13.9.2018 | 09:00
Hús dagsins: Munkaþverárstræti 42
Páll Friðfinnsson byggingameistari frá Skriðu í Hörgárdal reisti Munkaþverárstræti 42 eftir eigin teikningum árið 1942. Þann 5. september 1941, úthlutaði byggingarnefnd Páli lóðina norðan við Óskar Gíslason [Munkaþverárstræti 40, sem yfirfærð var til Steindórs Steindórssonar vorið eftir] ásamt leyfi til byggingar húss skv. meðfylgjandi lýsing. Ekki fylgir þessi meðfylgjandi lýsing í fundargerð en Munkaþverárstræti 42 er einlyft steinsteypuhús með einhalla, aflíðandi þaki og á lágum kjallara, með mjóu útskoti að framan eftir hálfri hlið og inngöngudyr í kverkinni á milli og steyptar tröppur upp að þeim. Steyptur þakkantur með tveimur stöllum auk þriðja og hæsta stalls á útskoti að framan. Húsið er klætt steiningarmúr og dúkur eða pappi á þaki. Einfaldir lóðréttir póstar eru í gluggum og horngluggar í anda funkisstefnunar til suðurs og austurs. Páll Friðfinnsson var afar afkastamikill og laginn byggingameistari og á heiðurinn af mörgum húsum á Akureyri, bæði sem hönnuður og byggingameistari. Í næsta nágrenni þessa húss teiknaði hann m.a. Krabbastíg 4 (1936) og nokkur hús við Helgamagrastræti. Eitt fyrsta húsið sem hann byggði stóð skammt ofan við Gleráreyrar og kallaðist Sólvellir. Það hús byggði hann 1933 en það var rifið á 10. áratug 20. aldar.
Munkaþverárstræti 42 er nokkuð dæmigert funkishús, einfalt og látlaust. Líklega má fullyrða, að það sé óbreytt frá upphafi, það er a.m.k. sagt í upprunalegri mynd í Húsakönnun 2015 en það er í engu að síður í góðri hirðu. Húsið hefur alla tíð verið einbýlishús og hafa margir átt þarna heima í lengri eða skemmri tíma, eins og gengur og gerist með ríflega 75 ára hús. Húsið er hluti hinnar löngu og heilsteyptu raðar funkishúsa við Munkaþverárstrætið. Myndin er tekin þ. 18. feb. 2018.
Þessi mynd er tekin við gatnamót Dalsbrautar og Borgarbrautar og er horft upp Borgarbraut, spölkorn neðan við Háskólasvæðisins á Sólborg. Borgarbraut er stofnbraut utan úr Glerárþorpi og niður á Oddeyri. Trjálundurinn á miðri mynd stóð við Sólvelli, en það hús byggði Páll Friðfinnsson byggði 1933. Stóð h.u.b. á þeim stað sem gatan liggur nú, en var þá langt utan þéttbýlis en þó í alfaraleið milli Glerárþorps og Akureyrar; gamla brúin er þarna beint neðan við. Enn stendur hluti snúrustaurs og sést glitta í hann á myndinni undan trjám vinstra megin. Myndin er tekin þ. 10. sept. 2018.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 883, 5. sept. 1941.
Óprentað og óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.2.): 23
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 209
- Frá upphafi: 441473
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 155
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað er að frétta af næsta húsi, nr. 44, sem faðir minn byggði? Sá hét Guðmundur
Ólafsson byggingam., faðir Stefáns Reykjalín byggingam. m.m. Faðir okkar byggði líka
húsið nr. 29 við Brekkugötu, sem er í sama stíl og gamla íbúðarhúsið í Stóra-Holti í
fljótum, sem hann byggði, þegar hann var bóndi ár 1916-26.
Guðm. Ó. Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.9.2018 kl. 18:20
Sæll Guðmundur
og takk fyrir innlitið og skrifin.
Munkaþverárstræti 44 verður einmitt í næsta pistli (tek strætið í númeraröð). Hann birtist einhvern tíma á næstu dögum. Ég sá það í bókunum Bygginganefndar, að nefndin vildi ekki veita föður þínum byggingaleyfið í fysrtu þar eð lóðin væri of lítil (þú þekkir þessa sögu eflaust betur en ég). En hann fór og samdi við Þorstein Þorsteinsson í Brekkugötu 43 um að eftirláta litla ræmu af sinni lóð. Það virtist nefndin geta sætt sig við, og heimilaði bygginguna.
Ég var einmitt að velta fyrir mér, hvort um sama Guðmund Ólafsson væri að ræða og byggði Brekkugötu 29. Það er einmitt í þessum burstastíl (kallað að mig minnir þjóðernisrómantísk steinsteypuklassík í Húsakönnun 2015) og mun, eftir því sem ég kemst næst, eina húsið í þeim stíl innan þéttbýlismarka Akureyrar. Svipuð hús má hins vegar finna víða til sveita.
Bestu kveðjur,
Arnór Bliki.
Arnór Bliki Hallmundsson, 13.9.2018 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.