12.6.2017 | 15:32
Hús dagsins: Munkaþverárstræti 7
Einn íbúa Friðbjarnarhúss, Aðalstrætis 46, í febrúar 1930 var Björn nokkur Axfjörð. Hann fékk þá útvísaða lóð við Munkaþverárstæti sem þá var við efri mörk þéttbýlis í bænum. Síðsumars fékk hann byggingaleyfi fyrir húsi 7,60x8m einni hæð með háu risi og kjallara út steinsteypu en húsið úr timbri og járnvarið. Björn gerði einnig teikningarnar af húsinu. Skömmu síðar var reist fjós og hlaða á bak við húsið og stendur sú bygging enn. Þess má geta, að Björn fékk byggingaleyfið fyrir Munkaþverárstræti 7 þann 25.ágúst 1930, en þann sama dag fæddist skoski stórleikarinn Sean Connery.
Í upphafi hefur verið húsið átt að vera járnvarið timburhús, en raunin varð sú að húsið var reist úr steinsteypu. Greinarhöfundur velti fyrir sér þeim möguleika að húsið væri forskalað en Manntal 1940 tekur af öll tvímæli um það; þar er húsið skráð sem steinsteypuhús. Munkaþverárstræti 7 er tvílyft steinsteypuhús með háu með stórum hornkvisti að framan en kvisti með einhalla þaki á bakhlið. Á suðurhlið eru svalir á rishæð og segja má að þær séu innbyggða því þekja slútir yfir þær. Svalirnar eru einnig á efri hæð og standa þær á súlum en þær eru tvöfalt lengri en svalir rishæðar, og eru þannig yfirbyggðar til hálfs. Bárujárn er á þaki hússins en krosspóstar í gluggum, nema í kvisti er sexrúðugluggi. Hann er frábrugðinn þeim sexrúðugluggum sem algengir eru, að því leitinu til, að hann er láréttur; þ.e. meiri á breidd en hæð. Á lóðinni stendur einnig einlyft bakhús með háu risi, sambyggð íbúð og bílskúr. Er bílgeymsla í norðurhluta byggingarinnar með stafn til austurs en íbúð í suðurhluta. Krosspóstar eru í gluggum bakhúss og bárujárn á þaki.
Upprunalega var bakhús fjós og hlaða, en Björn Axfjörð virðist hafa stundað einhvern búskap. Árið 1942 býður hann allavega landbúnaðartæki á borð plóg og herfi til sölu, einnig aktygi og reiðinga. (Það þarf þó alls ekki að vera samasemmerki milli þess, og að hann hafi stundað búskap nákvæmlega þarna).
Munkaþverárstræti 7 er glæsilegt hús og í góðu standi, það er raunar sem nýtt en það var að mestu leyti endurbyggt um 1990, kvistur stækkaður og verönd byggð ásamt svölum og þekja lengd til suðurs. Hönnuður þeirra breytinga var Haukur Haraldsson. Bakhús var endurbyggt árið 2008 eftir teikningum Þrastar Sigurðssonar og er sú framkvæmd geysi vel heppnuð. Ein íbúð er í húsinu og einnig er íbúð í bakhúsi. Húsakönnun 2015 metur húsið með varðveislugildi sem hluti húsaraðarinnar og tekur einnig fram, að breytingarnar fari húsinu vel. Lóðin er einnig vel gróin, þar er m.a. mikið grenitré á suðurhluta. En ofan við húsið, bak við lóðina má finna skemmtilegt grænan reit.
Eins og greinir hér frá að framan var gegndi bakhús hlutverki fjóss og hlöðu. Ekki er ólíklegt að skepnur sem íbúar Munkaþverárstrætis 7 héldu, hafi verið beitt á túnblett bak við húsið. Svo skemmtilega vill til, að þessi túnblettur til staðar en á bak við þessa húsaröð, nr. 3-13 er nokkuð stórt grænt svæði sem afmarkast af Munkaþverárstræti í austri, Helgamagrastræti í vestri, Bjarkarstíg í norðri og Hamarstíg í suðri. Samkvæmt lauslegri flatarmálsmælingu undirritaðs á götukorti Landupplýsingakerfisins er svæði þetta um 3500 fermetrar eða 0,35 ha. að stærð. Hvort þessi túnblettur beri nafn veit ég ekki, en tel það svosem ekki ólíklegt og eru allar upplýsingar um slíkt vel þegnar. Á fjórða áratug 20.aldar voru leigðir þarna út kartöflugarðar og mögulega eitthvað lengur. Vorið 1935 fær m.a. Júlíus Davíðsson (Hamarstíg 1) leigt þarna 250 fm ræktarland en næsta garð fengu þeir í félagi Jón Norðfjörð og Sigurður Áskelsson í Oddeyrargötu 10, ömmubróðir greinarhöfundar. Bærinn ákvað ársleigu á görðum þarna 3 krónur en setti garðleigjendum það skilyrði, að þeir skyldu [...]á brott með allt sitt hafurtask bænum að kostnaðarlausu sé þess krafist. (Bygg.nefnd.AK. 745; 31.5.1935). Þessi græni unaðsreitur er einnig skemmtilegur útsýnisstaður, en áður hef ég minnst á þennan reit í umfjöllun um hús við Hamarstíg. Hér er mynd sem tekin á fögru vorkvöldi eða vornóttu, skömmu eftir miðnætti 20.maí sl. Myndin af húsinu er hins vegar tekin fimm dögum síðar, á Uppstigningadag, 25.maí 2017.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 642, 17.feb 1930. Fundur nr. 651, 25.ágúst 1930.
Fundargerðir 1930-35. Fundur nr. 745, 31.maí 1935.
Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. (Skrá yfir upprunasögu húsa sem stóðu á Akureyri um 1935, tekin saman 1945-55). Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Manntal 1940
Þrjár ofantaldar heimildir eru óprentaðar og óútgefnar og varðveittar á Héraðsskjalasafninu á Akureyri
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.2.): 3
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 191
- Frá upphafi: 441487
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 138
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.