27.6.2013 | 15:12
Hús dagsins: Stöðvarhús Glerárvirkjunar
Af fáum húsum sem ég hef tekið fyrir hér á ég myndir af meðan þau eru í byggingu. Enda eru flest húsin hér á síðunni oftar en ekki margfalt eldri en ég - oft mörgum áratugum eldri en nokkur núlifandi maður! En einhverntíma hef ég birt myndir af stöðvarhúsi Glerárvirkjunar sem ég tók á útmánuðum 2005 og lofaði að ég myndi setja inn mynd af því eins og það lítur út nú. En Glerárvirkjun var upprunalega tekin í notkun haustið 1922 og var stíflan yfir Glerárfoss og stöðvarhúsið um eitt ár í byggingu. Yfirmaður byggingarinnar var Svíi að nafni Olof Sandell. Stöðvarhúsið stóð (stendur) um 50m neðar í gilinu og er fallhæðin frá lónsyfirborði og niður í hús um 15metrar. Upprunalega húsið sem byggt var 1922 var einlyft með valmaþaki og. Um aldamótin 2000 höfðu virkjunarmannvirkin staðið ónotuð í áratugi. Rekstri virkjunar var hætt 1960 og var stöðvarhús rifið um 1980, komið í talsverða niðurníðslu. Göngubrú var reist yfir stífluna 1998 og árin 2003-04 var ráðist í að endurreisa Glerárvirkjun og var það Norðurorka og Verkfræðistofa Norðurlands sem stóðu fyrir því. Stöðvarhúsið
nýja er reist á grunni eldra hússins og líkir að mestu eftir útliti upprunalega hússins. Myndirnar hér eru teknar 18.febrúar 2005-á meðan húsið var í byggingu- og réttum átta árum síðar, 24.febrúar 2013.
Hér eru nánari upplýsingar um Glerárvirkjun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2013 | 12:02
"Hús dagsins" 4 ára.
Þann 25.júní 2009 eða fyrir nákvæmlega fjórum árum birti ég fyrsta pistilinn sem ég kalla "Hús dagsins". Ég hafði þá þegar um nokkurra ára skeið grúskað nokkuð um húsasögu Akureyrar og átti ágætis myndasafn af þessum gömlu og sögufrægu og þótti nú um að gera að deila þessum myndum og fróðleik. Ætlunin var svosem ekki að þetta yrði einhver sérstök húsasíða- enda hef ég af til laumað öðru efni með- eða heldur að halda þessum pistlum mikið lengur áfram en myndirnar entust. En ég hef rakið þessa sögu nokkuð oft og ætla hér einungis að endurbirta fyrsta pistilinn sem var um Norðurgötu 17, Gömlu Prentsmiðjuna.
25.6.2009 | 10:28
Hús dagsins: Norðurgata 17
Ég hef í nokkrar vikur birt myndir sem ég á af húsum á Akureyri og stutta umfjöllun um þau á Facebook. Hérna mun halda áfram með það. Eru þetta yfirleitt gömul hús á Oddeyri eða Innbænum en ég á orðið ágætis myndasafn af þeim. Heimildir um byggingarár og sögu húsanna eru fengnar úr öllum mögulegum bókum um byggingarsögu Akureyrar auk þess sem ég hef sótt a.m.k. eina sögugöngu Minjasafnsins um þessi eldri hverfi á hverju sumri síðan 1997.
Hús dagsins er Norðurgata 17, einnig kallað Steinhúsið eða Gamla Prentsmiðjan. Húsið er það eina á Akureyri sem hlaðið er úr blágrýti svipað og Alþingishúsið og Hegningarhúsið. Byggingarár mun vera 1880 og er þetta hús í 3.-4.sæti yfir elstu hús á Oddeyri. Í þessu húsi var lengst af starfandi prentsmiðja en ýmis önnur starfsemi hefur einnig verið stunduð í húsinu á 130 árum.
Ég minntist á að þetta væri 3.-4. elsta hús Oddeyrar. Sjálfsagt mál er að telja upp þau hús á Oddeyri sem teljast eldri en Steinhúsið. Norðurgata 11 er jafn gamalt (1880), Lundargata 2 (1879), Strandagata 27 (1876) og elst er Strandgata 49, Gránufélagshúsið, (1874).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2013 | 16:00
Hús dagsins: Grundargata 5 (ásamt endurbirtingu nr. 6 og 7)
Ég hef síðustu daga verið staddur í Grundargötu, stystu og einni af elstu þvergötum Strandgötunnar og hér loka ég umfjölluninni um götuna, en hús nr. 6 og 7 hef ég áður tekið fyrir. En á þessari mynd er það Grundargata 5. Nú er það svo að þeim tveim heimildum sem ég hef helst stuðst við í skrifunum mínum ber ekki um saman um byggingarár hússins eða hver byggði. Guðný Gerður og Hjörleifur (1995) segja húsið byggt 1896 af bræðrunum Sveini og Stefáni Ólafssonum, sem fengu þarna byggingarleyfi árið áður en Steindór Steindórsson (1993) segir húsið byggt 1898 af Jónatan Jónssyni og Einari Sveinssyni. Þetta gæti í sjálfu sér hvort tveggja verið rétt, þ.e. hinir síðarnefndu gætu hafa keypt húsið, hugsanlega hálfbyggt, af bræðrunum en það er ekkert einsdæmi að upprunasaga húsa á þessum aldri sé óljós. En þegar húsið var virt til brunabóta 1916 er það sagt einlyft timburhús á lágum kjallara og með háu portbyggðu risi. Og þess má geta að tæpri öld síðar á nákvæmlega þessi lýsing enn við húsið sem er að stórum hluta óbreytt að ytra byrði frá fyrstu gerð. Húsið er ágætis mælikvarði á breytingarnar á næstu húsum, númer 3 og 6 því fyrsta áratug 20.aldar voru þessi þrjú hús mjög svipuð að gerð og lögun. Húsið var klætt steinblikki á sínum tíma en um 1995 var sú klæðning fjarlægð og húsið klætt láréttum timburborðum; panel. Á norðvesturhorni lóðarinnar stendur steinsteyptur bílskúr frá 1964. Húsið er einbýlishús og hefur verið um áratugaskeið. Þessi mynd er tekin 6.6.2013.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og
Og hér koma pistlarnir um númer 6 og 7:
VIÐAUKI I: Um Grundargötu 6 fjallaði ég haustið 2011.
14.9.2011 | 19:51
Hús dagsins: Grundargata 6; Hjaltalínshús
Grundargötu 6 reisti maður að nafni Jón Jónatansson árið 1903. Húsið er stórt einlyft timburhús með portbyggðu risi. Ris er af svokallaðri mansard gerð. Mansardi mætti sjálfsagt best lýsa þannig að risið sé á "tveimur hæðum", efra risið að mæni er aflíðandi en upp frá veggjum er risið bratt. Þannig er brot í risinu. En húsið var ekki svona í upphafi. Vitað er að árin 1915 og 1920 byggði þáverandi eigandi, Ólafur Ágústsson tvisvar við húsið og í millitíðinni 1918 var húsið virt og þá var það einlyft með portbyggðu risi og viðbyggingu sem hýsti verkstæði. (sbr. Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson 1995) Árið 1920 er talið að húsið hafi fengið það lag sem það hefur nú en mér dettur í hug að þá hafi mansardþakið verið byggt ofaná einlyftu viðbygginguna. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, sennilega hefur fjöldi íbúða verið breytilegur gegn um tíðina, en síðustu áratugi hefur húsið verið einbýli. Ég hef heyrt húsið kallað Hjaltalínshús, en ekki kann ég söguna á bakvið það viðurnefni.
Ekki eru til lýsingar hvernig húsið leit út upprunalega, en á þessari mynd er ég búinn að teikna líklegt útlit upprunalega hússins gróflega miðað við rislínuna. Er þetta eina myndin hingað til sem ég hef birt hér sem eitthvað hefur verið átt við eða breytt. Annars koma allar myndir á þessa síðu eins og þær koma fyrir úr myndavélinni. Notaði ég ósköp einfalt teikniforrit, Paint (undir Accesories) til verksins. Þegar steinblikkklæðningu var flett af húsinu í ágúst sl. komu nefnilega í ljós útlínur upprunalega hússins, greinileg skálína á gafli og einnig má sjá lítinn glugga undir súð sem hefur verið lokað fyrir. Ég stökk auðvitað til og tók þessa mynd af húsinu. Húsið var fyrir fáum árum farið að láta verulega á sjá en eins og sjá má er húsið í gagngerum endurbótum, bæði að utan. Það stefnir allt í að þetta 108 ára timburhús verði hið stórglæsilegasta eftir endurbætur og verður spennandi að sjá afraksturinn. Þessi mynd er tekin 24.ágúst 2011.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.
VIÐAUKI II Grundargötu 7 tók ég stuttlega fyrir í pistli 13.júlí 2009 um nokkur eldri steinhús... http://www.arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/912866/
Grundargata 7, hér til hliðar, er reist 1920. Þarna má sjá einstakan stíl, ekki aðeins fyrir steinhús heldur er húsið afar sérstakt að lögun. Er það byggt sem tvær álmur, önnur mun breiðari en hin sem snýr að Gránufélagsgötu ( þaðan sem myndin er tekin ) er lengri en breiddin og stendur út af. Þannig myndar grunnflötur hússins einskonar "L". Á suðurgafli er eldvarnarveggur, sem getur bent til þess að byggja hafi átt við það samskonar hús. Steinhús héldu almennt "timburhúsalaginu" fram yfir 1920 en upp úr 1930 fóru að koma fram sérstakar byggingarstefnur í steinhúsum á borð við t.d. fúnkís. Grundargata 7 er stundum kallað Ólafsfjarðarmúli vegna sérstakrar lögunar. Myndirnar í þessari færslu eru allar teknar 19. apríl 2008.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2013 | 01:46
Þjóðhátíðardagurinn á Akureyri.
Hér koma nokkrar myndir sem ég tók fyrr í kvöld- ætla að mestu að láta þær tala sínu máli:
Tryllitæki margskonar eru ævinlega áberandi í bæjarlífinu um þjóðhátíðardaga en Bíladagar hafa verið haldnir hér um árabil og hæst ber auðvitað sýningin á 17. Ég missti reyndar af henni í dag en í Skipagötunni voru þessir tveir Chevrolet-ar, Bel Air (sá dökki) og Malibu, árgerðir líklega sitt hvoru megin við 1960.
Hápunktur hátíðahaldanna er eflaust í huga margra þegar nýstúdentar úr MA marséra inn í Miðbæinn nærri miðnætti. Þetta slær ævinlega botninn í hátíðahöldin um kvöldið en í þetta sinn tóku Hvanndalsbræður tvö lög eftir að stúdentarnir yfirgáfu svæðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2013 | 13:21
Hús dagsins: Grundargata 4
Við höldum okkur í Grundargötunni og tek ég hana fyrir í númeraröð. En Grundargata 4 var byggð sem pakkhús eða geymlsuhús árið 1902, af athafmanninum J.V. Havsteen í Strandgötu 35 sem stendur einmitt á horni þeirra götu og Strandgötu. Fljótlega keypti Guðmundur Guðmundsson húsið og breytti því í íbúðarhús og mun það mjög snemma hafa orðið tveir eignarhlutar. Guðmundur nefndi húsið Blárófu, og skyldi þá ætla að húsið hafi verið blátt að lit í þá daga. Upprunalega mun húsið hafa verið einlyft timburhús á steyptum kjallara með portbyggðu risi en líkt og húsið á móti, nr. 3 má sjá á húsinu sögu mikilla stækkana og breytinga. Stærstu breytingarnar á húsinu munu hafa orðið 1926 en þá var risi lyft að aftan og byggð einlyft viðbygging á sömu hlið en síðar var einnig byggð forstofubygging á suðurgafl. Nú er húsið járnklætt með þverpóstum í gluggum og tveimur litlum kvistum á risi sem líklega komu frekar snemma. Grundargata 4 er nú parhús og hefur verið í áratugi eða því sem næst frá upphafi en líklegt þykir mér að fyrir 1930 hafi búið þarna fleiri en tvær fjölskyldur. Þessi mynd er tekin 6.júní 2013. Í næsta pistli mun ég taka fyrir Grundargötu 5 en einnig endurbirta pistla um númer 6 og 7.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2013 | 15:01
Hús dagsins: Grundargata 3
Elsta húsið við Grundargötu er þetta hús, Grundargata 3 en það var reist 1886 af Einari Sveinssyni. Þá var það töluvert öðru vísi en nú og líkast til ekki óáþekkt næsta húsi, Grundargötu 5 (sem var reyndar byggt rúmum áratug síðar) einlyft timburhús á lágum kjallara með lágu risi. Fyrir sléttri öld eða 1913 mun fyrst hafa verið byggt við húsið og þá til suðurs og var það þáverandi eigandi, Steinn Jóhannsson sem stóð að því. Það var tvílyft steinsteypt álma sem sneri göflum A-V en húsið snýr líkt og gatan N-S. Þegar húsið er virt 1918 er það allavega sagt einlyft timburhús með risi með tvílyftri viðbyggingu að norðan og þá var mun það hafa verið orðið allavega tveir eignarhlutar. Tveim árum síðar, eða 1920 er húsið enn stækkað en þá líkast til suðurs og var húsið eftir lengi vel eftir það eiginlega þrjár álmur, sú nyrsta tvílyft með lágu risi, í miðið var upprunalega húsið, einlyft með bröttu risi og kvisti og nyrst tvílyfta steinsteypuálman frá 1913. Löngu seinna var svo risið hækkað á miðhluta og nú er húsið tvílyft með lágu risi, múrhúðað timburhús og steinsteypt að hluta en bakhlið er bárujárnsklædd. Þverpóstar eru í gluggum. Hvenær nákvæmlega húsið fékk þetta lag sem það nú hefur er mér ókunnugt um. En allavega er húsið nú tveir eignarhlutar og skiptist í miðju og hefur verið svo í áratugi. Eigendur, leigjendur og aðrir íbúar hússins gegnum þessi tæpu 130 ár hljóta að skipta mörg hundruðum og ljóst er að nokkrum sinnum hefur það sprungið utan af innbyggjurum sínum. Margar og miklar viðbyggingar segja oft slíka sögu, en oft var búið mjög þröngt á Eyrinni á fyrri hluta 20.aldar. Í mörgum tilvikum hefur eflaust ekki veitt af að byggja við ýmis hús en fjárráð ekki leyft það. En Grundargata 3 lítur í dag vel út og virðist í góðu standi. Þessi myndir er tekin á lognkyrru sumarkvöldi, 6.júní 2013.
Grundargata 5, byggð 1898. Grundargata 3 var fyrstu 25 árin ekki ósvipuð þessu húsi að lögun og gerð. Ég mun fjalla um þetta hús í þar næsta pistli. Til hægri sést í norðurhlið Grundargötu 3 en þar steyptur gluggalaus veggur; eldvarnarveggur.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.6.2013 | 12:41
Hús dagsins: Grundargata 1
Ég hef haldið mig Oddeyrina síðustu vikurnar og mun halda áfram næstu daga en nú ætla ég að taka fyrir stystu þvergötuna út úr Strandgötu, Grundargötuna á einu bretti í fjórum pistlum. Tvö hús hef ég áður tekið við götuna og mun ég endurbirta þá umfjöllun í síðasta pistli mínum um Grundargötuna. En við götuna standa aðeins sex hús, frá 1-7 en Grundargata 2 fyrirfinnst ekki og ekki veit ég til þess að það hús hafi nokkurn tíma staðið.
En byrjum á húsinu hér á myndinni, þ.e. Grundargötu 1. En húsið er byggt 1924 af Ólafi Ágústssyni húsgagnasmiði sem reisti og átti Strandgötu 33 og var þetta hús byggt sem smíðaverkstæði. . Það var stækkað fjórum árum seinna , hvort að risið var byggt ofan á húsið þá. Síðar voru þessi tvö hús tengd saman með einlyftri steinsteypubyggingu og húsið innréttað sem íbúð en í tengibyggingunni milli hússins og Strandgötu var um tíma sjónvarpsver Stöðvar 2 og seinna kvikmyndafyrirtækið Samver. Grundargata 1 glæsilegt hús í góðu sandi. Það er einlyft steinsteypuhús með háu risi og miðjukvisti. Þak er klætt járni sem líkir eftir steinskífuklæðningu en slík klæðning mun upprunalega hafa verið á þaki- skv. gömlum myndum. Margskiptir póstar eru í gluggum. Húsið er einbýlishús en önnur íbúð er í tengibyggingu sem ég er ekki viss hvort telst vera númer 1a eða 1b eða mögulega Strandgata 33a eða b. Þessi mynd er tekin að kvöldi 6.júní 2013.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.6.2013 | 14:23
Hús dagsins: Gránufélagsgata 12 (áður 28)
Ég hef haldið mig nokkuð við Oddeyrina sl. vikur í húsaumfjölluninni og mun líklegast halda því áfram. Sem fyrr er það tilviljanakennt hvort það líða tvær vikur eða tveir dagar milli færsla hjá mér- - en það er svosem ekki ofarlega á forgangslistanum hjá mér þessa dagana að sitja við tölvuna nú þegar langþráð sumar hefur látið sjá sig hér fyrir norðan. En nóg um það. Ég fór um daginn að ljósmynda Grundargötu en fann einnig gamla mynd í safninu hjá mér af þessu húsi sem er Gránufélagsgata 12.
En Gránufélagsgata 12 var lengst af númer 28 og var númerinu breytt um 2000. Hvernig á því stóð, bæði upprunalega númerinu og hvers vegna því var breytt hef ég ekki græna glóru um enda númerakerfi Gránufélagsgötunnar hin mesta ráðgáta. Líklega var þó númerinu breytt til þess að húsin stæðu í réttari röð, því næst ofan hússins er númer 10 og 16 neðar við götuna. En Gránufélagsgötu 12 (eða 28) reisti Sigtryggur Helgason árið 1931 eftir teikningum Halldórs Halldórssonar en meðal annarra bygginga sem teiknaði er t.d. Sambyggingin (1929) neðar við Gránufélagsgötu og Langavitleysa (1942) við Hríseyjargötu. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með háu risi og hefur haldist að miklu leyti lítið breytt frá upphafi. Rishæð eða vesturherbergi þess var leigt út fram yfir miðja 20. öld en stærstur hluti rishæðar var lengi vel geymsla og oft notuð til að þurrka þvott þegar ekki viðraði til þess úti. Gluggar eru þó líklegast breyttir en í þeim eru þverpóstar, hafa sennilega verið krosspóstar í upphafi. Tvær íbúðir eru í húsinu á neðri hæð og á efri hæð og risi og hefur sú skipan líkast til verið frá upphafi. Húsið lítur vel út og er í góðu standi og lóð er stór og gróin. Geymsluskúr var áður á lóðinni sunnarlega, einnig stór kartöflugarður austast á lóðinni. Þessa mynd tók ég fyrir um fjórum árum, á miðnætti eftir Sumarsólstöður, 22.júní 2009.
Bloggar | Breytt 29.9.2018 kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 8
- Sl. sólarhring: 40
- Sl. viku: 282
- Frá upphafi: 450440
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 182
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar