Hús dagsins: Skipagata 7

Skipagata 7 var um áratugaskeið útvörður eystri Ráðhústorgs- Skipagötu húsasamstæðunnar í suðri, eða allt þar til Skipagata 9 reis af grunni 1998.P1190972 En Skipagötu 7 reisti Kaupfélag Eyfirðinga, KEA, árið 1942. Það var 13. febrúar það ár, að Jakob Frímannsson forstjóri félagsins fékk byggingarleyfi næst norðan við Benedikt Ólafsson [Skipagötu 5], hús byggt úr járnbentri steinsteypu  10,65x11m. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson. Skipagata 7 er þrílyft steinsteypuhús með einhalla aflíðandi þaki. Á jarðhæð eru verslunargluggar en þverpóstar í gluggum efri hæða. Veggir eru múrsléttaðir en pappi á þaki.

Þann 8. maí 1942 ákvað Byggingarnefnd Akureyrar að breyta númerum við Skipagötu. Skyldi þau öll lækka um 2, þ.e. að Skipagata 3 yrði 1 og nr. 5 yrði 3. Skipagata 7, sem þá hefur væntanlega verið í byggingu, yrði þá nr. 5. Benedikt Ólafsson málarameistari í Skipagötu 5 var alls ekki sáttur við þessar breytingu og hélt gamla númerinu ætíð til streitu. Hins vegar virðist þetta hús almennt vera talið nr. 5, sbr. auglýsingu frá 3. maí 1945 þar sem segir að  rakarastofa Jóns Eðvarðssonar sé „[...] flutt í ný, vistleg húsakynni í Skipagötu 5, hið nýja hús KEA“.  

Ef Skipagötu 7 er flett upp á timarit.is finnast aðeins tvær auglýsingar um heimilisfangið á Akureyri (Skipagata 7 er einnig á Ísafirði)  frá 5. áratugnum, Þær eru frá júlí 1943 þar sem Ásgrímur Stefánsson auglýsir eftir starfsstúlkum á prjónastofu sína. En svo virðast númerin smám saman festast í sessi eftir því sem árin og áratugirnir líða.  Það er hins vegar ekki gott að átta sig á því, þegar heimildir á fyrrnefndum gagnagrunni, timarit.is, eru skoðaðar um hvora Skipagötu 5 er að ræða. Sjálfsagt muna margir lesendur eftir  valinkunna veiðarfæraverslun Gránu í Skipagötu 7 en hún var stofnuð í ársbyrjun 1956. Grána er raunar ýmist auglýst í Skipagötu 5 eða Skipagötu 7 fyrsta áratuginn eða svo, en eftir 1965 er hún aðeins sögð í nr. 7. Það segir hins vegar haft orðrétt úr Ársskýrslu Kaupfélags Eyfirðinga, í Degi í júní 1957, að kaupfélagið hafi í félagið við Slippstöðina opnað nýja verslun með útgerðarvörur í húsnæði félagsins við Skipagötu 7. Þannig að a.m.k. innan raða Kaupfélagsins hefur númer hússins verið kýrskýrt.     Húsið hefur alla tíð verið í senn verslunar- og þjónustuhúsnæði og íbúðir á efri hæðum. Um árabil var í húsinu téð verslun Grána og verslunarstjóri lengi vel Herluf Ryel. Einhvern tíma heyrði greinarhöfundur sögu af einum (jafnvel fleirum) sem fór inn í Gránu og spurði hvort til væru herlúffur. Fylgdi sögunni, að Herluf mun ekki hafa haft húmor fyrir því.

 Líkt og flest húsin við Skipagötu hefur Skipagata 7 hýst margs konar verslun og þjónustu gegn um tíðina og á efri hæðum skrifstofurými  Árið 1978 keyptu Verkalýðsfélagið Eining og Lífeyrissjóðurinn Sameining húsið og höfðu þar aðsetur um nokkurra skeið. Nú er á jarðhæð hússins Gleraugnaþjónustan, lögmannsstofur á annarri hæð og íbúð á þriðju hæð.

Húsið er látlaust og einfalt stórhýsi og setur svip sinn á umhverfið, sem hluti hinnar löngu húsasamstæðu sem teygir sig frá Ráðhústorgi og meðfram Skipagötu austanmegin. Raunar nær þessi röð á Strandgötu, þar sem hið valinkunna Nýja Bíó er áfast þessari sömu röð. Húsið er metið með ótvírætt varðveislugildi sem hluti húsaraðar, sem er „[...]einn mikilvægasti þátturinn í svipmóti miðbæjarins“ (Landslag arkitektastofa 2014: 54) Þessi húsaröð er hluti fyrirhugaðar randbyggðar samkvæmt fyrsta Aðalskipulagi bæjarins árið 1927, og ein af fáum minnisvörðum þetta fyrsta skipulag. Húsið er í stórum dráttum óbreytt frá upphafi að ytra byrði og er í mjög góðri hirðu. Myndin er tekin þann 19. janúar 2020.

 

Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1941-1948. Fundur nr. 897, 13. feb. 1942. Fundur nr. 909, 8. maí 1942. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnór, ef númerin hafa átt að LÆKKA, hefur væntanlega nr.3 átt að verða 1, 5>3 og 7>5. 

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 16.6.2020 kl. 14:30

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð.

Jú, rétt til getið :) búinn að leiðrétta þetta. Þakka ábendinguna.

Kveðja, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 16.6.2020 kl. 21:15

3 identicon

Sæll aftur. Á loftkortinu og þegar gatan er skoðuð 360°, sjást bara nr.1, 5, 7 og 9, en ekki nr.3.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 16.6.2020 kl. 22:31

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl aftur.

Eftir því sem mér skilst, vildi upprunalegi eigandi Skipagötu 5 ekki gangast inn á númerabreytingu þá sem nefnd er hér að ofan og hélt sínu striki, hvað sem tautaði og raulaði. En engu að síður varð Skipagata 1 (sem hefði þá skv. upprunalegu skipulagi orðið 3) alla tíð nr. 1. Með tímanum virðist hafa komist hefð á þá númeraröð, að 3 einfaldlega væri ekki til staðar heldur kæmi 1-5-7 o.s.frv. (Á tímabili virðist jafnvel um tvö hús nr. 5 að ræða en fljótlega varð "syðra 5" að 7). Það er svosem alls ekkert einsdæmi í eldri götum Akureyrar, að eitt og eitt númer vanti inn í húsaröð ;)  

Kveðja, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 18.6.2020 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 23
  • Sl. sólarhring: 41
  • Sl. viku: 262
  • Frá upphafi: 420945

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 209
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband