8.11.2018 | 12:03
Hús dagsins: Bjarkarstígur 4
Árið 1942 sótti Gaston Ásmundsson múrari um lóð við Krabbastíg, þá þriðju frá Helgamagrastræti en fær ekki í fyrr en í annarri tilraun, og er þá tekið fram, að gatan verði ekki lögð þessa leið það sumarið (1942). Ári síðar fær hann lóðarleigu framlengda um eitt ár, en um sama leiti fékk þessi efri hluti Krabbastígs heitið Bjarkarstígur. Gaston fékk leyfi til að reisa hús úr steinsteypu með flötu steinþaki, 13,10x9,75m ásamt útskoti að austan 1x6,5m og útskoti að sunnan 1x4,6m, ein hæð á kjallara. Teikningarnar gerði Friðjón Axfjörð, sem einmitt byggði húsið á móti, Bjarkarstíg 3.
Bjarkarstígur 4 er einlyft steinsteypuhús með flötu þaki og á háum kjallara. Gluggar eru með einföldum lóðréttum póstum og horngluggar í anda funkisstefnunnar m.a. á NV horni. Útskot að framan er með ávölum brúnum og á SA horni hússins eru svalir í kverkinni milli suður- og austur útskota. Á vesturhlið eru steyptar tröppur upp að inngöngudyrum. Lítið þakhýsi stendur upp úr flötu þaki, líkt og brú á skipi og gefur húsinu sinn sérstaka og sérlega skemmtilega svip. Húsin númer 3 og 4 við Bjarkarstíg eru hvort um sig sérlega reisuleg og sérstök funkishús. Bæði eru þau reist eftir teikningum Friðjóns Axfjörð, en Gaston Ásmundsson gekk einmitt í félag við hann og saman stóðu þeir að hinum ýmsu stórbyggingum. Má þar nefna Hússtjórnarskólann á Laugalandi og Gagnfræðaskólann á Akureyri. Þeir samstarfsmennirnir bjuggu þó ekki í mörg ár hvor á móti öðrum, því árið 1948 eignaðist og fluttist í húsið Jón G. Sólnes, bankastjóri og síðar alþingismaður, ásamt fjölskyldu sinni og bjó hann þarna til allt til æviloka 1986.
En húsið, sem er allsérstætt og svipmikið er metið með 2. stigs varðveislugildi, sem vel útfært funkishús emð vísun til erlendra fyrirmynda. Ekki spillir fyrir, að húsið er í mjög góðu standi og hefur sjálfsagt alla tíð hlotið gott viðhald. Lóðin er einnig stór og vel gróin m.a. gróskumiklum reynitrjám. Á bakvið húsið er dálítill túnbleðill ásamt klöpp, sem löngum hefur nýst íbúum Bjarkarstígs, Helgamagrastrætis og Munkaþverárstrætis til leikja, útivistar, ánægju og yndisauka. Þaðan er gott útsýni yfir Oddeyri og yfir Pollinn, eins og sjá á meðfylgjandi mynd sem tekin er á fögrum vordegi, sunnudaginn 13. maí 2018 og horft til SA. Myndin af húsinu er tekin þ. 9. Okt. 2018, og þarna má sjá virðulegan Land Rover, árgerð líklega nærri 1970 í hlaðvarpanum. Sjálfsagt er saga hans ekki ómerkari en hins glæsta 75 ára gamla funkishúss á Bjarkarstíg 4.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar Fundargerðir 1941-48. Fundur nr.900, 28. feb 1942 . Fundur nr. 917, 3. júlí 1942. Fundur nr. 943, 11. júní 1943. Fundur nr. 955, 3. sept. 1943. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 17
- Sl. sólarhring: 34
- Sl. viku: 475
- Frá upphafi: 441382
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 335
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.