28.7.2009 | 14:00
Hús dagsins: Gránufélagshúsin, Strandgata 49
Strandgata 49 mun vera elsta hús sem enn stendur á Oddeyri. En miðað er við að byggingarár hússins sé 1873 þegar vestasti hlutinn var reistur, en það er hlutinn sem er næst á myndinni. Þar var raunar um að ræða eldra hús sem var reist á Vestdalseyri við Seyðisfjörð en tekið niður og reist aftur hér. Húsið mun hafa risið í áföngum og verið fullklárað um 1885. Raunar eru þetta þrjú hús hver með sínum einkennum eins og sjá má. Ef vel er að gáð má sjá að risið á austurhlutanum er portbyggt* , en ekki á þeim vestasta og á honum er stór miðjukvistur. Austurhlutinn mun vera yngstur þessara bygginga. Miðhlutinn, tveggja hæða bygging með brotnu risi er sennilega sá sem gefur húsinu mestan svip. Sá hluti var kallaður Mikla bygging, enda var þetta hæsta hús á Oddeyrinni þegar það var byggt. Þetta hús var í eigu Gránufélagsins, sem var verslunarfélag, stofnsett 1870. Helstu forvígismenn þess voru Tryggvi Gunnarsson og sr. Arnljótur Ólafsson. Ári síðar keypti félagið Oddeyrina eins og hún lagði sig af Þorsteini Daníelssyni á Skipalóni og sá félagið um lóðasölu þegar byggð hófst á Oddeyrinni á 8. og 9. tug 19. aldar. Gránufélagið var afar umsvifamikið á áratugunum 1870-1900 en tók að halla undan fæti upp úr aldamótum og 1912 komst það í eigu Hinna sameinuðu Íslenskra Verslana, sem hafði skrifstofur í þessu húsi til 1926. Kannski er það dæmi um hversu ráðandi Gránufélagið var að gata á Oddeyrinni heitir eftir því. Húsið var alla tíð iðnaðar- og verslunarhúsnæði og veit ég ekki til þess að búið hafi verið í því, en það getur hins vegar meira en vel verið. Um 1990 var þetta hús orðið nokkuð hrörlegt. Það var einnig gjörbreytt að innan frá fyrstu gerð, enda starfandi vélsmiðja í því. Þá hafði einhvern tíma verið byggt mikil steinsteypubygging; renniverkstæði við húsið aftan til. En haustið 1993 lauk endurgerð hússins og þar opnaði skemmtistaðurinn við Pollinn. Síðan hefur verið veitingastarfsemi í húsinu og nú er hér skemmtistaðurinn Vélsmiðjan, en það heiti hefur beina skírskotun í fyrra hlutverk hússins.
*Portbyggt ris: Portbyggt merkir að risið er "upphækkað" Þ.e. í stað þess að súðin myndi horn við gólfflöt, kemur eins konar framlenging eða upphækkun á fyrstu hæðinni ( eða hæðinni undir risinu ).
PS. Ég segi hérna efst að Gránufélagshúsin sé elsta hús á Oddeyri. En bíðum við,við Eiðsvallagötu 14 stendur hús sem kallað er Gamli Lundur. Það mun byggt 1858. En hins vegar var hinn upprunalegi Lundur rifin til grunna um 1980 og nýtt hús, nákvæm eftirlíking reist í staðinn. Þannig er Gamli Lundur sem nú stendur ekki nema 25-30 ára. Hins vegar má alltaf tína til með mörg gömul hús sem gerð hafa verið upp, að kannski eru ekki nema örfáir bjálkar eftir frá upphafi; margsinnis búið að skipta um haus og hamar þannig að ekki er kannski allt sem sýnist í þeim efnum.
Myndirnar í þessari færslu eru teknar í maí og júní 2006.
Bloggar | Breytt 30.7.2009 kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 17:30
Hús dagsins eða öllu heldur Gata dagsins
Að þessu sinni eru hús dagsins fleiri en eitt og tek ég fyrir heila götu eða svo gott sem. Þessi mynd er tekin af Strandgötu á Oddeyri á frostköldum janúardegi 2009. En Strandgata er elsta gata Eyrarinnar og lá meðfram fjörunni, líkt og göturnar í Innbænum, Hafnarstræti og Aðalstræti. Við götuna standa hús af mörgum ólíkum gerðum. Á þessari mynd sjást best eftirfarandi hús:
Strandgata 45 er lengst til hægri. Er þetta eitt elsta steinsteypta hús á Akureyri og var byggt 1914. Líkt og elstu steinhúsin ber það greinilega svipmót timburhúsa ( sjá færslu 13.júlí sl. ) og nægir að líta til næstu tveggja húsa fyrir neðan. En í Strandgötu 45 var íþróttafélagið Þór stofnað árið 1915. Næst er Strandgata 43 en það hús var byggt 1920. Skilst að það hafi verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi. Strandgata 41 var reist 1901 og var þar lengi vel bakarí. Upphaflega var það Brauðgerðarfélag Akureyrar sem hafði þar starfsemi en 1912 keypti Kristján Jónsson, sem Kristjánsbakarí er kennt við húsið. Húsin með lágu risunum, á þremur og fjórum hæðum eru nr. 39 og 37. Reist 1907 ( 39 ) og nr. 37 er byggt í áföngum frá 1930 til 1950. Vinstra megin sjást síðan öllu yngri hús, en þau eru reist á uppfyllingu frá því um 1995. Glerbyggingin er hús líkamsræktarstöðvarinar Átaks, byggt 1997 og stækkað 2006 en þar á bak við gnæfir svo yfir Menningarhúsið Hof, sem enn er í smíðum en bygging þess hófst 2007. Í baksýn er síðan neðri Brekkan og Hlíðarfjallið en staðurinn sem þessi mynd er tekin er einn tilkomumesti útsýnisstaður Akureyrar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 12:46
Gránar í fjöll
Boðað miðsumarhret hefur ekki látið á sér standa hér fyrir norðan. Þessa stundina er nokkuð hvöss norðurátt og hiti var um 6°C fyrir hádegi. Gegnum skýjaþykknið hefur mátt greina það að gránað hefur í hærri fjöll fram í Eyjafirði, t.a.m. voru Staðarbyggðarfjall og Tungnafjall með gráan koll. ( Þau eru reyndar "aðeins" 1000-1100m og það telst ekki hátt á Eyfirskan mælikvarða ) Eitthvað hefur einnig snjóað í Hlíðarfjall og Súlurnar sýnist mér. Það hlýtur að teljast til tíðinda að það gráni í fjöll í júlí en það gerist þó öðru hverju.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2009 | 14:39
Hús dagsins: Lækjargata 6
Margir sem fylgdust með dægurmálum og pólítík Akureyrar fyrir áratug ættu að kannast við hús dagsins. En Lækjargata 6 var eitt helsta deilumál bæjarins árið 1998 en vík ég að því rétt á eftir. En húsið var byggt 1886 af þeim Þórði Thorarenssen gullsmiði og Kristjáni Gíslasyni söðlasmiði. Hér er merkileg tilviljun: Þórður Thorarenssen byggði líka Aðalstræti 13, sem brann í gær og bæði húsin voru 111 ára þegar kviknaði í þeim. Á gömlum myndum af húsinu sýnist mér sem það hafi staðið á einskonar eyju í Búðarlæknum en það gæti verið vitleysa hjá mér. Frá upphafi hefur húsið verið íbúðarhús og margar fjölskyldur búið í því í lengri og skemmri tíma. Í upphafi var þetta glæsilegt stórhýsi en eftir því sem leið á 20.öldina fór ástand hússins hrakandi og í aðalskipulagi frá 1973 er gert ráð fyrir að húsið víki. Enda stóð ( og stendur enn ) húsið á mjög óheppilegum stað á horni Lækjargötu og Spítalavegs og algengt var að bílar vermdu horn hússins á leið niður síðarnefndu götuna.
17.janúar 1998 kviknaði í húsinu og skemmdist það töluvert, eins og sjá má myndinni vinstra megin. Vikuna áður mun Akureyrarbær hafa keypt húsið til niðurrifs. Vegna hins háa aldurs voru ekki allir á eitt sáttir með niðurrif hússins. Miklar deilur risu í bæjarkerfinu, og man ég eftir að einhver bæjarfulltrúinn sagði á fundi sem sýndur var á Aksjón*: "þetta er ljótt hús og ekkert með það gera ". Við skoðun hússins kom einnig í ljós merkileg byggingargerð þess, sem ekki var vitað um: Húsið var bindingsverkshús, það eina sinnar tegundar á Akureyri. En það hafði verið byggt þannig að grindinni var slegið upp ásamt innri klæðningu og steypu hellt ofaní. Steypan var þannig eins og einangrun í timburgrindinni. Mun það hafa aukið enn á varðveislugildi hússins, sem var talið lítið sem ekkert fyrir brunann.
Eftir talsvert þref var ákveðið að leyfa húsinu að standa og selja það til uppbyggingar, og voru margar lausnir ræddar. Ein var sú að hafa þá kvöð á húsinu að það skyldi flutt um fáeina metra frá horninu m.a. til að rýmka fyrir umferð, en fallið var frá því. Þó var húsið sett á aðeins hærri grunn og líklega hnikað til um einhverja centimetra. En endurgerð hússins hófst haustið 1999 og var lokið að fullu um 2004, og eins og sjá má myndinni t.h. tókst hún glæsilega upp. Er húsið nú hin mesta prýði og hefur fengið því sem næst upprunalegt útlit. Vinstri myndina tók ég í október 1998 en hina myndina 25.júní 2006 og sýna þessar myndir glögglega árangurinn.
*Aksjón var "local" sjónvarpsstöð Akureyringa, sem starfaði frá 1997 til 2002-3 ( að mig minnir ). Hún sýndi m.a. frá bæjarstjórnarfundum en aðalþátturinn var fréttaþátturinn Kortér, sem var alltaf sýndur kortér í og yfir heila tíman frá 18-21.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.7.2009 | 00:25
Óttalegar leiðindaplöntur
Á myndinni hér til hliðar, sem tekin er í brekku við norðurjaðar Grenivíkur þ.20.júní sl. má greina alaskalúpínu ( Lupinus nootkasensis ) og skógarkerfil ( Anthryscus sylvestris ). Hvort tveggja mjög glæsilegar plöntur, stórvaxnar og áberandi en tvennum sögum fer af vinsældum þeirra. Lúpínan mun fyrst hafa verið flutt inn um 1950 til uppgræðslu. Lúpínan bindur köfnunarefni og getur því vaxið á melum og skapar auk þess möguleika fyrir aðrar plöntur að skjóta rótum. En hún er þó þeim ósköpum gædd að ef hún fer á gróið land ryðst hún yfir það og eyðir þeim gróðri sem fyrir er. Og ekki er auðvelt að vinna bug á henni, ef hún er á annað borð komin af stað. Þetta hefur helst gerst þar sem lúpínu hefur verið sáð í lítil rofasár inni í miðju gróðurlendi. Greinilegt dæmi um þetta er á hjallanum neðan Súlumýra við Fálkafelli þ.s. á sumrin sjást greinilegar bláir blettir af kílómetra færi. En önnur planta er einnig frek og ágeng. Og það er skógarkerfillinn. Hann hefur sennilega verið ræktaður sem garðagróður upprunalega en "óvart" breiðst út. Víða um sveitir Eyjafjarðar má sjá mikla kerfilskóga og er hann víðs vegar orðin plága. Og eins og glögglega sést á þessari mynd þá ryðst skógarkerfillinn yfir lúpínuna. Er þarna e.t.v. komin lausnin þar sem lúpínuútbreiðsla er orðin vandamál ? Þ.e. láta bara kerfilinn valta yfir hana
Bloggar | Breytt 9.4.2010 kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2009 | 18:49
Hús dagsins: Aðalstræti 16
Aðalstræti 16 er eitt af tilkomumestu timburhúsum Akureyrar, reist árið 1900 af Sigtryggi Jónssyni, sem var eitt "stærsta nafnið" í húsasmíðum á Akureyri á þeim tíma. Húsið er undir greinilegum áhrifum frá norsku Sveitser húsunum en það sem helst gefur því svip er þessi inndregni pallur eftir allri framhlið hússins. Þannig var nú að byggingarnefnd var ekki á eitt sátt um þetta hús. Ekki átti að fást leyfi fyrir húsinu nema pallurinn yrði notaður sem gangstétt. Hins vegar klofnaði nefndin og sagði af sér og í nýrri nefnd átti Sigtryggur sæti. Þannig fékk hann loks sínu fram. Húsið hefur lengst af verið íbúðarhús en um tíma voru skrifstofur á efri hæð. Sjálfsagt hefur einnig verið verkstæði eða önnur starfsemi í kjallara, eins og algengt var með hús frá þessum tíma.Aðalstræti 16 var komin í mikla niðurníðslu um 1990 en var á næstu árum gert upp af mikilli natni og er nú hin mesta bæjarprýði. Þessi mynd er tekin 11.mars 2007.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2009 | 18:35
Evrópa
Hafi ég talið rétt er ég nr. 70 sem skrifa við þessa frétt. Það er greinilegt að skoðanir eru MJÖG skiptar um þetta stóra mál. Ef maður skoðar bara fyrirsagnirnar á má sjá orð á borð við sorgardag, landráð, þjóðníðinga en einnig hamingjuóskir og að nú verði allt betra. Sjálfur held ég nú að hvorki þeir svartsýnustu eða bjartsýnustu hafi rétt fyrir sér um þetta mál, frekar en önnur stór deilumál. Hugsa að sannleikurinn liggi þar einhvers staðar mitt á milli.
![]() |
Samþykkt að senda inn umsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2009 | 15:13
Hús dagsins: Nokkur eldri steinsteypuhús
Eins og síðast eru hús dagsins fleiri en eitt, en í dag eru það þrjú af elstu steinsteypuhúsum Akureyrar. Steypan sem byggingarefni fór að ryðja sér til rúms upp úr 1910, á Akureyri og raunar á landinu öllu. Á sama tíma var einnig farið að klæða timburhús með bárujárni eða öðru járni og mun ástæðan hafa verið m.a. eldvarnir. Tvær byggingargerðir voru lang algengastar í timburhúsum og á fyrstu árum og áratugum steinsteypunnar voru þessi byggingarlög "yfirfærð" á steinhúsin.
Brekkugata 12sem er hér til hliðar var reist 1917. Húsið er einlyft með háu risi og stórum miðjukvisti og stendur á háum kjallara sem sést reyndar ekki á framhliðinni þ.s. húsið stendur í brekku. Húsið ber greinilega svipmót timburhúsa á borð við t.d. Túlíníusarhús (færsla 3.7.) og fleiri húsa og er þetta mjög algeng gerð steinhúsa frá þessu tímabili. í þessu húsi var lengi vel Slökkvistöð Akureyrar og er húsið stundum kallað Gamla Slökkvistöðin.
Oddeyrargata 6, hér til hliðar, er byggð 1916. Greinilega má sjá svip með því húsi og annarri algengri gerð timburhúsa, þ.e. tvær hæðir og lágt ris. Húsið líkist þannig húsunum við Hafnarstræti 29-41 (sjá þarsíðustu færslu, 9.7.) og var mér einhvern tíma í sögugöngu um þetta hverfi sagt að þau hús væru n.v. fyrirmyndin að þessu húsi og einnig næsta húsi nr. 8 (byggt 1919 ). Sennilega sést það ekki á þessari mynd en undir þakskegginu á þessu húsi má sjá útskornar sperrutær, sem var eitt af einkennum norsku Sveitser húsanna ( sjá nánar færslu 3.7. ). Oddeyrargata 6 hefur sennilega verið parhús frá upphafi en það skiptist í a og b hluta.
Grundargata 7, hér til hliðar, er reist 1920. Þarna má sjá einstakan stíl, ekki aðeins fyrir steinhús heldur er húsið afar sérstakt að lögun. Er það byggt sem tvær álmur, önnur mun breiðari en hin sem snýr að Gránufélagsgötu ( þaðan sem myndin er tekin ) er lengri en breiddin og stendur út af. Þannig myndar grunnflötur hússins einskonar "L". Á suðurgafli er eldvarnarveggur, sem getur bent til þess að byggja hafi átt við það samskonar hús. Steinhús héldu almennt "timburhúsalaginu" fram yfir 1920 en upp úr 1930 fóru að koma fram sérstakar byggingarstefnur í steinhúsum á borð við t.d. fúnkís. Grundargata 7 er stundum kallað Ólafsfjarðarmúli vegna sérstakrar lögunar. Myndirnar í þessari færslu eru allar teknar 19. apríl 2008.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2009 | 23:59
Iss-menn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2009 | 11:02
Hús dagsins: Hafnarstræti 29-41
Að þessu sinni er hús dagsins ekki eitt heldur sjö. Nefnilega húsaröðin frá 29 til 41 við Hafnarstræti. Húsin bera öll sama svipmót, tvílyft á lágum kjallara með lágu risi og er þetta dæmi um vel varðveitta, heilsteypta húsaröð. Hafnarstræti 29 er reyndar mun stærra og meira um sig; á þremur hæðum en hefur samt sama lag og næstu hús, eins konar "large" útgáfa af húsunum neðan við. Húsin voru byggð á árunum 1903-1907, Hafnarstræti 33 og 41 árið 1903, nr.39 1904, nr.37 1905 og nr. 35 1906. 29 var síðan reist ári seinna. Þessi hús eru öll talin verk smiðanna Sigtryggs Jóhannessonar og Jónasar Gunnarssonar en þeir voru einir helstu húsasmiðir Akureyrar í upphafi 20. aldar. Hús nr. 41 er næst á myndinni. Þar bjó og hafði vinnuaðstöðu Hallgrímur Einarsson ljósmyndari. Ef skoðuð er gömul mynd frá Akureyri frá árunum 1900-20 eru góðar líkur á að sú mynd sé eftir Hallgrím, en hann var í fyrsta lagi einn af örfáum starfandi ljósmyndurum í bænum og tók mikið af myndum af húsum og götum.
Eitt er það hús að í þessari röð sem ég hef ekki minnst á. Hafnarstræti 31 (blátt hús, næstlengst t.v.) er nefnilega frábrugðið hinum húsunum að því leyti að það er steinsteypt og reist 1999. Það fellur hins vegar val að götumyndinni og fæstum sem ekki vissu gæti dottið í hug að þarna væri um nýbyggingu að ræða. Þegar nýbyggingar eru reistar í gömlum, rótgrónum götum er yfirleitt gerð sú krafa að þær séu í sama stíl og þær byggingar sem fyrir eru. Hafnarstræti 31 er sennilega skýrasta dæmið um þegar slíkt heppnast frábærlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 4
- Sl. sólarhring: 44
- Sl. viku: 525
- Frá upphafi: 450047
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 306
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar