Hús dagsins: Skipagata 4

Af Hólabrautinni færum við okkur spölkorn til suðurs og tökum upp þráðinn í Skipagötu, við steinsteypt stórhýsi á níræðisaldri sem um áratugaskeið hýsti valinkunna kjörbúð...

 

Árið 1933 fékk Jónas Stefánsson leyfi til P1190974að reisa hús næst sunnan við Guðmund Tómasson (Skipagata 2) 10x9,5m, þrjár hæðir með háu risi. Hugðist hann aðeins reisa tvær hæðir í þessum fyrsta áfanga en það gilti um flest stórhýsin sem risu við Skipagötu og Ráðhústorg áratuginn 1930-40, að þau voru reist í áföngum, oftar en ekki aðeins fyrsta hæð eða tvær hæðir af fjórum. Hönnuður hússins er ókunnur en freistandi að giska á Halldór Halldórsson eða Tryggva Jónatansson.  

Skipagata 2 er fjögurra hæða steinsteypuhús með einhalla, aflíðandi þaki. Efsta hæð er inndregin að framan, og eru þar svalir endilangri hliðinni. Á bakhlið eru svalir fyrir miðju á 2.- 4. hæð. Á þaki er þakpappi og veggir múrsléttaðir en skiptir þverpóstar í gluggum. Á jarðhæð eru „götusíðir“ verslunargluggar. Húsið er inni í miðri sambyggðri húsaröð, á milli húsa nr. 2 og 6 við Skipagötu og er syðst í fjögurra hæða hluta þessarar húsaraðar, en Skipagata 6 er á tveimur hæðum. Fljótt á litið er e.t.v. ekki greinilegt hvar Skipagata 2 endar og Skipagata 4 byrjar en á meðfylgjandi mynd er það líklega greinilegast á þakbrúninni, sem er eilítið hærri á nr. 2 (t.h. á myndinni).  

            Jónas Stefánsson opnaði innrömmunarverkstæði í húsinu árið 1934, þegar það var nýbyggt og starfrækti það í nokkur ár og auk þess var þarna rakarastofa Sigtryggs Júlíussonar. Jónas og kona hans Bjarnveig Magnúsdóttir bjuggu hér um áratugaskeið og Jónas allt til dánardægurs, 1969. Lengst af, eða frá 1945 og fram yfir 2010 var starfrækt í Skipagötu verslunin Hafnarbúðin sem síðar hét Hólabúðin. (Strangt til tekið var ekki um sömu búð að ræða, þar eð sú fyrrnefnda varð gjaldþrota árið 1983 og Hólabúðin stofnuð í sama húsnæði.  Í hugum flestra eru þessar tvær verslanir hins vegar sem eitt). En Hafnarbúðina opnaði Páll A. Pálsson í lok júní 1945. Hafnarbúðin/Hólabúðin var smá matvöruverslun eða kjörbúð eða bara einfaldlega „kaupmaðurinn á horninu“ og hafði mjög sterkan „karakter“ og sjarma. Síðustu árin var Hólabúðin að mestu sérsverslun með víngerðarvörur, en þó mátti grípa þar mjólkurlítra og sælgæti fram á síðasta dag. Margir eiga ljúfar og góðar minningar um Hafnarbúðina/Hólabúðina og kaupmanninn geðþekka Yngva Loftsson, sem þarna stóð vaktina í meira en hálfa öld. Hólabúðin var starfrækt allt til haustsins 2013. Nú er á jarðhæðinni starfrækt kaffihúsið Berlín en efri hæðirnar eru gistirými.

Skipagata 4 er reisulegt og glæst hús, líkt og húsasamstæðan öll við Skipagötu og Ráðhústorg, sem eru dæmi um stílhrein og glæst, steinsteypt stórhýsi. Í Húsakönnun frá 2014 er húsið ekki tekið sérstaklega tekið fyrir; en birtist þar á mynd með Skipagötu 2. Þar er Skipagata 2 metið með ótvírætt varðveislugildi og trúlega óhætt að draga þá ályktun, að það hljóti líka að eiga við Skipagötu 4. Eru húsin enda næsta áþekk og sambyggð. Húsið er nokkurn veginn óbreytt frá upphaflegri gerð og er í góðri hirðu, ekki langt síðan það var málað. Myndin er tekin þann 19. janúar 2020.

Heimildir:

Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1930-1935. Fundur nr. 705, 17. ágúst 1933.  Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 20
  • Sl. sólarhring: 46
  • Sl. viku: 259
  • Frá upphafi: 420942

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 206
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband