Hús dagsins: Hrafnagilsstræti 12

Árið 1935 fékk Hannes Magnússon  lóð við vestanverða Páls Briemsgötu. PA270990 Þeirri götu var ætlað að liggja skáhallt (til suðvesturs) frá  suðurbakka Grófargils að Hrafnagilsstrætis, eilítið vestar en Laugargata, sem var raunar lögð nokkuð síðar.  Í Manntali 1940 er húsið skráð sem Páls Briemsgata 20, og er þá eina húsið við götuna. Þau munu ekki hafa orðið fleiri. Hannes fékk umrædda lóð og leyfi til að byggja þar hús. Nánar tiltekið íbúðarhús úr steinsteypu, á einni hæð á „ofanjarðarkjallara“ skv. meðfylgjandi teikningu og lýsingu, en ekki kemur nánar fram hver sú lýsing er. Teikningarnar að húsinu gerði Guðmundur Gunnarsson. Á þeim teikningum er einnig sýnd lega hússins og hvernig Páls Briemsgötu var ætlað að liggja.

            Hrafnagilsstræti 12 er tvílyft steinsteypuhús í funkisstíl, með flötu þaki og horngluggum mót suðri. Á suðurhlið er útskot og svalir á efri hæð. Þak er pappaklætt, sléttur múr á veggjum og krosspóstar í gluggum. Undir þakkanti er tannstafur, nokkurs konar steyptir ferkantaður hnappar í röð, til skrauts.

            Hannes J. Magnússon, sem byggði húsið var Skagfirðingur, fæddur og uppalin á Torfmýri. Hann lauk prófi frá Kennaraskólanum árið 1923, og kenndi næstu árin m.a. á Fáskrúðsfirði. Árið 1930 fluttist hann til Akureyrar og hóf kennslu við Barnaskólann, þar sem hann var skólastjóri árin 1947-´65. Hann hóf útgáfu barnablaðsins Vorsins árið 1932 og ritstýrði því um áratugaskeið. Hann var einnig ritstjóri tímaritsins Heimilis og skóla í tæpa þrjá áratugi. Þá var hann mikilvirkur barnabókahöfundur og þýddi einnig margar bækur, auk þess sem hann birti fjölmargar sögur í Vorinu. Hannes lést árið 1972. Hann var kvæntur Sólveigu Einarsdóttur frá Seyðisfirði. Bjuggu þau hér fram á miðjan sjöunda áratug, eða í um 30 ár uns þau fluttu til Reykjavíkur. Húsið taldist lengi vel standa við Páls Briemsgötu, enda þótt ljóst væri, að sú gata yrði ekki lögð. Raunar  var fyrirhuguð götulína löngu komin undir hús og lóðir  haustið 1961, þegar húsið varð formlega Hrafnagilsstræti 12 á fundi Byggingarnefndar.

         Hrafnagilsstræti 12 er reisulegt hús og í mjög góðri hirðu. Það er nánast óbreytt frá upphaflegri gerð að ytra byrði. Það stendur nokkuð innarlega á stórri og gróinni lóðinni og eilítið skástætt miðað við húsalínu Hrafnagilsstrætisins.  Kemur það til af staðsetningu hússins við hina fyrirhuguðu götu, áðurnefndri Páls Briemsgötu. Húsið er á meðal elstu funkishúsa á Akureyri, en nokkur slík risu árin 1931-35, en á síðari hluta fjórða áratugarins varð hann svo til alls ráðandi í gerð íbúðarhúsa. Síðar varð til svokallaður „byggingarmeistarafunkis“ og var þar um að ræða funksjonalisma, aðlagaðan að íslenskum aðstæðum. Slík hús standa við Skólastíg, Möðruvallastræti og Laugargötu. Húsið er sagt í Húsakönnun Minjasafnsins árið 2016, frumherjaverk, þar sem hönnuðurinn var að reyna sig við nýjan byggingarstíl, þ.e. funksjonalisma (fúnkís). (sbr. Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir 2016: 68). Þar er húsið metið með hátt, eða 7. stigs varðveislugildi vegna byggingarsögu og menningarsögu. Þá má kannski segja, að húsið og  afstaða þess miðað við önnur hús götunnar, sé eins konar minnisvarði um götuna, sem aldrei varð. Það er, Páls Briemsgötu. Í húsinu er ein íbúð. Myndin er tekin 27. október 2019.

Skanni_20200324

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Páls Briemsgata. Hér er gróf rissmynd (hlutföll, áttir og mælikvarðar engan veginn rétt) undirritaðs af mögulegri, fyrirhugaðri Páls Briemsgötu. Gatan átti að ná alla leið að Grófargili og greinilega gert ráð fyrir a.m.k. 20 húsum, tíu hvoru megin, (sbr. Páls Briemsgata 20). 

 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35. Fundur nr. 747, 14. júní 1935. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Manntal 1940.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 61
  • Sl. viku: 297
  • Frá upphafi: 420318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 204
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband