Hús dagsins: Ægisgata 22

Ægisgötu 22 reistu þau Marinó Tryggvason og Sigrún Finnsdóttir árið 1945.P5011004 Marinó fékk þann 16. febrúar þ.á. lóð nr. 22 við Ægisgötu. Það var raunar sjaldgæft á þeim tíma, að lóðir væru tilgreindar með númerum í bókunum Bygginganefndar. Reglan var fremur sú, að lýsa staðsetningu lóða einfaldlega með afstöðu til næstu þekktu lóða eða húsa (t.d. þriðja lóð norðan við Jón Jónsson eða næsta lóð sunnan við hús Péturs Péturssonar o.s.frv.) En þarna hét það lóð númer 22. Rúmum tveimur mánuðum síðar eða 20. apríl fékk Marinó byggingarleyfi. Hljóðaði það uppá hús úr r-steini, þak úr timbri, stærð hússins 8,6X10,6m auk útskots til vesturs 0,9x5,3m. Húsið ein hæð á lágum grunni með valmaþaki, líkt og öll önnur hús við Ægisgötuna. Upprunalegar teikningar liggja ekki fyrir á kortavef Akureyrarbæjar, en líklegast er hönnuður hússins Tryggvi Jónatansson. Á kortavef má hins vegar sjá raflagnateikningar Ingva Hjörleifssonar   

Sú lýsing sem gefin er upp í bókun bygginganefndar á að mestu við enn í dag, Ægisgata 22 er r-steinhús á einni hæð með valmaþaki.   Einlyft steinhús með lágu valmaþaki. Útskot er að vestan auk þess sem byggt var við húsið til norðurs rúmum áratug eftir að það var byggt. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar með opnanlegum fögum í flestum gluggum. Horngluggar í anda funkisstefnunar eru til suðurs.

Þau Marinó og Sigrún voru bæði úr Saurbæjarhreppi, hann frá Jórunnarstöðum og hún frá Ártúni, sem vill svo til að er næsti bær sunnan við. Marinó fékkst við hin ýmsu störf m.a. hjá Akureyrarbæ og Gefjun, en lengst af hjá Mjólkursamlagi KEA. Sigrún vann lengst hjá Brauðgerð Kr. Jónssonar. Marinó og Sigrún bjuggu hér alla tíð eftir byggingu hússins, eða í rúma hálfa öld, hún lést 1997 en hann 2001. Árið 1957 byggðu þau við húsið til norðurs og austurs en finna má járnateikningar Á. Valdemarssonar af þeirri byggingu á áðurnefndum kortavef Akureyrarbæjar. Mun húsið hafa fengið það lag sem það enn hefur.

Ægisgata 22 er reisulegt og snyrtilegt hús og til mikillar prýði. Það er í mjög góðri hirðu og hefur líkast til alla tíð fengið afbragðs viðhald. Húsið er einbýli, eins og flestöll hús við Ægisgötu. Lóð, sem afmörkuð er við götu með steyptum vegg, er einnig vel hirt og gróin, þar eru m.a. tvö ræktarleg reynitré. Glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir því, að alla pistlana um Ægisgötu endar síðuhafi á sama hátt: Ef sá möguleiki væri fyrir hendi, að friðlýsa heilar götur og götumyndir stæði Ægisgatan svo sannarlega undir því. Leitun er að jafn heilsteyptri og samstæðri götumynd í þetta langri götu en við hana standa 30 hús. Það er a.m.k. álit síðuhafa. Myndin er tekin 1. maí 2021

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr.1005, 16. feb. 1945. fundur nr. 1011, 20. apríl 1945. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk Arnór, gaman að lesa þetta. Kv, Marinó

Marinó Tryggvason (IP-tala skráð) 5.12.2021 kl. 19:48

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Takk sömuleiðis og njóttu vel.

Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 6.12.2021 kl. 11:56

3 identicon

Gaman að fá þennan fróðleik um húsið sem afi og amma reistu. Skemmtileg síða hjá þér Arnór sem ég skoða reglulega. Kv. Hólmar

Hólmar Finnsson (IP-tala skráð) 8.12.2021 kl. 12:37

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Frábært að heyra (lesa), mín er ánægjan og ekki minnkar hún við að vita, að pistlarnir séu til gagns og gamans þeim sem tengjast húsunum á einhvern hátt :) 

Arnór Bliki Hallmundsson, 8.12.2021 kl. 13:14

5 identicon

Frábært að lesa um húsið sem pabbi og mamma byggðu. Man þegar byggt var við húsið þá hef ég verið ca 3ja ára. 

Rósa Marinósdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2021 kl. 20:28

6 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Gaman að sjá og mín er ánægjan. 

Arnór Bliki Hallmundsson, 10.12.2021 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 73
  • Sl. viku: 303
  • Frá upphafi: 420276

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 206
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband