Svipmyndir af Vetrarsport 2011

Í síðustu færslu deildi ég nokkrum myndum frá Vetrarsport sýningum á liðnum árum- en hér eru nokkrar frá sýningunni þetta árið. Þó þetta sé kannski fyrst og fremst "tryllitækjasýning" þá kenndi þarna ýmissa grasa og þarna mátti skoða flest það sem tengdist vetrarsporti- útbúnaður hvers konar bæði hvað varðar  öryggismál, fatnað, fararskjóta og einnig var ýmis ferðaþjónusta með kynningar. En ég kíkti semsagt í Bogann í gær og var með myndavélina og hér eru nokkrar svipmyndir.

p2130109.jpg p2130108.jpg

Jeppinn er af gerðinni Ford Explorer. Hann gæti verið árgerð ca. 1990-95 en hefur fengið dágóða yfirhalningu. Dekkinn er 46 tommur, en til þess að koma svona belgjum undir jeppanna þarf stórfelldar breytingar. Það er ekki bara nóg að tjakka yfirbygginguna upp og skella dekkjunum undir. Ónei. Það þarf viðamiklar breytingar á h.u.b öllu því sem við kemur vélbúnaði, rafkerfi, stýrisbúnaði, drifbúnaði dempurum, fjöðrum o.s.frv. þannig að oft stendur fátt eftir upprunalegt í bílnum. Ekki kann ég deili á græna tryllitækinu t.h. en þetta minnir mig helst á eitthvað sem maður byggði úr Lego-kubbum.

p2130102.jpg  p2130076.jpg

Broncoinn t.v. er 37 ára, árgerð 1974. En líkt og með Explorerinn er sennilega fátt upprunalegt í honum þessum. Hann er á "44" dekkjum og vélin er 460 rúmtommur að stærð  skilar yfir 400 hestöflum. Amerískar vélar eru jafnan sagðar í kúbiktommum, enda er það sú mælieining sem þar er notuð. Þannig kann mörgum að finnast ruglandi þegar talað er um 318 (þrír-átján) , 351 og 427 vélar sem ógurlega rokka en á sama tíma um 1600 og 2000 vélar í fólksbílum. (Málið kann að flækjast ennþá meira þegar talað er um 2ja og 3ja lítra vélar.) En þetta skýrist af því í fyrsta lagi að þegar talað er um 1600 vél er átt við 1600 rúmcentimetra. Í einum líter eru 1000 rúmsentimetrar. Þannig er áðurnefnd 1600 vél 1,6lítrar. Hvað varðar "amerísku stærðina" 318 þá er um að ræða 318 rúmtommur. Ein rúmtomma samsvarar tening sem er tomma*tomma*tomma eða 2,54*2,54*2,54= ca. 16 rúmcentimetrar. Þannig er 318 ameríska vélin 16*318 eða 5088 rúmcentimetrar.Vélin í Bronconum er þannig 460*16= 7360 rúmcm. eða 7,3L  sem er bara þó nokkuð. Subaru Justy eru af mörgum talin ein sönnun máltækisins "margur er knár þó hann sé smár" en þessir kaggar eru hvorki stórir né öflugir en bæði fjórhjóladrifnir og léttir og hefur maður heyrt ýmsar sögur af torfæru- og snjóaksturseiginleikum þeirra. Þessi rauði er sannarlega vel "dekkjaður"!

p2130094.jpg

Polaris sexhjól 6x6 með sturtupalli- eða 6 hjóla fjórhjól eins og sumir gárungar kalla það;  Sex hjóla fjórhjól  þykja víst mjög hentug til að flytja ferkantaða rúllubagga Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 62
  • Sl. sólarhring: 62
  • Sl. viku: 342
  • Frá upphafi: 420315

Annað

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 235
  • Gestir í dag: 38
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband