Færsluflokkur: Bloggar
23.7.2010 | 02:02
Hús dagsins: Brekkugata 10 og 31
Enn held ég mig að hús Sveinbjarnar Jónsson og hér eru tvö þeirra en áður hef ég fjallað um Oddeyrargötu 15 (90) og Hafnarstræti 67 (84). En hér eru tvenn hús við Brekkugötu númer 10 og 31 en þau teiknaði Sveinbjörn og voru þau bæði byggð árið 1923.
Hér til hliðar er Brekkugata 10. Hana reisti Jónas Rafnar læknir árið 1923 en fjórum áður seinna varð hann yfirlæknir á Kristneshæli. (Þess má kannski einnig geta að elsti hluti Kristneshælis er líka teiknað af Sveinbirni Jónssyni og byggt úr R-steini) Laufey nokkur Benediktsdóttir átti húsið á eftir Jónasi og rak þarna þvottahús. Nú eru þarna að ég held þrjár íbúðir. Hér er horft á bakhlið hússins, miðað við að framhliðin snúi að Brekkugötu.
Neðri myndin er af húsi talsvert ofar og hinu megin í Brekkugötunni þ.e. Brekkugötu 31. Er það árinu eldra en nr. 10 reist árið 1922 af Sigurði H. Austmann. Það er byggt úr R-steini líkt og flest hús eftir Sveinbjörn frá þessum tíma. Þetta er tvílyft á háum kjallara og nokkuð sérstakt að lögun, nánast ferningslaga á grunnfleti (reyndar er gengur stigabygging útúr húsinu bakatil), kassalaga með flötu þaki. Þá má greina steypt skraut eða kögur við þakbrúnir og steinhleðslur á köntum en það skraut meira áberandi fyrir ca. 10 árum þegar það var brúnmálað og húsið hvítt. Gluggapóstar efstu hæðar eru með upprunalegu lagi en gluggum neðri hæða hefur verið breytt. Þrjár íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð. Elstu húsin sem reist voru úr steinsteypu (ca.1910-25) og R-steini báru mörg hver svipmót klassískra timburhúsa, sbr. Brekkugötu 10 en nr. 31 er dæmi þar sem leitast er við fikra sig áfram við sérstakan byggingarstíl steinhúsa.
Ég býst við að birta einhver fleiri hús eftir Sveinbjörn Jónsson hér á síðunni, en þessi tvö ólíku hús sýna að hann var býsna fjölhæfur og frumlegur í hönnun húsa. Ég gæti notað næstu mánuði í að birta eingöngu hús eftir Sveinbjörn en hins vegar verður þetta aðeins sýnishorn hjá mér. Þessar tvær myndir tók ég þann 10.júlí sl.
Heimildir: Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson (1996). Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni 1896-1982. Reykjavík: Fjölvi.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2010 | 20:42
Hús dagsins: Oddeyrargata 15. Örlítið um R-stein.
Í síðustu færslu fjallaði ég um Hafnarstræti 67 sem er eitt margra húsa sem Sveinbjörn Jónsson byggingarfræðingur og þúsundþjalasmiður teiknaði og reisti árin sem hann var á Akureyri. En flest hans hús reisti hann úr R-steini sem var sérstök gerð múrsteina eða hleðslusteina sem hann fann upp og framleiddi. En R-steinninn var steyptur múrsteinn sem var þannig í laginu að tveir fletir komu þvert á hvor á annan og mynduðu eins og lítið "r". Þegar þeim var hlaðið upp vísaði "þverleggurinn" inn í vegginn og var hleðslan tvöföld. Þannig myndaðist holrúm milli "þverleggjanna" sem einnig mynduðu einskonar burðarstoð. Í holrúmið var svo troðið einangrun. Oftast var þar um að ræða mó eða torfmylsnu.
Fyrsta R-steins hús á Akureyri og raunar landinu öllu var Oddeyrargata 15 sem sést á myndinni hér til hliðar. En húsið var reist árið 1920 og Sveinbjörn teiknaði það og hafði umsjón með byggingu hússins. Fyrsti eigandi hússins var Þórhallur Bjarnarson prentari. Húsið var teiknað sem einbýli og hefur líkast til verið það alla tíð. Alltént er það einbýlishús í dag. Húsið er lítið breytt frá fyrstu gerð en þó hefur upprunalegum gluggapóstum verið skipt út fyrir þverpósta. Á gömlum myndum má sjá skífuklæðningu á þaki og hefur sú klæðning haldið sér, eins og sjá má á myndinni. Þessi mynd er tekin 10.júlí 2010.
Heimild: Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni. Reykjavík: Fjölvi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.7.2010 | 15:49
Hús dagsins: Hafnarstræti 67.
Hafnarstræti 67, einnig kallað Skjaldborg, var reist 1926 sem samkomuhús fyrir Góðtemplarastúkurnar og Ungmennafélag Akureyrar. Húsið er tvílyft með háu risi á háum kjallara, byggt úr sérstakri gerð hleðslusteins, R-steini. Byggingameistari þess og teiknari var Sveinbjörn Jónsson (1896-1982). Sveinbjörn, sem jafnan var kenndur við Ofnasmiðjuna, er tvímælalaust einn af "stærri nöfnunum" í íslenskri byggingasögu. Sveinbjörn fann einmitt upp áðurnefndan R-stein 1919 og hóf á honum framleiðslu. En hann var fæddur í Svarfaðardal og uppalin á Ólafsfirði en lærði byggingarfræði í Osló einn vetur 1917-18. Hann bjó og starfaði á Akureyri 1919 til 1936 og teiknaði og byggði mörg hús á Akureyri og Eyjafirði á þeim árum, fleiri en svo að þau verði öll talin upp hér. Fyrstu búskaparár bjó hann einmitt í Gömlu Gróðrarstöðinni. Hann teiknaði m.a. hús KEA (1930) og fjölda annarra stórhýsa, atvinnuhúsnæði, íbúðarhús og Kaupangskirkja (1922) Í Eyjafirði (7km framan Akureyrar ) er hans verk. Hér er raunar komið verðugt verkefni fyrir mig að taka fyrir á þessari síðu hús Sveinbjarnar (eða a.m.k. hluta þeirra) og mjög líklega mun ég fjalla fleiri hús eftir hann á næstu vikum og mánuðum. En aftur að húsinu sjálfu. En Ungmennafélagið og Góðtemplarar notuðu húsið nokkra áratugi sem samkomuhús og voru m.a. með kvikmyndasýningar þar. Seinna eignaðist húsið Prentsmiðja Björns Jónssonar og þarna hóf Bókaútgáfan Skjaldborg starfsemi sína. Árin 1985-90 var húsið allt tekið til gagngerra endurbóta og þá voru m.a. byggðir kvistirnir fjórir á risið og húsið byggt upp sem hótel og þjónar það enn því hlutverki. Er það nú, sem áður fyrr, stórglæsilegt. Fyrst var þarna Hótel Óðal en í húsinu er nú rekið hótel undir hinu fornfræga nafni Hótel Akureyri. Þessi mynd er tekin 6.7.2010.
Heimildir: Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson (1996). Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni 1896-1982. Reykjavík: Fjölvi.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2010 | 18:36
Mannlíf í Miðbænum
Þær myndir frá Akureyri og nærsveitum sem ég hef sett inná síðuna hér síðastliðið ár, sýna aðallega þrennt, hús, bíla og landslag. Á þeim er að öllu jöfnu ekki nokkur maður ( nema ef vera skyldi ég sjálfur í einhverjum tilfellum) Þó er hér ævinlega mikið mannlíf og fjör og hér eru nokkrar svipmyndir af því, teknar í Miðbæ Akureyrar á albjörtu sumarkvöldi, laugardaginn 19.júní 2010. Þarna er klukkan rétt rúmlega 10 og engin slagsmál eða skrílslæti heldur er bara allskonar fólk að skemmta sér og hafa gaman.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2010 | 13:50
Hús dagsins: Hafnarstræti 86a
Síðast birti ég mynd af húsi nokkru í Miðbænum sem nú er í endurbótum. Hér birtist annað hús sem er þessa daganna í endurbyggingu, en það er Hafnarstræti 86a. Er þetta tvílyft timburhús með portbyggðu risi, byggt árið 1920 af manni að nafni Jóhann Ragúels. Hann rak gjafavöruverslun á neðstu hæð en bjó á efri hæðum. Síðast var þetta þriggja íbúða hús en það fór í eyði um 2002. Það hafði þannig staðið autt og ónotað í nokkur ár og var farið að láta verulega á sjá. Veturinn 2008 varð þarna mikill heitavatnsleki sem stórskemmdi innra byrði hússins. Einhvern tíma heyrði ég að til stæði að rífa húsið og hélt ég satt best að segja að það stæði til um daginn. En svo liðu nokkrir dagar og framkvæmdir og smávægilegt rifrildi hélt áfram, þannig að líkast til var niðurrif ekki raunin. Því ef svo væri, hefði húsið líkast til verið afgreitt á fáum klukkustundum með stórvikri gröfu. Við endurgerð eldri húsa kemur oft ýmislegt í ljós sem falið hefur verið undir seinni tíma viðbótum og breytingum. Sem áður segir var verslunarrými á neðstu hæð hússins fyrstu áratugina. Á þessari mynd má glögglega sjá ramma utan um verslunarglugga sem náð hafa niður á götu sem og dyr fyrir miðju sem einhverntíma hefur verið lokað fyrir. Þarna sést líka í grind hússins, innri klæðningu og reiðingsmottur á milli. Ég fæ ekki betur séð að ysta klæðning, sem nú verið að rífa burt, sé asbest. Þetta er að upplagi stórglæsilegt hús og það verður eflaust spennandi að sjá hvernig það kemur til með að líta út að endurbótum loknum. Þessi mynd er tekin 19.júní 2010.
Hér eru einnig myndir sem ég tók að kvöldi 6.janúar 2007 er ég á átti leið framhjá Hafnarstræti 86a og sá að dyr á stigabyggingu bakatil stóðu opnar. Ekki kunni ég nú við vaða inn, en tók nokkrar myndir inn um dyrnar.
Bloggar | Breytt 3.7.2010 kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2010 | 19:36
Hús dagsins: Brekkugata 5
Húsin sem ég hef birt hér á síðunni eru í misjöfnu standi. Í flestum tilfellum er þó um að ræða hús sem hafa verið gerð upp af miklum myndarbrag síðustu 10-15 ár en voru kannski áður orðin mjög hrörleg. En hér er hús sem er í miðri endurbyggingu. Er þetta Brekkugata 5, en húsið er byggt 1908 og stendur í Miðbæ Akureyrar rétt norðvestan Ráðhústorgs. Brekkugata 5 er einlyft timburhús á háum kjallara með portbyggðu risi og miðjukvisti . Líklega hefur kjallarinn alltaf verið verslunarrými en nú er þarna ferðaskrifstofa . Held að efri hæðir séu innréttaðar að mesti sem skrifstofur í dag. Þar hafa þó væntanlega verið íbúðir upprunalega, væntanlega ein fyrst en gæti svo hafa fjölgað með árunum. Lengst af var húsið bárujárnsklætt en nú er verið að setja á það panelklæðningu. Húsið á örugglega eftir að verða til mikillar prýði og verður spennandi að sjá hvernig endurbæturnar takast til. Það sem komið er sýnist mér bara lofa góðu. Þessi mynd er tekin fyrir rúmri viku, 19.júní 2010.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2010 | 21:40
"Hús dagsins" 1 árs!
25.júní í fyrra birti ég í fyrsta skipti hér á síðunni mynd af húsi ásamt fróðleikskorni um það undir fyrirsögninni Hús dagsins. Var það Norðurgata 17,Gamla Prentsmiðjan, byggð 1880 sem varð fyrir valinu. Nú eru þessir pistlar orðnir um 80 ( hef ekki nákvæma tölu, en myndirnar í albúminu Hús og byggingar eru 87 ). Enn á ég þó nokkrar húsamyndir sem ég á eftir að deila hér á síðunni svo Hús dagsins ganga eitthvað áfram. Hús dagsins eiga það yfirleitt sameiginlegt að vera gömul, sögufræg eða bara skrautleg hús á Akureyri sem ég hef myndað og kynnt mér eitthvað. Oft eru þetta hús sem "allir" kannast við. En mér finnst einnig gaman að birta myndir sem sýna kannski eitthvað allt annað (hús t.d. eða ýmislegt annað í umhverfinu) en þeir sem heimsækja Akureyri eða Eyjafjörð sjá. Einskonar "falin leyndarmál" eða þess háttar. En hér er afrit af fyrsta "Hús dagsins" pistlinum:
25.6.2009 | 10:28
Hús dagsins: Norðurgata 17
Ég hef í nokkrar vikur birt myndir sem ég á af húsum á Akureyri og stutta umfjöllun um þau á Facebook. Hérna mun halda áfram með það. Eru þetta yfirleitt gömul hús á Oddeyri eða Innbænum en ég á orðið ágætis myndasafn af þeim. Heimildir um byggingarár og sögu húsanna eru fengnar úr öllum mögulegum bókum um byggingarsögu Akureyrar auk þess sem ég hef sótt a.m.k. eina sögugöngu Minjasafnsins um þessi eldri hverfi á hverju sumri síðan 1997.
Hús dagsins er Norðurgata 17, einnig kallað Steinhúsið eða Gamla Prentsmiðjan. Húsið er það eina á Akureyri sem hlaðið er úr blágrýti svipað og Alþingishúsið og Hegningarhúsið. Byggingarár mun vera 1880 og er þetta hús í 3.-4.sæti yfir elstu hús á Oddeyri. Í þessu húsi var lengst af starfandi prentsmiðja en ýmis önnur starfsemi hefur einnig verið stunduð í húsinu á 130 árum.
Ég minntist á að þetta væri 3.-4. elsta hús Oddeyrar. Sjálfsagt mál er að telja upp þau hús á Oddeyri sem teljast eldri en Steinhúsið. Norðurgata 11 er jafn gamalt (1880), Lundargata 2 (1879), Strandagata 27 (1876) og elst er Strandgata 49, Gránufélagshúsið, (1874).
Þá langar mig til að þakka innlitin hingað inn og athugasemdir, ágætt að vita að einhverjir hafi áhuga á þessu grúski mínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2010 | 20:30
Ársafmæli
"Þá er ég af öllum mönnum farinn að blogga. Ég hef nú hingað til verið mjög virkur að skoða blogg og eyði alltaf drjúgum tíma dags í slíkt og hef þá mest gaman af dægurþrasi og alls konar yfirdrulli. Því verður ekki til að dreifa hér. Ástæða: Það er einfaldlega nóg af svoleiðis bloggum. Þetta verður meira til gagns og gamans. Luma á ýmsum fróðleik og ljósmyndum sem ætlunin er að deila hérna. Njótið vel."
Þetta ritaði undirritaður þann 22.júní í fyrra undir fyrirsögninni Formáli á þessa síðu. Þannig að í dag á þessi síða eins árs afmæli. Eins og kemur fram þarna þá ætlaði ég þessa síðu fyrst og fremst undir myndir sem ég hef tekið. Ég hafði prófað myndasíður á Flickr o.þ.h. en það sem mér fannst alltaf vanta á slíkum síðum var að geta sett einhvern almennilegan texta og fróðleik með myndunum. Finnst það einhvern vegin nauðsynlegt, jafnvel þótt mynd segi vissulega meira en 1000 orð ! Frá fyrsta degi ætlaði ég síðuna undir húsamyndir og fróðleik um þau enda hafði ég þá þegar birt slíkt í nokkrar vikur á Facebook (byrjaði þar einmitt 8.maí eða 5 vikum fyrr), en þótti um að gera að deila þeim með fleirum en (á þeim tíma) 20 Facebook vinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2010 | 19:30
Sumarsólstöður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2010 | 23:12
Ganga og matur
Eins og einhverjir sem heimsækja þessa síðu reglulega hafa tekið eftir þá þvælist ég stöku sinnum uppum fjöll og firnindi. Þá geng ég uppundir 4-8km daglega um götur Akureyrar. Eitt það almikilvægasta í lengri gönguferðum og fjallabrölti er nestið. Matur er mannsins megin og eldsneyti göngumannsins, líkt og bensín/dísel fyrir bílinn. Um nesti í lengri gönguferðum gildir í raun einföld meginregla: Maturinn skal vera sem orkuríkastur en sem fyrirferðarminnstur og léttastur. Samlokur með feitu áleggi og feitu smjöri eru þar góður kostur og heitt kakó í brúsa er náttúrulega klassískt. Sumir kjósa heldur kaffi- en kakóið er orkumeira. Að auki er suðusúkkulaði nauðsynlegur orkugjafi en ekki er sniðugt að keyra eingöngu á því. Ég hef vanið mig á göngunesti sem samanstendur af flatbrauði með hangikjöti, skinku eða rúllupylsu. Flatbrauð þykir mér mikið hentugra en "venjulegt" brauð, sem vill oft klessast og verða leiðinlegt í meðförum. Kakó er alveg skilyrðislaust með að vetrarlagi, á sumrin lætur maður stundum fernudrykki á borð Svala, Trópí eða Kókómjólk duga. Harðfiskur er helvíti góður einnig og skyr hef ég einhvern tíma haft meðferðis á Súlumýrar. Oft er því þannig farið að matarlyst og smekkur er svolítið öðruvísi en vanalega í gönguferðum. Þannig er það allavega hjá mér- get að sjálfsögðu ekki fullyrt að að það sé algilt. En þegar maður hefur erfiðað upp nokkur hundruð metra lóðrétta hækkun og orkuleysi farið að segja til sín þá hámar maður ýmislegt í sig sem maður liti ekki við á láglendi. Þá er bitinn einhvern vegin miklu, miklu bragðbetri og drykkurinn sjaldan eins svalandi. Og talandi um svalandi þá er ekkert betra en ferskt íslenskt fjallavatn. Þess má hins vegar geta að í gönguferðum er ekki sniðugt að drekka mikið af ÍSKÖLDUM drykkjum. Best er raunar að drykkurinn sé sem næst líkamshita- það fer svo geysileg orka í að hita upp vatnið.
Hver kannast ekki við að hafa verið í erfiðri göngu og verið orðinn svangur/svöng og uppí hugann koma miklar steikur eða saðsamir skyndibitar. Flatbrauðsneiðin virkar þá kannski ekkert svo ofboðslega freistandi. Í einni göngu uppá Súlur fyrir fáeinum árum gerði ég einskonar tilraun. Hafði með tilbúnar langlokur úr sjoppu, löðrandi í sinnepsósu og gumsi og gosflöskur. Í 800m gerði ég veglegt nestisstopp, orðinn nokkuð svangur og þreyttur. Hugsaði mér gott til glóðarinnar og settist niður með langloku með skinku, ananas og sinnepsósu og ½ líters Mix í flösku. Ég náði varla einum bita og sopa áður en ég hreinlega kúgaðist. Þótt ekki vantaði hungrið þá náði ég varla að pína ofaní mig hálfri langlokunni og ég hélt aðeins niðri nokkrum sopum af gosinu. Mín niðurstaða af þessu var sú að fjallgöngur og skyndibitar fara ekki vel saman. En auðvitað er svona lagað persónubundið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 7
- Sl. sólarhring: 47
- Sl. viku: 290
- Frá upphafi: 449100
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 189
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar