Hús dagsins: Eyrarvegur 25-27

Eyrarvegur 25-27 er eitt margra parhúsa sem Byggingafélag Akureyrar reisti á árabilinu 1939-47, eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. P6221013Húsið stendur austast af hinni miklu torfu Byggingafélagshúsanna, á horni Eyrarvegar og Norðurgötu og markar raunar suðausturhorn hennar. Í vestri og norðri afmarkast þessi þyrping af götunum Sólvöllum og Víðivöllum. Húsið er reist 1947, í síðasta áfanga þessara bygginga við Eyrarveg.  Voru húsin reist eftir byggingarleyfum sem veitt voru 1939 og 1942. Um var að ræða leyfi fyrir húsum, 14,6x7,50m að stærð með útbyggingum í báða enda, 4,3x3,8m. Byggð úr steinsteypu með járnklæddu timburþaki. Síðar voru byggðar stofuálmur við þó nokkur þessara húsa. Síðar voru byggðar stofuálmur við þó nokkur þessara húsa.

Eyrarvegur 25-27 er einlyft steinhús með lágu risi. Húsið er samhverft A-V og á endum, burstir eða álmur sem snúa stöfnum N-S. Á veggjum er steiningarmúr, bárujárn á þaki og einfaldir lóðréttir póstar í flestum gluggum. Burstirnar á endunum eru viðbyggingar, reistar eftir heimild frá Bygginganefnd Akureyrar árið 1952. Byggt var við flest húsin á 6. , 7. og 8. áratugnum, en sum húsin er enn óviðbyggð. Á 27 var byggt við árið 1959 en viðbyggingin við 25 var nokkurn veginn fullbyggð vorið 1960.

Það er saga margra þessara húsa Byggingafélagsins, að þar hafa íbúaskipti ekki verið tíð. Þetta hús er þar engin undantekning, en í báðum hlutum hússins bjuggu sömu fjölskyldurnar, upprunalegir eigendur, í meira en 60 ár. Á Eyrarvegi 25, vesturhlutanum bjuggu frá upphafi þau Torfi Vilhjálmsson (1918-1966),  frá Torfunesi í Köldukinn og Ólöf Valgerður Jónasdóttir (1916-2013) frá Vogum í Mývatnssveit. Á 27, austurhlutanum bjuggu þau Frímann Guðmundsson (1917-2000),  frá Gunnólfsvík á Langanesi og Soffía Guðmundsdóttir (1918-2011) frá Syðsta Mó í Fljótum.

Torfi Vilhjálmsson (1918-1966) stundaði lengst af byggingavinnu og kom m.a. að byggingu Oddeyrarskóla, sem tekinn var í notkun 1957. Þar var hann húsvörður eða umsjónarmaður og sinnti því starfi til dánardægurs. Ólöf (1916-2013) starfaði í Oddeyrarskóla, við ræstingar, en  hún vann einnig hjá Útgerðarfélaginu. Ólöf Jónasdóttir bjó á Eyrarvegi 25 allt til ársins 2013, eða í 66 ár og var tæplega 97 ára er hún fluttist á Dvalarheimilið Hlíð.

Frímann Guðmundsson, Frímann í Alaska, vann lengst af sínum starfsaldri hjá KEA, en þar hóf hann störf hjá matvörudeildinni árið 1939. Hann var lengi vel útibústjóri í versluninni Alaska við Strandgötu 25. Deildarstjóri hjá KEA var hann frá 1957. Líkt og nágrannarnir vestanmegin bjuggu þau Frímann og Soffía á Eyrarvegi 27 til æviloka, hann lést árið 2000 en hún árið 2011.

Parhúsið við Eyrarveg 25-27 er reisulegt og glæst hús. Er það í mjög góðri hirðu, á því er t.d. nýlegt þak.  Þá hefur húsið væntanlega hlotið afbragðs viðhald í tíð upprunalegra eigenda og sú tíð sem spannaði meira en 60 ár. Austurendi hússins tekur þátt í götumynd Norðurgötu. Lóðir eru grónar og vel hirtar, á 27 ber mikið á verklegum og gróskumiklum birkitrjám. Trjám sem þau Frímann og Soffía hafa væntanlega gróðursett á sínum tíma. Húsið er hluti mikillar þyrpingar sams konar húsa, verkamannabústaða Byggingafélagsins, og ætti þessi merka torfa að sjálfsögðu að njóta friðunar. Það er a.m.k. álit síðuhafa. Myndirnar eru teknar þann 22. júní 2021.  

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar: Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 840, 10. Ágúst 1939, nr. 842, 18. Sept. 1939. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 920, 7. ágúst 1942. Fundargerðir 1948-57: Fundir nr. 1149, 22. feb. 1952, nr. 1158, 7. júlí 1952. Óprentað, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Pétur Torfason veitti einnig góðfúslega upplýsingar m.a. um byggingarár viðbygginga og eru honum færðar bestu þakkir fyrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 62
  • Sl. viku: 587
  • Frá upphafi: 420752

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 468
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband