31.7.2019 | 14:36
Hús dagsins: Helgamagrastræti 22
Árið 1945 fékk Valdemar Sigurðsson lóð og byggingarleyfi á lóð, sem þá taldist Helgamagrastræti 16, ásamt byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi; 11,6x7,5m að grunnfleti með útskoti, 5,6x1m til suðurs, kjallari úr steinsteypu, íbúðarhæðir úr steinsteypu og valmaþak úr timbri. Teikningarnar að húsinu gerði Guðmundur Magnússon og fullbyggt var húsið 1946. Hvers vegna og hvenær Helgamagrastræti 16 varð að 22 liggur ekki fyrir. Heimilisfangið Helgamagrastræti 22 kemur ekki fyrir á timarit.is fyrr en 1959, en Helgamagrastræti 16 aðeins einu sinni. Gæti í því tilviki aðeins verið um að ræða villu, því þar segir frá andláti Kristínar Sigfúsdóttur skálds, sem sögð er búsett þar. Þarna er væntanlega átt við næstu götu neðan við á Ytri Brekkunni, Munkaþverárstræti 16, en þar var Kristín búsett síðustu æviárin. En svo sem rakið er í greininni um Helgamagrastræti 20 vantar númerin 14, 16 og 18 inn í götuna.
Helgamagrastræti 22 er einlyft steinhús (steinsteypa og r-steinn) á háum kjallara eða jarðhæð og með lágu valmaþaki. Útskot er til suðurs og í kverkinni á milli inngöngudyr og steyptar tröppur. Á austurhlið er steypt viðbygging og fellur hún vel að húsinu. Bárujárn er á þaki og múrhúð á veggjum, en einfaldir lóðréttir póstar með láréttum neðri fögum í gluggum (Eða einfaldir lóðréttir póstar með lóðréttum opnanlegum fögum). Voldugur sólpallur úr timbri við suðurhlið en þar er hæðarmismunur lóðar nýttur þannig að pallurinn er áfastur inngangi á hæð.
Ekki er það venjan hér, að rekja eigenda- og íbúasögu húsanna í þaula. En það liggur hins vegar fyrir að Valdemar Sigurðsson, sem byggði húsið seldi það Kristjáni Pálssyni haustið 1959 og er það skjalfest í Viðskiptatíðindum fyrir Akureyri og Eyjafjarðarsýslu þann 1. des. 1959. Kristján var vélfræðingur, fæddur á Flateyri og bjó hann hér til æviloka 1972 og ekkja hans, Ása Helgadóttir frá Ísafirði um árabil eftir hans dag. Hafa síðan ýmsir búið hér en öllum auðnast að halda húsi og lóð vel við. Árið 2002 var byggt við húsið til austurs og þaki breytt, eftir teikningum Árna Gunnars Kristjánssonar.
Húsið er í mjög góðri hirðu og lóðin vel gróin og hirt. Baklóð hússins liggur að skemmtilegum, ca. 0,4 ha. túnbletti sem liggur á milli Helgamagrastrætis í austri, Hamarstígs í suðri, Bjarkarstígs í norðri og Munkaþverárstræti í austri. Þessi græni blettur er, eftir því sem ég kemst næst nafnlaus, en þarna er um að ræða skemmtilega græna perlu í grónu hverfi. Í Húsakönnun 2015 hlýtur Helgamagrastræti 22 1. stigs varðveislugildi sem hluti af áhugaverðri heild. Myndin er tekin þann 3. maí 2019.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1011, þ. 20. aprí 1945. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.2.): 46
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 234
- Frá upphafi: 441530
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 173
- Gestir í dag: 38
- IP-tölur í dag: 37
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.