Færsluflokkur: Bloggar
20.7.2015 | 10:18
Hús dagsins: Hrafnagilsstræti 27; Þrúðvangur
Hrafnagilsstræti er nokkuð löng gata sem nær frá Eyrarlandsvegi við brúnir Barðsgils og upp að Mýrarvegi. Síðast nefnd gata þverar brekkuna og skilur að m.a. Byggða- og Lundahverfi. Gatan liggur austur- vestur upp Brekkuna og þverar á leiðinni Þórunnarstræti og Byggðaveg. Neðri hluti götunnar þ.e. Spottinn á milli Þórunnarstrætis og Eyrarlandsvegar er að mestu byggður um 1930-40 en efri hlutinn er yngri. Með einni undantekningu. Á númer 27 stendur nefnilega syðsta húsið í grasbýlaþrenningunni sem reist var árið 1935 og töldust standa við Vesturgötu. Húsið virðist þó ekki hafa verið númerað en bar nafnið Þrúðvangur.
Daginn eftir að árið 1935 gekk í garð settist maður að nafni Sigtryggur Þorsteinsson, deildarstjóri hjá KEA niður við bréfaskriftir, þar sem hann óskaði eftir erfðafestutúni ofan Þórunnarstrætis. Jarðeignanefnd samþykkti þetta og 10 dögum síðar, 12. janúar samþykkti Bygginganefnd að veita honum leyfi til að byggja timburhús á steyptum kjallara með lágu risi, 8x9m að stærð. Að auki bókar nefndin að skipulagsnefnd telji sig samþykka [...] byggingalóð fyrir hús 220m ofan Þórunnarstrætis og ca 50 m sunnan framlengingar Hrafnagilsstrætis (Bygginganefnd Ak. 1935: nr. 734).Enda þótt Vesturgata komi hvergi fram í bókunum Bygginganefndar er það nú samt svo að í Manntali 1940 er húsið skráð sem Þrúðvangur við Vesturgötu. Þar er skráður til heimilis auk Sigtryggs og konu hans Sigurlína Haraldsdóttur og fjölskyldu sérlegur fjárhirðir, Hjalti Magnússon, 17 ára.
Hrafnagilsstræti 27 er einlyft timburhús með lágu risi og stendur það á háum steyptum kjallara. Á norðurgafli eru tröppur upp að örlitlum inngönguskúr (bíslagi) en ofan kjallarainngangs á vesturhlið snoturt dyraskýli. Krosspóstar eru í gluggum, bárujárn á þaki en steinblikk á veggjum. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en ekki finn ég heimildir um neina stórfellda verslun eða starfsemi í húsinu- hún hefur þá a.m.k. ekki verið auglýst á síðum Akureyrblaðana Dags eða Íslendings. Hins vegar sést, að árið 1952 er eigandi hússins Ragnar Stefánsson og þá auglýsir hann húsið og gripahús (sem nú er vitanlega löngu horfið) til sölu ef rétt tilboð fæst. Kemur þar fram að meðfylgjandi tún sé 16 dagsláttur. Húsið er eitt þriggja grasbýla sem reist voru á þessum slóðum árið 1935. Öll voru húsin sviplík, ein hæð á háum kjallara með lágu risi og í öllum tilfellum var um hobbýbúskap að ræða, þar eð íbúarnir stunduðu aðra atvinnu en búskap. En uppúr miðri öldinni tók þéttbýli að myndast nærri þessum húsum og búskap sjálfhætt. Í minningargrein um Sigtrygg Þorsteinsson segir árið 1961 En nú eru ný byggðahverfi risin þar sem áður voru töðuvellir bóndans í Þrúðvangi (Dagur 10.tbl. 1.3.1961: 4) Þrúðvangur fékk númerið 27 við Hrafnagilsstræti og hefur verið svo í rúma hálfa öld.
Þar sem húsið er nokkrum áratugum eldra er það nokkuð frábrugðið næstu húsum en að lögun og gerð en er engu að síður til mikillar prýði. Það er lítið og látlaust og í mjög góðri hirðu og lóðin vel gróin og snyrtileg. Ein íbúð er í húsinu. Það er að vissu leyti þakkarvert að þessi þrjú eldri hús (Ásabyggð 16, Goðabyggð 7, Hrafnagilsstræti 27) hafi fengið að halda sér þótt byggt hefði verið í kringum þau því hitt er einnig alltof algengt að gömul bæjarhús þurfi að víkja fyrir nýjum hverfum. Myndin er tekin 15. júlí 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar: Fundagerðir 1930-35. Fundur nr. 734, 12. jan 1935. Óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Erlingur Davíðsson ?? (1961). Sigtryggur Þorsteinsson deildarstjóri, minningarorð. Í Degi : 44.árg, 10.tbl. Sótt 19.júlí á timarit.is (hlekkur í meginmáli texta).
(Aths. E.D. Skrifar undir greinina en ekki liggur fyrir um hvern ræðir þar en mér þykir freistandi að álíta E.D. vera Erling Davíðsson, þáverandi ritstjóra Dags. )
Manntal á Akureyri 1940. Óútg. Varðv. Hsksj. Ak.
Bloggar | Breytt 3.12.2019 kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2015 | 23:53
Coming up...
Þeir sem reglulega horfa á erlendar sjónvarpsstöðvar (t.d. Amerískar) kannast við þessi orð, oftar en ekki fyrir auglýsingahlé "Coming up..." og svo kemur yfirlit yfir það sem gerist eftir hlé. Eða "Coming up, next week..." í lok framhaldsþátta. Nú vill svo til að ég er nokkurn veginn ákveðinn með hús dagsins næstu vikurnar. En það eru eldri hús á Brekkunni sem hafa verið "yrkisefni" hjá mér sl. mánuð og mun ég halda áfram með þau.
Vesturgata er heiti gamals dreifbýlisvegar sem lá um Suðurbrekkuna. Við hana voru reist þrjú grasbýli árið 1935 sem öll standa enn. Tvö þessara húsa standa við Ásabyggð og Goðabyggð og þau hef ég þegar tekið fyrir en þriðja stendur við Hrafnagilsstræti.Ég tók þessa mynd fyrr í dag, þ. 15.júlí og í sömu ferð kom ég við á Héraðskjalasafninu og leit í Fundargerðir Bygginganefndar frá 1930-35 og hverju komst ég að þar ? Það verður upplýst í næstu "Hús dagsins" færslu...
Byggðavegur liggur samsíða Þórunnarstræti og er hann sú gata á Akureyri þar sem númer eru hæst. Elsta húsið við götuna, nr.142 er byggt um aldamótin 1900, forskalað timburhús en það hefur ekki staðið alla tíð á þessum stað. Þessa mynd tók ég á göngu minni þann 29.júní sl.
Daginn eftir Sumarsólstöður, þriðjudagskvöldið 22.júní sl. brá ég mér í sund. Myndavélin var með í för og á heimleiðinni myndaði ég þetta sérlega sjarmerandi litla timburhús, sem stendur við Gilsbakkaveg...
Tvö mikil gil skera brekkuna ofan Miðbæjar. Syðra gilið er Grófargil eða "Gilið" (Listagilið) en nyrðra kallast Skátagil og milli þessara gilja er um 100m breið tunga. Á barmi Gilsins liggur áðurnefndur Gilsbakkavegur en á barmi Skátagils er Oddagata. Báðar eru göturnar byggðar á árabilinu 1925-40 og seinna en undantekning eru þessi tvö timburhús frá 1905 og 06. Þessi hús báru (og bera enn) nöfn, eða öllu heldur sama nafn. Annað var Ytra og hitt Syðra, rétt eins og Súlurnar...
(Þessi mynd er tekin þar sem bærinn Kaupangsbakki stóð áður, þann 28.júní 2014. Eyjafjarðará í forgrunni)
Bloggar | Breytt 16.7.2015 kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2015 | 16:59
Hús dagsins: Ásabyggð 16 (áður Vesturgata 13)
Í sumum hverfum má finna hús sem augljóslega eru eldri en nærliggjandi byggð og fanga þau ævinlega athygli þess sem þetta ritar. Þetta eru hús sem oftar en ekki eru frábrugðin nærliggjandi húsum að gerð og stærð. Þá gefur lega þeirra á lóðum stundum til kynna að hús séu byggð fyrir skipulag gatnanna sem þau standa við- oft er um að ræða gömul býli. Brekkan ofan Þórunnarstrætis byggðist að mestu eftir miðja 20.öld og fram undir 1980 en þá voru Lunda- og Gerðahverfi að mestu risin. Hverfið sem afmarkast af Þórunnarstræti í austri, Þingvallastræti í norðri og Mýrarvegi í vestri kallast Byggðirnar og er að mestu byggð á 6. og 7.áratug 20.aldar. Þó standa þar nokkur eldri hús og þar á meðal tvö hús sem standa við Goðabyggð og Ásabyggð. Þegar þau voru byggð töldust þau standa við Vesturgötu en Jón Hjaltason segir að báðar göturnar hafi höggvið [...] skarð í Vesturgötu, sem að lokum hvarf hávaðalaust af bæjarkortinu enda var lega hennar dálítið torræð. (Jón Hjaltason 2009: 211). Árið 1904 talar Páll Briem um Vesturstræti sem á að liggja sunnan við væntanlegan Gagnfræðaskóla [Hús MA, sem var reist þá um sumarið] og gæti ég trúað að þar sé um að ræða götuna sem síðar varð Vesturgata- en heyrir nú sögunni til.
Glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir því að formálin hér er sá nákvæmlega sami og í síðustu færslu, sem fjallaði um Goðabyggð 7. En Ásabyggð og Goðabyggð eru tvær samsíða götur á Suðurbrekkunni og liggja þær austur- vestur á milli Mýrarvegar og Byggðavegar. En þessar götur eru á svipuðum slóðum og áðurnefnd Vesturgata sem var dreifbýlisvegur. Tvö Vesturgötuhús standa enn, annars vegar Vesturgata 9 sem nú telst Goðabyggð 7 og hins vegar Vesturgata 13, sem telst Ásabyggð 16. Um 80 metrar skilja þessi hús að og stendur Ásabyggð 16 ofar og sunnar.
Húsið reistu þau Magnús Pétursson og Guðrún Bjarnadóttir um 1935. Þá hefur húsið ekki verið ósvipað húsi Björns Ásgeirssonar, einlyft með lágu risi á kjallara. Þau hafa líkast til haft einhverjar skepnur því húsinu fylgdu útihús, sem nú eru vitanlega löngu horfin. Á mynd Eðvarðs Sigurgeirssonar sem finna má á bls. 211 í fimmta bindi Sögu Akureyrar sést að þau hafa staðið litlu sunnar, á svipuðum slóðum og nú er Álfabyggð. Árið 1934 fékk Magnús leyfi til að byggja hús á erfðafestulandi sínu við Vesturgötu, lítið timburhús, 7,8x8,5m með lágu risi, tekið fram að risið sé um 2 álnir. Teikningarnar að húsinu eru undirritaðar af H. Halldórssyni sem mér þætti nærtækast að álíta vera Halldór Halldórsson. Byggingaleyfi Magnúsar var þó háð því skilyrði að kæmi byggingin í bága við framtíðarskipulag mætti krefjast þess að húsið yrði flutt. Bygginganefnd bókaði þetta þann 29.ágúst 1934 en rúmum þremur vikum síðar, 21.sept. barst nefndinni símskeyti frá Skipulagsnefnd þar sem fram kom að hús Magnúsar bryti ekki í bága við framtíðarskipulag. Enda stendur húsið enn, 80 árum síðar.
Ásabyggð 16 er einlyft timburhús með háu risi á steyptum kjallara. Á framhlið hússins er kvistur með aflíðandi þaki; skúrþaki. Tvöfaldir krosspóstar ( sexskiptir) eru í gluggum og allt er húsið bárujárnsklætt og hefur líkast til verið frá upphafi. Rishæðin hefur verið byggð síðar en hvenær er mér ekki kunnugt um. Byggðirnar tóku að byggjast á 6.áratugnum og leið Vesturgatan undir lok samhliða. Finna má blaðaauglýsingar frá 1954 þar sem bæði Vesturgötu 13 og Ásabyggðar (númer 4) er getið en heimilisfangsins Ásabyggðar 16 virðist fyrst getið í blaðinu Nýjum kvöldvökum þann 1.maí 1960 . Þá er Margrét Jónsdóttir, búsett þar, meðal vinningshafa í vísnagetraun. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en þarna var einnig starfrækt vélaverkstæði til skamms tíma, um 1962. Í upphafi var húsið einbýlishús og enn er ein íbúð í því. Ásabyggð 16 er glæsilegt hús og vel við haldið, á því virðist vera ný klæðning og gluggar og gluggalistar. Lóðin er einnig vel frágengin og snyrtileg. Þessi mynd er tekin á góðviðrisdegi, 29.júní 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35. Fundir nr. 728, 29.ágúst 1934 og nr. 729, 29.sept. 1934. Óútgefið rit, varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Jón Hjaltason (2009). Saga Akureyrar V bindi. Akureyri: Akureyrarkaupstaður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2015 | 11:47
Hús dagsins: Goðabyggð 7 (áður Vesturgata 9, Silfrastaðir)
Í sumum hverfum má finna hús sem augljóslega eru eldri en nærliggjandi byggð og fanga þau ævinlega athygli þess sem þetta ritar. Þetta eru hús sem oftar en ekki eru frábrugðin nærliggjandi húsum að gerð og stærð. Þá gefur lega þeirra á lóðum stundum til kynna að hús séu byggð fyrir skipulag gatnanna sem þau standa við- oft er um að ræða gömul býli. Brekkan ofan Þórunnarstrætis byggðist að mestu eftir miðja 20.öld og fram undir 1980 en þá voru Lunda- og Gerðahverfi að mestu risin. Hverfið sem afmarkast af Þórunnarstræti í austri, Þingvallastræti í norðri og Mýrarvegi í vestri kallast Byggðirnar og er að mestu byggð á 6. og 7.áratug 20.aldar. Þó standa þar nokkur eldri hús og þar á meðal tvö hús sem standa við Goðabyggð og Ásabyggð. Þegar þau voru byggð töldust þau standa við Vesturgötu en Jón Hjaltason (2009: 211) segir að báðar göturnar hafi höggvið [...] skarð í Vesturgötu, sem að lokum hvarf hávaðalaust af bæjarkortinu enda var lega hennar dálítið torræð Árið 1904 talar Páll Briem um Vesturstræti sem á að liggja sunnan við væntanlegan Gagnfræðaskóla[Hús MA, sem reis þá um sumarið] og gæti ég trúað að þar sé um að ræða götuna sem síðar varð Vesturgata- en heyrir nú sögunni til.
Goðabyggð 7 er eitt þeirra húsa sem falla undir skilgreininguna hér fremst í formála. Húsið stendur innarlega á mikilli og stórri lóð og gæti hæglega talist bakhús við næstu götu sunnan við þ.e. Ásabyggð. Húsið stendur á áttræðu þegar þetta er ritað, byggt 1935 en sögu hússins má rekja til vorsins 1934 en 20.apríl það ár fékk Björn Ásgeirsson innheimtumaður leyfi til þess að byggja á erfðafestulandi sínu við Vesturgötu, eina hæð úr timbri á kjallara. Leyfið var þó háð því að húsið kæmi ekki í bága við framtíðarskipulag svæðisins og ef svo væri heimilt að krefjast þess að húsið yrði flutt honum að kostnaðarlausu. Tæpu ári síðar, í febrúar 1935 skrifar Björn hinsvegar Bygginganefnd og krefst þess að skilyrðin verði burtu felld, þar sem hann fékk ekki lánafyrirgreiðslu vegna þeirra. Bygginganefnd heimilaði það en þó með því skilyrði að hann framvísaði yfirlýsingu Skipulagsnefndar um byggingin yrði ekki í bága við framtíðarskipulag. Ekki sá ég að meira væri fjallað um byggingu Björns Ásgeirssonar í gjörðabókum Bygginganefndar enda taldi ég hreinlega óþarft að leita lengra þar sem niðurstaða málsins er augljós: Björn hefur byggt húsið og enn stendur það 80 árum síðar!
Goðabyggð 7 er einlyft timburhús á háum steyptum kjallara og með lágu risi. Veggir eru klæddir sléttum plötum sem ég ætla ekki að fullyrða um hvort eru asbestplötur eða viður. Gluggar eru með margskiptum póstum, 10-20 litlum rúðum og eru þær ekki ósvipaðar þeim sem sjást á upprunalegum teikningum af húsinu. Á þaki hússins er bárujárn. Teikningarnar að húsinu gerði Halldór Halldórsson. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en ekki er ólíklegt að fyrstu íbúar hússins hafi átt skepnur og stundað minni háttar búskap. Húsið mun hafa kallast Silfrastaðir fyrstu árin meðan það var einskonar grasbýli og taldist standa við Vesturgötu en elstu heimildir sem ég finn á timarit.is um Goðabyggð 7 eru frá febrúar 1963 og er Björn Ásgeirsson þá enn búsettur þarna.
Goðabyggð 7 er sjarmerandi og skemmtilegt hús. Það sker sig nokkuð úr nærliggjandi byggð, bæði minna og annarrar gerðar en næstu hús og lega hússins innst á lóð, sem er sögð 763 fermetrar. Húsið er ekki ósvipað húsum sem standa við Fjólugötu á Oddeyrinni og eru frá svipuðum tíma. Húsið virðist nær óbreytt frá upprunalegri gerð þ.e. að ytra byrði. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin 29.júní 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35. Fundir nr. 719, 20.apríl 1934 og nr. 735, 14.feb. 1935. Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Jón Hjaltason (2009). Saga Akureyrar (V bindi). Akureyri: Akureyrarbær.
Bloggar | Breytt 14.7.2015 kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2015 | 00:20
Sólarlag í Eyjafirði á miðnætti 28.júní, viku eftir sólstöður.
Fyrri helgi var ég staddur á skátamóti á Hömrum. Að lokinni kvöldvöku og kvöldkakói ákváðu nokkrir Rekka- og Róverskátar að bregða sér í Miðnæturgöngu uppá Krossklett, sem er 100 m hár klettahamar (200 m y.s.) fast ofan við svæðið. Ég ákvað að bregða mér með enda veit ég fátt skemmtilegra en göngutúra. Léttskýjað var og gátum við því notið sólarlagsins, sem var hreint út sagt óviðjafnanlegt. Hér eru nokkrar myndir.
Hér að ofan má sjá sólina skríða eftir brúnum Kötlufjalls (907m) í átt að Kaldbaki (1167) og eru þær í tímaröð, efsta myndin er tekin klukkan 23.50, þegar klukkan vantaði 10 mínútur í 12 á miðnætti en sú neðsta klukkan 12 mínútur gengin í eitt, 00.12, þá var runnin upp sunnudagurinn 28.júní. Horft er til norðurs ofan af Krosskletti.
Klettaborgir ofan Hamra hjúpaðar kvöldsól. Í baksýn sjást Staðarbyggðarfjall (t.v.) og Tungnafjall en þar á milli er snjófylltur Þverárdalur.
Arnarklettur ofan Kjarna. Garðsárdalur og Staðarbyggðarfjall fjær, handan Eyjafjarðarár. Arnarklettur og Krossklettur (þar sem myndatökumaður stendur) eru tveir stakir klettastapar sem ganga fram úr austurbrún Súlumýra. Skarðið á milli kallast Kaffiklauf. Þar liggur stikuð leið í skátaskálann Gamla- og þaðan upp á Súlur.
Þessi ágæta planta heitir Burnirót (Rhodiola rosea). Þessi var uppi á Krosskletti, upp af Kaffiklauf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2015 | 10:22
Hús dagsins: Þórunnarstræti 89
Þórunnarstræti sem liggur yfir þvera og endilanga Brekkuna byggðist að mestu á árunum frá 1945-65. Gatan sem slík er miklu eldri og kemur hún fyrst fyrir á prenti í febrúar 1904 í mjög svo áhugaverðum hugleiðingum Páls Briem um skipulag bæja. Fyrstu áratugi 20.aldar var gatan einskonar þjóðbraut frá grasbýlum á Brekkunni og að Eyrarlandi niður að tóvélunum á Gleráreyrum, var m.a. mikið notuð til búfjárrekstrar. Elstu hús götunnar sem enn standa voru reist á þriðja áratugnum, það eru fyrrum grasbýli sem kennd voru við þá Svanberg Sigurgeirsson og Eðvald Möller í Manntali 1930. (ATH. Hér nota ég ofarlega í landfræðilegri merkingu, ekki eftir númerum því númer götunnar fara hækkandi niðrí mót).Húsin höfðu ekki númer og báru að því er virðist ekki sérstök bæjarnöfn. En nú teljast þau standa númer 89 og 97 við Þórunnarstræti.
Árið 1927 fékk Pálína Jóhannsdóttir Möller leyfi til að byggja hús 7.5x7,5m á erfðafestulandi sínu og húsinu fylgdi 400 fermetra lóð. Teikningar að húsinu gerði Sigtryggur Jónsson. Þórunnarstræti 89 er tvílyft hús með lágu risi auk viðbyggingar og áföstum bílskúr. Allt er húsið klætt utan með sverum bjálkum en lengi vel var húsið klætt einskonar eftirlíkingu af múrhleðslu. Þannig lítur húsið út eins og bjálkahús en er líkast til byggt á hefðbundinni timburgrind- en viðbygging er hlaðin úr múrfylltum plastkubbum. Þverpóstar eru í gluggum hússins en bárujárn á þaki. Húsið hefur að líkindum verið byggt sem einskonar grasbýli, en ekki virðist það hafa borið bæjarnafn. Eðvald og Pálína Möller eru einfaldlega kennd við Þórunnarstræti, líkt og Svanberg Sigurgeirsson, en mögulega hefur húsið verið kallað Eðvaldshús, Pálínuhús eða Möllershús í fyrndinni. Hússins er snemma getið í blöðum, en 10.september 1927 er ákveðið á bæjarstjórnarfundi að leggja vatnsleiðslu að húsi frú Pálínu Möller við Þórunnarstræti og rúmu ári síðar heldur Eðvald uppboð á tófuungum við hús sitt. Ekki gat ég séð að nein verslun, iðnaður eða þjónusta hefði verið auglýst í húsinu við leit í timarit.is. Númerið 89 kemur fyrst fyrir í blaði árið 1970 en sennilega hefur húsið fengið númer um líkt leyti og hús Svanbergs Sigurgeirssonar (um 1955). Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús og fyrir tæpum áratug fékk það algjöra yfirhalningu og andlitslyftingu. Það er því allt sem nýtt og er frágangur á viðbyggingu og tengingu við upprunalegt hús til fyrirmyndar. Lóðin er einnig í góðri hirðu. Þessa mynd tók ég á leið á samkundu í Lystigarðinum í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, 19.júní 2015.
Heimildir : Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundagerðir 1921-30: Fundur nr. 599 18.7.1927.
Manntal á Akureyri 1930.
Gjörðabækur Bygginganefndar eru varðveittar á Héraðskjalasafninu sem og Manntöl.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Að öðru leiti er vísað beint í heimildir gegn um tengla í texta.
Bloggar | Breytt 8.7.2015 kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2015 | 11:20
Hús dagsins: Þórunnarstræti 97
Þórunnarstræti er ein af lengri götum Akureyrar. Hún nær frá Miðhúsabraut ofan draga Búðargils í suðri að Gleráreyrum í norðri og þverar Brekkuna. Gatan er númeruð upp að 136 en það merkilega er að lægsta númer við hana er 81. Sennilega hefur númerakerfi miðast við húsaröð langleiðina suður að Naustum en nú hefur Teigahverfi risið ofan við syðsta hluta götunnar. Neðarlega við Þórunnarstrætið stendur Lögreglustöðin en ofar eru Sundlaugin og Íþróttahöllin austan og neðan götunnar, gegnt íþróttamannvirkjunum er Tjaldsvæðið á Þórunnarstræti. Við það stendur m.a. Gamli Húsmæðraskólinn en sunnan hans þetta ágæta hús, Þórunnarstræti 97.
Í Manntali 1930 teljast tvö hús standa við Þórunnarstræti.Hvorugt þeirra er númerað en þau eru kennd við Svanberg Sigurgeirsson og Eðvald Möller. Bæði húsin standa enn og eru númer 89 og 97. En árið 1925 fékk Svanberg Sigurgeirsson vatnsveitustjóri frá Lögmannshlíð leyfi til að reisa steinsteypt íbúðarhús 8 x 7,5 m í suðausturhorninu á svonefndu Laxdalstúni sem hann hafði fest kaup á. Nefndin lýsti því yfir að hún skoðar byggingu á þessum stað sem grasbýli, þar sem hann liggur fyrir utan kaupstaðarlóðina og hið kortlagða byggingarsvæði. (Bygg.nefnd Ak. 1925: nr.574). Þórunnarstræti 97 er einlyft steinsteypuhús á lágum kjallara og með háu risi. Kvistur með aflíðandi hallandi þaki er á norðurþekju hússins auk inngönguskúrs og þar eru steyptar tröppur. Krosspóstar eru í gluggum og bárujárn á þaki. Húsið var reist 1926 eftir teikningum Tryggva Jónatanssonar og var í upphafi einlyft á kjallara með háu risi. Ekki kannast ég við að húsið hafi borið sérstakt nafn, en Svanberg virðist einfaldlega hafa verið kenndur við Þórunnarstræti. Elstu heimildir sem ég finn um númerið 97 eru frá mars 1955 þar sem Svanberg Sigurgeirsson auglýsir 20-30 hesta af töðu til sölu. Þarna var stundaður búskapur fyrstu áratugina en sennilega hefur honum verið sjálfhætt þegar byggðin fór að nálgast og túnið lagt undir tjaldsvæði upp úr miðri síðustu öld. Þó stendur enn steinsteypt bygging á lóðinni sem ég gæti ímyndað mér að sé gömul hlaða eða fjós. Árið 1966 var húsinu breytt eftir teikningum Jóns Geirs Ágústssonar og var þá byggður kvistur á húsið og forstofubygging á norðurhlið og fékk húsið þá það lag sem það nú hefur. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús og ekki sé ég nokkra verslun eða iðnað auglýstan þarna ef heimilisfanginu er slegið upp í timarit.is. Húsið virðist í góðu standi og lítur vel út og sömu sögu er að segja um lóðina umhverfis. Ég velti þessu oft fyrir mér þau sumur sem ég vann á Tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti, hvort þetta hlyti ekki að vera gamall sveitabær, hvað hét þá bærinn og hvenær var hann byggður. Því augljóst þótti mér, að húsið væri töluvert eldra en nærliggjandi byggð og staðsetning þess gaf það einnig til kynna að hér væri um gamalt býli að ræða. Einhvers staðar heyrði ég það eða sá að gert væri ráð fyrir að þetta hús ætti að víkja. Hvort horfið hefur verið frá þeim áformum nú eða hvað er mér ókunnugt um en ég tel að prýði yrði af Þórunnarstræti 97 um ókomna tíð á þessum stað. Þessi mynd er tekin í blíðskaparveðri þann 19.júní 2015 en þarna var ég á leið í Lystigarðinn að kíkja á hátíðahöld í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 574 þ.29.sept. 1925. Óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Manntal á Akureyri 1930. Óútg. Varðveitt á Hsksj. Ak.
Upplýsingar fengnar af Landupplýsingakerfi Akureyrar og timarit.is (sjá tengla í texta)
Bloggar | Breytt 8.7.2015 kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2015 | 21:11
Gamla Apótekið á ferð og flugi 25.6.2015
Endurbygging Gamla Apóteksins við Aðalstræti 4 hefur staðið yfir í nokkra mánuði og í morgun var komið að því að flytja húsið um set, inn á Krókeyri þar sem það bíður á meðan steyptur er nýr grunnur. Mannfjölda dreif að allir vopnaðir myndavélum að sjálfsögðu- enda er það að sjálfsögðu ekki á hverjum degi sem hús, gömul eða ný, leggjast í ferðalög. Látum myndirnar tala sínu máli:
Að sjálfsögðu voru allir helstu fréttamiðlar mættir á svæðið...
Ofarlega í brekkunni má sjá nokkur hross á beit. Þau létu sér fátt um finnast- en maðurinn sem stendur á Spítalaveginum er að sjálfsögðu að mynda.
"Híf opp æpti karlinn" :)
Það þarf enga smá kerru til að flytja Gamla Apótekið. Ég taldi þarna 8 öxla, alls 32 dekk.
Erlendir ferðamenn kynna sér sögu Gamla Apóteksins á einu af mörgum söguskiltum sem sett hafa verið upp í Innbænum.
Gamla Apótekið á ferðinni- hér lötrar það á milli Thulíunusarhúss (Hafnarstræti 18) og Höepfners húss (H-20) annars vegar og tekur hægri beygjuna inn á Drottningarbrautina við Höepfnersbryggju.
Svona lítur hóllinn ofan Aðalstrætis út þegar Gamla Apótekið er farið. Alveg nýtt útsýni að húsunum við Lækjargötu. Þessa tilteknu brekkubrún hafði enginn núlifandi maður séð húslausan þar til í dag. Húsið er byggt 1859, þannig að síðustu eftirlifandi manneskjur sem mögulega hafa séð þessa brekkubrún án Apóteksins gætu hafa látist um 1960. En þetta er aðeins tímabundið, því húsið mætir aftur á svæðið innan fárra missera :)
![]() |
Gamla apótekið flutt af grunninum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2015 | 09:51
Þátturinn "Hús dagsins" 6 ára.
Þann 25.júní 2009 setti ég hér inn á þessa síðu litla mynd af Norðurgötu 17, Gömlu Prentsmiðjunni eða einfaldlega Steinhúsinu hér inn á síðunna ásamt fáum orðum um sögu þess. Ætlunin var að deila um 80 myndum sem ég átti hér ásamt nokkrum orðum um sögu þeirra en ég hafði í rúman áratug haft áhuga á sögu gömlu húsana og hafði sankað að mér ýmsum fróðleik. Nú hefur þessi þáttur, sem ég kalla "Hús dagsins" gengið í slétt 6 ár en fyrst var ég fullviss að ég myndi ekki nenna þessu nema nokkra mánuði- hugsanlega út sumarið ! Fyrstu misserin voru pistlarnir stuttir og knappir en síðar þótti mér tilhlýðilegt að bæta heimildavinnu og skráningu. Það er ákveðið markmið hjá mér að greinarnar séu stuttar og hnitmiðaðar, en ég segi stundum að um hvert gamalt hús mætti skrifa þriggja binda verk. Það finnst mér líka svo skemmtilegt við þetta grúsk- alltaf getur maður heyrt og lært eitthvað nýtt um sögu húsanna, sem maður þykist hafa kynnt sér í þaula. Ég hef ekki hugmynd um hvað pistlarnir eru margir og ég nenni ekki einusinni að reyna að telja þá- fljótt giskað eru þeir líklega nærri 400. Og ég mun enn halda þessu grúski áfram, mér til fróðleiks og gestum þessarar síðu til ánægju og yndisauka. (PS. Þess má geta að upphafsdagur "Húsa dagsins" var einnig dánardægur meistara Michael Jackson )
Bestu þakkir til allra þeirra sem heimsótt hafa þessa síðu og góð viðbrögð þessi sex ár.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2015 | 19:37
Nú hefst sumarið...
Stundum heyri ég fólk tala um að sumri fari nú að halla og styttast í haustið við Sumarsólstöður, af því þá fer daginn að stytta. Það kalla ég að mála skrattann á vegginn- þar eð ef menn kunna á annað borð illa við haustið og veturinn. Vissulega fer nóttin að lengjast en þó skal geta þess að rúmur mánuður líður áður en rökkva tekur á kvöldin. Og þó nætur gerist dimmar þá er enn von á einmuna sumarblíðu í a.m.k. mánuð eftir það. Oft eru júlí og ágúst - og jafnvel fyrri hluti septembermánaðar sólríkari og veður stilltari en í júní. Þess má líka geta að á víðast hvar miðast upphaf sumars við sólstöðurnar. Og hér fyrir norðan hófst sumarið eiginlega bara í síðustu viku, því stóran hluta maímánaðar og í byrjun júní sást varla til sólar og tveggja stafa hitatölur (eða bara yfir 7°) sjaldséðar. Og svo mega þeir sem sjá haust og myrkur handan við hornið þó daginn byrji að stytta hugleiða eftirfarandi: Er vetri farið að halla eða vorið rétt ókomið við Vetrarsólstöður (21.des).
![]() |
Nýliðin nótt var sú stysta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 82
- Sl. sólarhring: 85
- Sl. viku: 482
- Frá upphafi: 454894
Annað
- Innlit í dag: 40
- Innlit sl. viku: 263
- Gestir í dag: 39
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar