Færsluflokkur: Bloggar
13.9.2015 | 12:59
Hús dagsins: Laxagata 2
Síðasta hús dagsins, Gránufélagsgata 7 stendur á horni þeirrar götu og Laxagötu en sú síðarnefnda er stutt þvergata sem liggur til norðurs frá Gránufélagsgötu. Laxagatan er eftir því sem ég kemst næst eina gatan á Akureyri sem heitir eftir fiskitegund en trúlega er algengast að Akureyrargötur dragi nöfn sín af höfuðbólum, staðháttum og örnefnum. Segja má að íbúar við austanverða Laxagaötuna séu með bæjarstjórnkerfið í bakgarðinum því næst neðan götunnar stendur Ráðhúsið. Laxagatan byggðist að mestu á fyrri hluta 4.áratugarinsm og eru öll húsin sem nú standa við hana byggð 1932-35 að einu undanskildu sem byggt er 1940. En syðst við Laxagötuna austanverða, næst norðan við Gránufélagsgötu 7, stendur vinalegt gult bárujárnshús með rauðu þaki.
Laxagata 2
Árið 1931 fékk Jón Stefánsson leyfi til að reisa hús á þessari lóð, 6,4x14,95m, ein hæð með porti og háu risi. Fyrst um sinn vildi hann hafa húsið kjallaralaust en nefndin vildi ekki leyfa það og skyldi kjallari, a.m.k. 1,25m hár standa undir húsinu. Ári síðar reis hús Jóns af grunni. Teikningar af húsinu gerði Halldór Halldórsson byggingarfulltrúi.
Laxagata 2 er einlyft timburhús með portbyggðu risi og stendur húsið á steyptum kjallara. Miðjukvistur er á götuhlið en langur kvistur með skúrþaki á bakhlið. Í gluggum eru krosspóstar, tvíbreiðir eða sexskiptir á framhlið og í kvisti. Inngangar og steyptar tröppur upp að þeim eru á göflum. Allt er húsið bárujárnsklætt og hefur líkast til verið svo frá upphafi, en þegar húsið var byggt (1932) virðist járnvörn skilyrði fyrir byggingu timburhúsa. Samkvæmt uppmælingarteikningum er húsið 789 rúmmetrar að stærð.
Húsið hefur að öllum líkindum verið parhús frá upphafi og skipst í miðju. Við leit í gagnagrunni timarit.is var ekki að sjá auglýsingar frá neinum fyrirtækjum eða verslunum í Laxagötu 2 en líkt og gengur og gerist finnast ýmsar tilkynningar m.a. um stórafmæli heimilisfólks eða almennar smáauglýsingar. Einnig má sjá hvenær íbúðir eða herbergi í húsinu hafa verið til sölu eða leigu. Húsið er líkast til að stærstum hluta óbreytt frá upphafi að ytra byrði. Húsið er af nokkuð dæmigerðri timburhúsagerð og var þetta lag, hæð-hátt ris-miðjukvistur einnig ráðandi í elstu steinsteypuhúsunum. Í húsakönnun sem unnin var fyrir Akureyrarbæ var húsið sagt hafa varðveislugildi fyrir fallega ásýnd með öðrum húsum við austanverða Laxagötuna (Ómar Ívarsson, 2011) Nú eru fjórar íbúðir í húsinu, á hæð og í risi í hvorum hluta. Þessi mynd er tekin þ. 14.ágúst 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35. Fundur nr. 670 21.9.1931
Fundur nr. 671 5.10.1931
Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Ómar Ívarsson. 2011. Akureyrarbær Húsakönnun- Laxagata- Hólabraut. X2 Hönnun-Skipulag. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Aðgengilegt á vef á slóð http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/laxagata-holabraut-husakonnun-mars-2011.pdf
Tenglar í texta.
Bloggar | Breytt 19.9.2015 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2015 | 00:05
Kókómjólkurferna og plastpoki
Þessi fyrirsögn getur gefið ýmislegt til kynna- en þess má geta strax að hér er um aðra SKÁTASÖGU að ræða. Vettvangur síðustu sögu sem ég deildi hér var Fálkafell en hér berum við niður handan Eyjafjarðar í öðrum skála að nafni Valhöll. Hann stendur í Vaðlaheiði í landi Halllands, h.u.b beint ofan gangnamunna fyrirhugaðra Vaðlaheiðarganga.
Í félagsútilegu í september 2011 voru samankomnir á fjórða tug skáta í Valhöll. Einn dagskrárliðinn átti ég að hafa umsjón með eða skipuleggja en þegar til kastanna kom hafði ég að sjálfsögðu steingleymt að hugsa út í það. En skáti er ávallt viðbúinn. Á u.þ.b. fjórum sekúndum laust þessari einföldu hugmynd í kollinn á mér: Sendum flokkana í gönguferðir um umhverfið og týna hluti, mega vera hvaða hlutir sem er, og semja um þá sögu. Svo skulu þau flytja þessa sögu á kvöldvöku um kvöldið. (En fyrir þá sem ókunnir eru skátastarfi má geta að í öllum útilegum eru kvöldvökur þar sem sungið er og flutt frumsamin skemmtiatriði). Ég gerði mér fyrirfram hugmyndir um að krakkarnir myndu safna laufum, greinum, plöntum og steinum en það gerðu þau ekki eingöngu, heldur týndu þau að megninu til rusl. Það var því ófyrirséður bónus, að þau hreinsuðu örlítið til í nágrenni skálans. Því miður man ég ekki allar sögurnar sem krakkarnir bjuggu til um hlutina sem þau fundu, nema þessa einu sem var einstaklega eftirminnileg. Hún snerist um ástir kókómjólkurfernu og sundurtætts plastpoka sem hópurinn hafði fundið. Sami hópurinn hafði einnig fundið hald eða efsta hluta skafts af malarskóflu. Þannig endaði sagan á brúðkaupi kókómjólkurfernu og plastpoka og sá sem gaf þau saman var...séra Skófluskaft
Þessi mynd er tekin í umræddri útilegu, laugardaginn 24.sept. 2011.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2015 | 19:37
Hús dagsins: Gránufélagsgata 7
Fá íbúðarhús standa við Gránufélagsgötuna ofan Glerárgötu. Þau hafa nokkur týnt tölunni gegn um tíðina en á horni Gránufélagsgötu og Laxagötu stendur þó tvílyft steinhús. Það er eitt af elstu húsum við götuna, líklega það þriðja elsta en aðeins númer 18 og 20 eru eldri.
En Gránufélagsgötu 7 reistu þau Ingvar Ingvason og Guðrún Rósa Magnúsdóttir árið 1912, en húsið var þó ekki fullklárað fyrr en um 1915. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með háu risi. Það stendur á lágum grunni, kjallaralaust og á norðurhlið hússins er lítill skúr. Í gluggum eru þverpóstar með þrískiptum efri póstum en í risi eru krosspóstar. Bárujárn er á þaki.
Árið 1912 fékk Ingvar Ingvason leyfi til að byggja hús á túni Vigfúsar Sigfússonar, á horni Gránufélagsgötu og Túngötu, tvílyft 10x12 álnir að stærð og með 2,5al. Tröppu á vesturstafni. Þá áskildi nefndin að settir væru 2 gluggar á lopthæð hússins á austurstafni. Ekki fylgir sögunni hvaða ástæður láu þar að baki. Síðla árs 1914 óskar Ingvar eftir að fá að byggja skúr 2,5x2,5m norðan við hálfbyggt hús sitt. Þar stillir Bygginganefnd honum upp við vegg; að hann skuli klára húsið innan árs frá dagsetningu fundargerðar, ellegar falli húsbyggingarleyfi hans úr gildi! Svo virðist sem Ingvar hafi lokið við húsið- því réttum hundrað árum síðar stendur það enn !
Í Fasteignamati árið 1918 er húsinu lýst sem íbúðarhúsi úr steinsteypu, með pappaklæddu þaki, einlyft með lágu risi, ein íbúð 4 herbergi auk geymslu, 7,5x6,3m að grunnfleti. Húsið er þá virt á 1800 kr en lóð, sem þá var eign Ragnars Ólafssonar var metin á kr. 1000. Árið 1920 fékk Ingvari leyfi til að setja vinkilris á hús sitt, auk þess sem honum leyft að færa dyr af vesturstafni yfir á þann eystri. Hefur húsið þá líkast til fengið það útlit sem það hefur nú. Margir hafa átt heima í Gránufélagsgötu 7 gegn um tíðina. Ingvar og Guðrún bjuggu líkast til þarna til ársins 1933 en þá fluttust þau til Reykjavíkur. Hér er viðtal við Guðrúnu frá 1966 en þá náði hún 100 ára aldri. Nú eru í húsinu tvær íbúðir og hefur verið svo um áratugaskeið. Húsið er í ágætu standi og sómir sér vel í umhverfi sínu. Myndin er tekin þ. 24.júlí 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1902-21:
Fundur nr. 373, 17.sept 1912
Fundur nr. 399, 7.nóv 1914
Fundur nr. 475, 5.maí 1920
Óútgefin rit en innbundin afrit af öllum fundargerðum Bygginganefndar eru varðveittar á Héraðskjalasafninu.
Fasteignamat á Akureyri 1918. Varðveitt á Hskj.s Ak.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2015 | 11:44
Eitt af stórvirkjum tónlistarsögunnar
Fjölmargir færir og valinkunnir tónlistarmenn, innlendir og erlendir, eiga það sameiginlegt að vera fæddir 1945 og fagna því sjötugsafmæli sínu á þessu ári. Tveir þeirra, sem eru kannski ekki sérlega áberandi nú um stundir, eru hljómborðsleikarinn og söngvarinn Doug Ingle og trommarinn Ron Bushy. Þeir eiga báðir stórafmæli í þessum mánuði, Ingle er fæddur 9.sept. en Bushy 23.sept. 1945 en þeir voru meðlimir amerísku "psychadelic" rokksveitarinnar Iron Butterfly. Frægðarsól þeirrar sveitar reis vafalítið hæst á árunum kringum 1970 en sveitin hefur starfað með löngum hléum og talsverðum mannabreytingum eftir 1971 og er enn að ! Ásamt þeim skipuðu sveitina á upphafsárum hennar bassaleikarinn Lee Dormann (1942-2012) og gítarleikarinn Erik Brann (1950-2003) á gítar.
Í stuttu máli má lýsa músík Iron Butterfly sem svipaðri t.d. Deep Purple, Led Zeppelin og Trúbroti. Ég þori að fullyrða, að allra þekktasta lag þeirra Iron Butterfly liða hljóti að vera hið 17 mínútna stórbrotna meistaraverk IN-A-GADDA-DA-VIDA frá 1968. (Titillinn á auðvitað að vera In The Garden of Eden, en er ævinlega stafsettur eftir hálf þvoglumæltum framburði í flutningi) Doug Ingle er skráður höfundur lagsins og Bushy leikur þar mjög stórt hlutverk með einu annálaðasta trommusólói rokksögunnar. Þrátt fyrir að vera hátt í fimmfalt lengra en flest hefðbundin dægurlög er texti lagsins aðeins fjórar línur, sungnar þrisvar; tvisvar í upphafi og einu sinni í lokin. Að öðru leyti er lagið eins konar veisluhlaðborð af hammond- og gítarsólóum, bassinn fær einnig að njóta sín að ógleymdu áðurnefndu trommusólói Bushy sem er ca. 4 mínútur að lengd. Ég ætla ekkert að lýsa þessari snilld neitt frekar heldur láta myndbandið hér fylgja með. Því ef mynd segir 1000 orð segir myndband meira en 100.000...
(Heimildir: sjá tengil í texta)
PS. Svona er In-A-Gadda-Da-Vida í flutningi íbúa Springfield.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2015 | 00:15
Kaffi og feitur vindill
Ég hef einhvers staðar minnst á það hér að ég sé skáti, og mögulega einnig að ég hafi í rúman áratug farið með skátasveitir í útilegur. Í skátaútilegum gerist margt, sumt leiðinlegt en miklum mun fleira skemmtilegt, jafnvel bráðfyndið. Eitt af því fyndnara sem ég man eftir að hafa heyrt í útilegu átti sér stað í Fálkafelli að mig minnir í nóvember 2005. Ekki man ég þetta allt í smáatriðum en einhvern vegin svona var þetta- vel má vera að aðrir þátttakendur muni þetta allt öðru vísi.
Á hádegi á laugardeginum í útilegu þessari var verkefnið að elda úti á frumstæðum hlóðum. Bröltum við þá út með stóran pott og röðuðum einhverjum steinum upp á melnum norðan skálans. Ekki var hlaupið að því, snjór var yfir öllu og jörð gaddfreðin en einhverju náðum við að hlaða upp og eftir dágóða stund náðum við að kveikja undir pottinum. Nú skyldu eldaðar núðlur úr pakka. Þegar hitað er yfir eldi skiptir mestu máli að ná glóðum, því glóðin gefur mesta hitann. En glóðin var yfirleitt lítil þarna en reykur hins vegar umtalsverður enda slokknaði ítrekað undir pottinum. Einhver stakk upp á því að fara bara með þetta inn í skála og elda krásirnar á gasinu þar en ég vildi sko ekki heyra á það minnst. Á DAGSKRÁNNI VAR ÚTIELDUN OG ÚTIELDUN SKYLDI ÞAÐ VERA!!! Að lokum ákváðum við að núðlurnar hlytu nú að vera soðnar, þá var klukkan langt gengin í tvö að mig minnir. Skemmst er frá því að segja að núðlurnar voru rétt rúmlega volgar og með vatnsbragði þar sem kryddið hafði verið alltof lítið í hlutfalli við vatnið- og gott ef þær höfðu ekki dregið í sig bragð úr reyknum. Þannig að hádegismaturinn voru volgar, hálfsoðnar, hálfreyktar núðlur með vatnsbragði. Fæstir drengjanna tóku vel til matar síns en einhverjir gerðu þessu "ljúfmeti" góð skil. Mér fannst algjörlega óborganlegt, þegar ég heyrði einn þeirra segja: Djöfull var þetta gott. Eftir svona máltíð væri maður bara til í kaffi og feitan vindil !
(Líklegt þykir mér að drengurinn hafi mögulega haft frægt atriði úr kvikmyndinni Englum Alheimsins í huga)
Í borðsalnum í Fálkafelli. Myndin er tekin 25.okt. 2008, Fálkaskátasveitin Ernir situr við spil eftir kvöldvöku og úti geysar öskrandi brjáluð stórhríð.
Bloggar | Breytt 2.9.2015 kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2015 | 09:33
Hús dagsins: Fjólugata 10
Húsið á Fjólugötu 10 reisti Ólöf Guðmundsdóttir árið 1934. Hún fékk haustið 1933 lóð og leyfi til að reisa hús næst vestan við hús Óskar Jóhannesdóttur, einnar hæðar steinsteypt með porti og risi og kvistum, 10x7,6m að grunnfleti. Fjólugata 10 er steinsteypt hús með miðjukvisti, einlyft á háum kjallara. Snýr húsið A-V og er inngönguskúr og tröppur á austurhlið en á bakhlið er steinsteypt viðbygging (bílskúr) og ofan á honum sólskýli. T-póstar eru í flestum gluggum hússins og bárujárn er á þaki.
Ólöf bjó um áratugaskeið í húsinu ásamt manni sínum, Sigfúsi Baldvinssyni útgerðarmanni en a.m.k. hefur verið tvíbýlt í húsinu um 1942. Þá bjó einnig í húsinu Páll A. Pálsson og sá flutti inn og seldi alls kyns vélar og tæki frá Englandi og Ameríku, m.a. pylsuskurðarvélar, úrbeiningarvélar, dósamiða og umbúðir og smjörlíkisgerðarefni. Enda þótt húsið hafi alla tíð verið íbúðarhús þá var hér einnig starfrækt nuddstofa á fyrri hluta 9.áratugarins, þ.e. Nuddstofa Brynjólfs. Nú er húsið einbýlishús.
Fjólugata 10 er stórglæsilegt hús og í góðri hirðu. Það er með svipuðu lagi og hús nr.8, með háu risi og kvistum og eru húsin nokkuð háreistari en næstu hús. Húsin mynda skemmtilega tvennd í götumyndinni og eru frábrugðin öðrum húsum við götuna. Þá er lóðin einnig vel gróin m.a. birki- og reynitrjám og er til mikillar prýði. Þessi mynd er tekin 22.7.2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundagerðir 1930-35. Fundur nr. 708, 22.sept. 1933. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2015 | 22:03
Hús dagsins: Fjólugata 9
Karl Grant reisti Fjólugötu 9 árið 1934 eftir teikningum Halldórs Halldórssonar. Húsið er einlyft steinhús með lágu risi og á háum kjallara, líkt og öll næstu hús. Grunnflötur er ferningslaga ef marka má upprunalegar teikningar, þ.e. 7,5x7,5m að grunnfleti. Inngangar eru á miðri framhlið og á vesturhlið. Bárujárn er á þaki og T-laga póstar í gluggum en langur stigagangsgluggi á vesturhlið. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en mögulega hafa fleiri en ein fjölskylda búið þarna samtímis á árum áður. Árið 1972 var reistur bílskúr áfastur húsinu að austan og um 1997 voru byggðar svalir úr timbri á suðurhlið, með uppgöngutröppum. Ástand hússins og lóðar virðast eins og best verður á kosið. Ein íbúð er í húsinu. Þessi mynd er tekin 12.júní 2015.
Fjólugata 9 er efst í röð svipaðra húsa, sem öll eru byggð 1933-34 og standa við númer 1-9. Handan götunnar eru hús nr. 2-6 einnig að svipaðri gerð. Þetta eru einföld og látlaus hús, ýmist timburhús eða steinhús og flest lítið breytt frá upphafi, a.m.k. hefur engu húsið verið raskað svo að það stingi í stúf við götumynd. Hér er um að ræða hús alþýðufólks, sem þó virðast hafa verið býsna vönduð að allri gerð. Eru þau flest í góðu standi og vel við haldið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2015 | 21:13
Hús dagsins: Fjólugata 8
Árið 1932 fékk Ósk Jóhannesdóttir lóð næst vestan þeirra tveggja lóða sem Ólafur Ágústsson hafði fengið (Fjólugata 2 6) og leyfi til að byggja þar hús. Húsið skyldi vera timburhús, 9x7,50 metrar ein hæð með porti og risi og kvisti á steyptum kjallara og fylgdi sögunni að kjallaraveggir mættu ekki vera þynnri en 24 cm og húsið yrði að járnverja.
Árið 1933 byggðu Ósk og maður hennar, Anton Ásgrímsson útgerðarmaður, hús það sem enn stendur en teikningar gerði Tryggvi Jónatansson. Fjólugata 8 er timburhús á háum kjallara með háu portbyggðu risi og miðjukvisti á framhlið og smærri kvisti með hallandi þaki á bakhlið. Á vesturgafli er einlyft viðbygging, steypt með skúrþaki byggð um 1970 sem stofa. Á austurgafli eru inngöngudyr og steyptar tröppur upp að þeim. Veggir eru klæddir steinblikki en bárujárn er á þaki. Krosspóstar eru í flestum gluggum hússins, tvískiptir breiðir á framhlið. Við skoðun á upprunalegum teikningum hússins mætti ætla að tvær íbúðir hafi verið í húsinu í upphafi. Alla vega eru þar tvö eldhús í húsinu, annað á hæð en hitt í norðurkvisti í risinu. Árið 1936 eru auglýst 2-3herbergi til leigu ásamt eldhúsi í Fjólugötu 8. Svo virðist sem húsið sé mest lítið breytt frá upphaflegri gerð, ef frá er talin viðbyggingin að vestan. Húsinu er vel við haldið og lítur vel út. Það er ekki ósvipað mörgum timburhúsum frá aldamótum 1900 t.d. húsaröðinni syðst í Norðurgötu. Það er nokkuð frábrugðið aðliggjandi húsum að austan, háreistara og mynda hús nr. 8 og 10 nokkurs konar samstæðu, bæði með háu risi og miðjukvisti. Frá og með 12 taka hins vegar við nokkuð yngri hús (1940-45), með öðruvísi lagi.
Ekki er hægt að fjalla um Fjólugötu 8 án þess að minnast á lóðina en garðurinn er ábyggilega með þeim gróskumeiri á Eyrinni. Hann er þétt skipaður miklum reynitrjám og ljóst að ötult garðyrkjufólk hefur búið þarna. Bakvið reynitrén má svo greina gullregn nær húsinu. Húsið er eitt þeirra húsa sem ógerningur er að mynda að sumarlagi vegna laufskrúðs. Ekki er þó garðurinn minna glæsilegur yfir veturinn þegar mjöllin prýðir trén. Þessi mynd af Fjólugötu 8 er tekin að vorlagi, 14.maí 2015, en myndina af garðinum tók ég um hásumar þann 22.júlí sl.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundagerðir 1930-35, Fundur nr. 687, 21.nóv. 1932. Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2015 | 11:48
Hús dagsins: Fjólugata 7
Þann 16.september 1933 kom bygginganefnd saman á fundi. Eitt erindi var afgreiðsla bréfs sem dagsett var þann 14. frá Jóhanni Indriðasyni þar sem hann sækir um lóð við Fjólugötu, næst vestan við lóð Þorgríms Þorsteinssonar. [Mér þótti einsýnt að hús Jóhanns hlyti að vera Fjólugata 5, þar eð ljóst var að Þorgrímur Þorsteinsson átti númer 3. Hins vegar vill svo til að þetta byggingaleyfi er afgreitt einum og hálfum mánuði áður en Friðgeir H. Berg fékk lóð nr. 5 ] Ekki gekk það alveg snurðulaust fyrir sig að fá lóðina því nefndin bókar eftirfarandi: Þar sem nefndinni er ekki kunnugt um að þessi maður sé búsettur í bænum, vill hún kynna sér ástæður hans til að geta byggt, áður en hún leggur til að honum verði leigð lóðin (Bygg.nefnd Ak. 1933: nr. 707)
En þremur vikum síðar hefur Jóhann fengið grænt ljós frá Bygginganefnd, því 7.október er honum leyft að byggja hús, 7,6 x 6,6m ein úr timbri á steinsteyptum kjallara og húsið járnvarið en ekki mátti reisa timburhús öðru vísi en svo að þau væru járnklætt. Og árið 1934 var risið á Fjólugötu 7 hús það er enn stendur, byggt eftir teikningum Halldórs Halldórssonar. Á hæð voru stofur, svefnstofa og eldhús en geymslur og þvottahús á efri hæð. Og enda þótt húsið sé aðeins um 45 fermetrar á grunnfleti var það nú svo að árið 1940 bjuggu þarna alls 14 manns.
Fjólugata 7 er einlyft timburhús á háum steyptum kjallara með lágu aflíðandi risi. Húsið er klætt skeljasands plötum og í gluggum eru krosspóstar en bárujárn á þaki. Að öllum líkindum er húsið lítið breytt frá upphaflegri gerð. Það er í grófum dráttum mjög svipað næstu húsum, en er það eina í röðinni 1-9 sem ekki hefur inngöngudyr í kjallara á framhlið. Húsið er í góðri hirðu og sömu sögu er að segja um lóðina. Myndin er tekin 12.6.2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundagerðir 1930-35, Fundur 707, 16.sept 1933.
Fundur nr. 709, 7.okt. 1933. Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2015 | 11:54
Hús dagsins: Fjólugata 6
Árið 1933 fékk Ingólfur Árnason byggingarlóð norðan Fjólugötu og byggingarleyfi á lóð sem Ólafur Ágústsson hafði afsalað sér. Honum var leyft að byggja steinsteypt hús á kjallara með lágu risi 7,15x7,5 að stærð. Húsið var ekki ósvipað að lögun og þau sem voru að rísa á lóðum Ólafs, þ.e. nr. 2 og 4. Það er þó eilítið hærra og er auk þess steinsteypt, en við vinnslu þessara greina gekk ég fyrirfram út frá þeirri tilgátu að öll húsin nr. 2-6 væru reist eftir sömu teikningu en nr. 6 hefði síðar verið forskalað. Sú tilgáta reyndist röng.
Fjólugata 6 er einlyft á háum kjallara og með lágu risi. Á bakhlið er einlyft viðbygging með lágu risi, reist árið 1989 og var ætlað að hýsa m.a. vinnuherbergi. Bárujárn er á þaki og einfaldri lóðréttir póstar með tvískiptu opnanlegu fagi í gluggum. Á austurhlið eru steyptar tröppur og inngöngudyr. Líkt og önnur hús í Fjólugötu hefur húsið frá upphafi verið íbúðarhús en oftar en ekki bjuggu fleiri en ein fjölskylda í húsunum í einu. Árið 1936 auglýsti Helgi Daníelsson, búsettur þarna, herbergi til leigu á góðum stað í bænum. Ekki kemur þó fram hvort herbergið, sem einnig gat leigst með aðgangi að eldhúsi og baði var í þessu tiltekna húsi en það verður að teljast líklegast. Húsið er í góðu standi og er að mínum dómi til prýði í götumyndinni. Það myndar skemmtilega þrenningu ásamt húsum númer 2 og 4. Myndin er tekin þ. 12.júní 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar, Fundagerðir 1930-35, Fundur 707, 16.sept 1933 Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Tenglar í texta vísa beint í heimildir af timarit.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 26
- Sl. sólarhring: 41
- Sl. viku: 426
- Frá upphafi: 454838
Annað
- Innlit í dag: 24
- Innlit sl. viku: 247
- Gestir í dag: 24
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar