4.11.2018 | 17:30
Hús dagsins: Bjarkarstígur 3
Bjarkarstíg 3 reisti Friðjón Axfjörð múrarameistari árið 1945. Friðjón fékk árið 1942 leigðar tvær neðstu lóðir við Krabbastíg, en þær voru inni í trjágarði sem tilheyrðu húsi hans við Munkaþverárstræti 13. Þremur árum síðar fékk hann að byggja hús eftir eigin teikningum úr steinsteypu, ein hæð á kjallara með steingólfi, 13,5x6,35m auk útskota til suðurs, 5,45x7,65m að stærð og til norðurs, 2,1x1,25m. Þess má geta, að í millitíðinni hafði gatan skipt um nafn, en árið 1943 var ákveðið að gatan, sem átti að vera framhald Krabbastígs héti Bjarkarstígur sem hún heitir og síðan.
En Bjarkarstígur 3 er nokkuð stórbrotið funkishús, einlyft á háum kjallara, gæti jafnvel talist tvílyft austanmegin þar sem lóð er lægst en hæðarmismunur er nokkur á lóðum á þessu svæði. Húsið er með flötu þaki og með lóðréttum póstum í gluggum. Þakklæðning er sögð óþekkt í Húsakönnun 2015, en þakdúkur er ekki óalgengur á flötum þökum sem þessum. Friðjón Axfjörð sem byggði húsið, nam múriðn af Tryggva Jónatanssyni og mun m.a. fyrstur manna á Eyjafjarðarsvæðinu lært hleðslu verksmiðjukatla. Átti hann heiðurinn af kötlum í Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði, Skagaströnd og Raufarhöfn. Félagi hans í iðninni var Gaston Ásmundsson, en hann byggði einmitt húsið á móti, Bjarkarstíg 4 eftir teikningum Friðjóns. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en sjálfsagt eiga einhverjir erfitt með að trúa því að í Bjarkarstíg 3 hafi verið rekin bílasala ! Enda er það svo, að bílasölur nútímans þekja oftar en ekki heilu hektarana af bílum. En það er nú engu að síður svo, að á 6. og 7. áratug 20. aldar rak Baldur Svanlaugsson bifreiðasölu sína þarna. En það var raunar ekki óalgengt að bílasölur væru inni í hverfum enda voru bílasölur þess tíma yfirleitt mun smærri í sniðum en bílasölur nútímans, þar sem fleiri hektarar eru þétt skipaðir bílum. Bjarkarstígur 3 er snyrtilegt og vel við haldið hús; virðist raunar sem nýtt að sjá og til mikillar prýði, eða eins og segir í Húsakönnun 2015: Reisulegt og óvenjulegt funkishús sem sómir sér vel í götumyndinni [...] (Ak. Bær, Teiknistofa Arkitekta o.fl. 2015: 30) Lóðin er auk þess vel gróin, m.a. birki og reynitrjám. E.t.v. er þar að finna einhver tré sem Friðjón Axfjörð gróðursetti á fimmta áratug 20. aldar. Myndin er tekin þann 9. október 2018.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 917, 3. júlí 1942. Fundur nr. 1024, 20. júlí 1945. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 13
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 471
- Frá upphafi: 441378
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 331
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.