Hús dagsins: Sigurhæðir

 Sigurhæðir teljast standa við Eyrarlandsveg 3 en framhlið þess ágæta húss snýr reyndar að Hafnarstrætinu, þar sem það stendur hátt í brekkunni ofan götunnar. p3060055.jpgSigurhæðir var reist sem íbúðarhús fyrir þjóðskáldið sr. Matthías Jochumsson árið 1903 en hann hafði verið búsettur á Akureyri frá 1886, nánar tiltekið í Aðalstræti 50.  Staðsetning hússins er sem áður segir sérstök, þarna hefur á sínum tíma verið stórkostlegt útsýni út og fram fjörðinn. Húsið er einlyft timburhús á steyptum kjallara, með portbyggðu risi og kvisti á miðju.   Matthías bjó í húsinu til dauðadags 1920 en næsti eigandi hússins Jónas Sveinsson breytti húsinu nokkuð, byggði kvisti á risið og breytti því í tvíbýlishús. Svokallað Matthíasarfélag tók sig saman um kaup á húsinu um 1960 og opnaði þar safn um skáldið sem Akureyrarbær fékk svo til umráða 1981. Munir frá Matthíasi eru nú á neðri hæð, og hefur verið leitast við að halda útliti og yfirbragði sem líkast því sem var hjá honum. Það reyndist raunar auðvelt, því þó nokkuð hefur varðveist af ljósmyndum t.d. af skrifstofunni hans. Skrifstofan er á neðri hæð og þegar komið er þar inn dettur manni helst í hug að Matthías hafi rétt skroppið frá í kaffi.  Þá er þarna bókasafn og borð úr stólar úr fórum skáldsins. Á efri hæð er skrifstofa og lítill salur undir súð en hún er raunar innréttuð sem íbúð. Síðastliðin misseri hafa verið margir viðburðir þarna, ljóðakvöld og fyrirlestrar en nánar má lesa um starfsemi Sigurhæða hér. Þessi mynd er tekin 6.3.2010.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að segja frá því að þegar ég var að smíða timburbeðin fyrir neðan húsið þá mokaði ég upp dauðan kött sem hafði verið jarðsettur við hlið hússins.... ekki falleg sjón það... beinagrind af ketti.... mér brá pínu þegar ég svifti hulunni af greyinu...

Mummi (IP-tala skráð) 10.5.2010 kl. 10:19

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Það hefur nú verið aldeilis merkilegur fundur. Kötturinn hefði kannski bara átt að fara á safn.

Arnór Bliki Hallmundsson, 10.5.2010 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 308
  • Frá upphafi: 420183

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 221
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband