Hús dagsins: Lækjargata 2a; Frökenarhús

Í miðju hinnar skemmtilegu húsaþrenningar á horni Aðalstrætis og Lækjargötu er svokallað Frökenarhús. Það telst standa nr. 2a við Lækjargötu enda þótt það standi, strangt til tekið, við Aðalstræti.  Samkvæmt Fasteignaskrá er skráð byggingarár Lækjargötu 2a, 1824. Ef það er rétt, er Lækjargata 2a annað elsta hús Akureyrar, hafandi rúman áratug framyfir Gamla Spítalann (1835). Hins vegar liggja fyrir nokkuð óyggjandi heimildir fyrir því, að húsið sé ekki byggt fyrr en 1839-40. Þar kemur við sögu enginn annar en amtmaðurinn og skáldið valinkunna Bjarni Thorarensen.  Við könnun á uppruna húsa eru fundargerðarbækur bygginganefndar með áreiðanlegustu og mest afgerandi heimildunum sem bjóðast. En Bygginganefnd tók ekki til starfa fyrr en 1857, þannig að hús sem byggð eru fyrir þann tíma rötuðu ekki í bókanir hennar. 

Lækjargötu 2a byggði Margrét Thorarensen, P8091030dóttir Stefáns amtmanns Thorarensen á Möðruvallaklaustri.  Að öllum líkindum er húsið annað húsið í Akureyrarsögunni sem kona byggir, en nokkrum árum fyrr, 1834, hafði Vilhelmína nokkur Lever byggt hús þar sem nú er Hafnarstræti 23. Þess má geta, að þessar tvær heiðurskonur, sem fyrstar kvenna byggðu hús á Akureyri, voru nánast jafnöldrur, Vilhelmína fædd 1802 en Margrét 1803. Þess má líka geta, að þær létust sama ár, 1879.  

Lækjargata 2a er einlyft timburhús með háu risi og tveimur smáum kvistum á framhlið. Á bakhlið er einn kvistur og viðbygging, einlyft með einhalla þaki og mun hún að hluta til grjóthlaðin. Á veggjum er timburklæðning, lóðrétt borð með listum yfir samskeytum, svonefnd listasúð, og bárujárn á þaki. Grunnflötur hússins er um 7,54x5,75m og bakbygging um 3x3m (ónákvæmt). Vesturhlið er örlítið lengri en húsið og Aðalstræti 6, sem áfast er húsinu að norðan, liggja ekki alveg hornrétt hvort að öðru. 

Það var í febrúar árið 1840 sem Bjarni Thorarensen skrifar í bréfi til Gríms Jónssonar að Margrét frænka hans sé að byggja sér hús. Og einnig hafa varðveist reikningar frá Gudmannsverslun sem staðfesta, að Margrét tók út efni til efni til húsbyggingar á svipuðum tíma og timbur til girðingar við nýtt hús í júní sama ár. (Sbr. Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir 2012) Það má því nokkurn veginn slá því föstu að Margrét hóf byggingu þessa húss sumarið 1839 og vann að byggingu þess fram á árið 1840. Árið 1845 er Margrét skráð í Manntali sem fröken” og jarðeigandi til heimilis að Akureyri öðrunafni Eyjafjarðar höndlunar eður verðslunarstaður og virðist hús hennar teljast númer 43 í verslunarstaðnum. En Margrét giftist aldrei og var ætíð nefnd fröken, meira að segja titluð sem slík í Manntölum og húsið nefnt Frökenarhús.  

Sem fyrr segir, lést Margrét Thorarensen árið 1879 og skömmu síðar eignaðist Stephan Stephansson húsið. Hann reisti árið 1894 viðbyggingu sunnan við húsið, sem síðar varð séreign og er nú Lækjargata 2. Frökenarhús varð þá Lækjargata 2a og er svo enn. Stephan Stephansson bjó hér til æviloka, 1919 og ekkja hans, Anna G. Melstad, orðlögð fyrir gestrisni og rausnarskap, flutti héðan ári síðar. Eignaðist þá Eggert Stefánsson símritari húsið og sama ár var húsið virt til brunabóta: „Íbúðarhús einlyft og tvílyft, einlyfti parturinn með háu risi og tvílyfti parturinn með láu [svo] risi“ Við framhlið voru 3 stofur, við bakhlið var ein stofa, eldhús og forstofa. Á lofti voru fimm íbúðarherbergi, tvær geymslur og lítill skúr við bakhlið. Tveir skorsteinar voru á húsinu. Húsið var þá sagt timburklætt með steinplötum og þak úr timbri og járnvarin. Athuga ber, að þessi lýsing á við bæði húsin, Lækjargötu 2 og 2a. Það var hins vegar á fimmta áratug síðustu aldar sem húsunum var skipt í tvo eignarhluta þegar Kristinn Jónsson keypti húsið af Pétri Guðmundssyni. Hafa síðan margir átt og búið í Frökenarhúsi, sem lengst af hefur verið einbýlishús.   

Húsið var frá upphafi timburklætt, líkt og tíðkaðist lengst af. Árið 1956 var húsið hins vegar múrhúðað eða forskalað og gluggum breytt og var það svo til ársins 2021. Fóru þá fram gagngerar endurbætur á húsinu, eftir teikningum Róberts Svavarssonar. PC190311 Miðuðu þær að því, að færa húsið sem næst upprunalegu útliti, múrhúð tekin af og lóðrétt timburborð sett í staðinn og lóðréttum póstum skipt út fyrir sexrúðuglugga. Í stað stallað bárustáls kom bárujárn.  Skemmst er frá því að segja, að þær endurbætur hafa heppnast stórkostlega og er nú mikill sómi af þessu þriðja elsta húsi bæjarins. Rétt að nefna, að húsið var þó ekki til neinnar óprýði enda mjög vel við haldið.  

Frökenarhús er að sjálfsögðu friðlýst skv. aldursákvæði Þjóðminjalaga og tilheyrir auk þess einni elstu húsasamstæðu bæjarins. Í Húsakönnun 2012 segir á einum stað: „Húsin á horni Aðalstrætis og Lækjargötu mynda eina elstu húsaþyrpingu á Akureyri. Þau eru hluti af sögulegum kjarna gömlu byggðarinnar í hjarta gömlu Akureyri. Elsta húsið, Frökenarhús, Lækjargata 2A er byggt um 1840 og og er friðað nú þegar en það er órjúfanlegur hluti heildarinnar sem myndar þessa þyrpingu og því ætti friðunin að ná til hennar allrar” (Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir 2012: 19). Skemmst er frá því að segja, að nú eru öll húsin í þessari torfu aldursfriðuð en hin svokallaða 100 ára regla gekk í gildi skömmu eftir að umrædd húsakönnun var gerð. Myndirnar eru teknar 19. Desember 2015 og 9. ágúst 2022.  

Heimildir 

Brunabótamat 1916-17. Varðveitt á Héraðsskjalsafninu á Akureyri, aðgengilegt á vefnum: Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1916-1917 by Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Issuu 

Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Minjasafnið á Akureyri. Pdf-skjal á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Fjaran-og-Innbaerinn-2012.pdf 

Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík. Örn og Örlygur 

Ýmis manntöl og gögn á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is,  greinar á timarit.is; sjá tengla í  texta. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 63
  • Sl. viku: 584
  • Frá upphafi: 420749

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 465
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband