er annað að sjá, en að þær endurbætur sem standa yfir á húsinu verði til mikilla bóta fyrir húsið, sem var býsna prýðilegt fyrir. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti að liggja ljóst fyrir. Meðfylgjandi mynd er tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1168, 18. maí 1953. Fundur nr.1169, 5. júní 1953. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2021 | 19:32
Hús dagsins: Ránargata 26
Ránargötu 26 reisti Kristinn Halldórsson eftir teikningum Tryggva Sæmundssonar árið 1951. Sá síðarnefndi sótti um lóð og byggingarleyfið fyrir hönd Kristins, sem vildi fá hornlóðina austan Ránargötu, milli Norðurgötu og Ægisgötu. Bygginganefnd veitti honum hins vegar lóð nr. 26, svo eigi sé hlaupið yfir lóðir. Þannig áttu hús að byggjast í röð, hlið við hlið. En þess má geta, að á hornlóðinni, Ránargötu 30, reis hús fjórum árum síðar.
Ránargata 26 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Á suðurhlið er mjótt útskot austanmegin en svalir á báðum hæðum vestanmegin á sömu hlið. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar í flestum gluggum.
Kristinn Halldórsson, sem byggði húsið, vélstjóri að atvinnu var fæddur á Vémundarstöðum í Kvíabekkjarsókn árið 1905. Hann lést aðeins 48 ára gamall árið 1953. Í húsinu bjó síðustu æviár sín Maron Sölvason (1881-1958) trésmiður frá Ólafsfirði. Hann kom að byggingum margra húsa hér í bæ á fyrri hluta 20. aldar. Meðal annars má nefna eigið hús sem hann reisti Ránargötu 5 árið 1933 og var hann byggingameistari hússins Breiðabliks, Eyrarlandsvegar 26 árið 1911. Mun það hús hafa verið brúðargjöf til Sigurðar Hlíðar dýralæknis og Guðrúnar Guðbrandsdóttur. Þar er um að ræða tilhöggvið norskt timburhús, eitt af kennileitum Syðri Brekkunnar og með glæstari timburhúsum bæjarins. Maron Sölvason varð bráðkvaddur á göngu um Brekkugötuna í mars 1958, 76 ára að aldri.
Margir hafa átt og búið í húsinu gegnum tíðina og öllum auðnast að halda húsinu og vel við. Alltént er það í mjög góðri hirðu nú og til prýði í götumyndinni. Þá er lóð vel gróin m.a. eru tvö gróskumikil reynitré framan við húsið. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti að liggja ljóst fyrir. Meðfylgjandi mynd er tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1138, 22. júní 1951. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Breytt 8.10.2021 kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2021 | 17:20
Hús dagsins: Ránargata 25
Ránargötu 25 reistu þeir Anton og Guðmundur Finnssynir árið 1952. Fengu þeir lóð og byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi teikningum. En umræddar teikningar gerði Gunnar Sigurjónsson.
Ránargata 25 er tvílyft steinsteypuhús með tiltölulega háu valmaþaki. Útskot er til austurs og suðurs og á suðurhlið eru svalir vestur úr kverkinni á milli. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í flestum gluggum.
Anton og Guðmundur Finnssynir voru tveir af 20 systkinum frá Ytri-Á við Ólafsfjörð, synir þeirra Finns Björnssonar og Mundínu Þorláksdóttur. Segja má, að þau Finnur og Mundína hafi orðið landsfræg fyrir þetta mikla barnalán, en börnin 20 eignuðust þau á 28 árum eða frá 1917 til 1945. Á síðasta ári kom einmitt út bókin Á Ytri Á eftir Óskar Þór Halldórsson, sem segir frá lífshlaupi þeirra og afkomenda sem, eins og gefur að skilja, eru orðnir fjölmargir.
Anton Baldvin Finnsson (1920-2014) var skipasmiður og vann í Slippnum um áratugaskeið, en vann áður um skamma hríð hjá hinum valinkunna Nóa Kristjánssyni eða Nóa bátasmið. Kona hans var Steinunn Ragnheiður Árnadóttir (1920-2017). Guðmundur Sigurjón Finnsson (1925-2009)var bifvélavirki og vann lengi vel hjá Vegagerðinni. Hann var kvæntur Stefaníu Guðlaugu Steinsdóttur (1928-2007), frá Stíflu í Skagafirði . Þau fluttu árið 1966 til Borgarness, þar sem Guðmundur gerðist verkstæðisstjóri hjá Vegagerðinni. Anton og Steinunn bjuggu hér nánast alla sína tíð og skemmst er frá því að segja, að húsið er enn að hluta í eigu sömu fjölskyldu og núverandi eigandi neðri hæðar og íbúi er Jóhanna Maríanna, dóttir þeirra Antons og Steinunnar. Tvær íbúðir eru í húsinu, ein á hvorri hæð og hefur svo verið frá upphafi.
Húsið er í mjög góðri hirðu og hefur alla tíð hlotið fyrirtaks viðhalds, auk þess sem lóð er vel gróin og hirt. Ber þar mikið á gróskumiklu reynitré sunnarlega á lóðinni. Líkt og víða við Ránargötuna er lóðin afmörkuð með steyptum vegg með járnavirki og er hann einnig í góðri hirðu. Síðuhafi veit ekki til þess, að unnin hafi verið húsakönnun um þennan hluta Oddeyrar svo ekki liggur fyrir hvort húsið, eða önnur hús við Ránargötuna, hafi varðveislugildi. Álit síðuhafa á því, hvort einstök hús við Ránargötu eða Ránargatan öll ætti að hafa varðveislugildi ætti að liggja ljóst fyrir. Meðfylgjandi mynd er tekin þ. 1. maí 2021
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1151, 25. apríl 1952. Fundur nr. 1153, 9. maí 1952. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Breytt 7.10.2021 kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 15
- Sl. sólarhring: 48
- Sl. viku: 369
- Frá upphafi: 448676
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 279
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar