Hús dagsins: Hólabraut 16

Hólabraut 16 er íbúðar- og verslunarhúsnæði, byggt í áföngum 1945-53 af þeim EyþóriP1190960 og Guðmundi Tómassonum. Þá var byggt við húsið 1986 og 2014. En árið 1945 fékk Guðmundur Tómasson leyfi til að reisa íbúðarhús á lóð sinni við Hólabraut. Um var að ræða hús úr steinsteypu með steingólfum og járnklæddu valmaþaki úr timbri, tvær hæðir á lágum kjallara, 15x8,8m að grunnfleti auk útbyggingar að austan 8x6,3m. Bygginganefnd setti hins vegar ófrávíkjanlegt skilyrði, að steinþak væri á húsinu. Og árið 1948 mun húsið hafa verið fullbyggt, þ.e. elsti hluti þess. Guðmundur gerði sjálfur teikningarnar að fyrsta áfanga hússins. Það var hins vegar í júlí 1953 sem Eyþór fær, fyrir hönd súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu leyfi til að reisa 2 hæða álmu að stærð 14x8m á „austur og suðurtakmörkum lóðarinnar“ Hólabrautar 16.  Árið 1949 hafði Eyþór nefnilega stofnað hina valinkunnu súkkulaðiverksmiðju í húsinu og eðlilega þurfti starfsemin að stækka við sig. Var þá byggt við húsið til austurs og suðurs, líkt og fram kemur í byggingalýsingum og var sá hluti hússins með háu valmaþaki. Teikningarnar að þeirri álmu gerði Snorri Guðmundsson.

Hólabraut 16 er tvílyft steinsteypuhús með flötu þaki og háu valmaþaki að hluta. Syðst og vestast er einlyft útbygging með svölum á þekju. Veggir eru múrsléttaðir og bárujárn á þaki. Einfaldir póstar eru í gluggum en verslunargluggar á suðurhluta neðri hæðar.  

Súkkulaðiverksmiðjan Linda var starfrækt hér allt til ársins 1962 að hún flutti í nýbyggt stórhýsi utar á Oddeyrinni þ.e. við Hvannavelli (sjá mynd hér að neðan) sem síðan er þekkt sem Linduhúsið. P5280956En þeir bræður frá Bústöðum  í Austurdal í Skagafirði, Eyþór og Guðmundur Tómasson starfræktu á tímabili hvor sína verksmiðju, þ.e. kexverksmiðjuna Lorelei og Súkkulaðiverksmiðjuna Lindu. Eyþór Tómasson (1906-1988) var ævinlega kallaður Eyþór í Lindu og var hann mikils metinn athafnamaður hér í bæ. Líkt og oft vill verða með slíka heiðursmenn var hann einnig mikill „karakter“ og mörg fleyg orð eftir honum höfð. Hann mun t.d. hafa fullyrt „að ekki væru allir peningar til fjár“ og inntur eftir hvað hann hafði fengið í hádegismat mun hann hafa svarað af bragði „þetta voru bölvaðar sellur“ [gellur]. Árið 2009 kom út bókin Kvistagöt og tréhestar eftir Jón Hjaltason (sjá heimildaskrá), en hún er safn af kímni- og gamansögum af hinum ýmsu nafntoguðu heiðursmönnum á Eyjafjarðarsvæðinu. Þar er m.a. að finna kafla um Eyþór í Lindu. Mælir greinarhöfundur eindregið með þeirri lesningu- og raunar téðri bók í heild sinni.  Sælgætisgerðina Lindu þarf vart að kynna fyrir lesendum, eða Lindubuffin, Ískexið og Lindukonfektið sem landsmenn hafa maulað sl. áratugi við mörg tækifæri. Enn eru mörg vörumerki Lindu framleidd en verksmiðjan sameinaðist Góu í Hafnarfirði árið 1993. Linda er nefnd í hinu sígilda „Vor Akureyri“, texta Kristjáns frá Djúpalæk við erlent lag, sem Hljómsveit Ingimars Eydal gerði ódauðlegt árið 1968.

 

Við höfum Lindu/ Við höfum KEA

Og heilsudrykkinn Thule, Amaro og SÍS.

 

Síðastliðna áratugi hefur verslun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins eða í daglegu tali manna „Ríkið“ verið starfrækt á neðri hæð hússins en íbúð er á efri hæð. Árið 1986 var byggt við húsið til suðurs, anddyri verslunar og svalir ofan á og um 2014 var byggt við verslunarhúsnæðið til austurs. Húsið sem slíkt er ekki talið hafa varðveislugildi en tekur þátt í götumynd Hólabrautar sem talin er varðveisluverð. Hólabraut 16 er í mjög góðri hirðu, enda hefur tiltölulega nýlega verið byggt við húsið. Hlaut húsið um leið hinar ýmsu endurbætur, auk þess sem því hefur líkast til alla tíð verið vel við haldið. Myndin af Hólabraut 16 er tekin þann 19. janúar 2020 en myndin af Linduhúsinu við Hvannavelli 14, er tekin fyrr í dag, 28. maí 2020.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr. 1172, 17. júlí 1953.  

Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.

Guðjón Ingi Eiríksson. 2018. Ekki misskilja mig vitlaust; misskilningur og ambögur. Reykjavík: Hólar.

Jón Hjaltason. 2009. Kvistagöt og tréhestar. Akureyri: Völuspá.

Ómar Ívarsson. 2011. Akureyrarbær Húsakönnun- Laxagata- Hólabraut. X2 Hönnun-Skipulag: Unnið fyrir Akureyrarbæ. Aðgengilegt á vef á slóð http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/laxagata-holabraut-husakonnun-mars-2011.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 16
  • Sl. sólarhring: 50
  • Sl. viku: 255
  • Frá upphafi: 420938

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 202
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband