Hús dagsins: Klettaborg 3

Klettaborg 3 reisti Konráð Vilhjálmsson árið 1946.P9200985 Landið átti hann á erfðafestu en lóðina fékk hann haustið 1941, fékk fyrst næstu lóð neðan við, nr. 2, en fékk þessa eftir makaskipti við Einar Guðmundsson.  Í september 1945 fékk Konráð byggingarleyfi fyrir steinsteyptu húsi, með útveggjum hæðar úr r-steini, að stærð 9,5x9m „á erfðafestulandi sínu við þjóðveginn gegnt Gefjuni.“ Teikningarnar að húsinu gerði Guðmundur Magnússon. Upprunalegar teikningar hússins eru ekki fyrirliggjandi á korta-og landupplýsingavef Akureyrarbæjar, en þar má finna járnateikningar Halldórs Halldórssonar frá mars 1946, sem sýnir nokkurn veginn herbergjaskipan hússins.

Klettaborg 3 er tvílyft steinhús  með lágu valmaþaki, af algengri gerð íbúðarhúsa frá fimmta áratugnum. Á norðausturhlið hússins er útskot og þar eru steyptar tröppur að austanverðu og svölum að sunnanverðu. Krosspóstar eru í gluggum, sem flestir eru ferningslaga, bæði gluggar og póstar. Bárujárn er á þaki en veggir eru múrsléttaðir.

Konráð Vilhjálmsson, sem byggði Klettaborg 3 og átti landið umhverfið Klettaborg á erfðafestu var kennari, fræðimaður og rithöfundur. Hann var jafnan kenndur við bæinn Hafralæk í Aðaldal, þar sem hann var bóndi um árabil, en fæddur var hann á Sílalæk í sömu sveit árið 1885. Hann kenndi m.a. við Gagnfræðaskólann og var þekktur fyrir hin ýmsu fræðistörf, m.a. mikla skrá yfir Þingeyinga á 19. öld, en einnig sendi hann frá sér ljóð og kveðskap. Líklega hefur Konráð ekki búið í Klettaborg 3 í langan tíma, ef nokkuð, en mögulega leigt húsið út til annarra, eða selt nýbyggt. Um það verður ekki fullyrt hér. Lengst af bjó Konráð og kona hans, Þórhalla Jónsdóttir frá Brekknakoti í Reykjahverfi, í húsinu Norðurpól, sem stóð neðarlega á Oddeyrartanga, við Gránufélagsgötu. Á meðal fyrstu íbúa hússins voru þau Þuríður María Jónsdóttir og Guðmundur Þorsteinsson, en elsta heimild, sem timarit.is finnur um húsið er tilkynning um brúðkaup þeirra í mars 1949. Alls finnur sá ágæti gagnagrunnur 53 heimildir um Klettaborg 3 í prentmiðlum. Margir hafa átt og búið í Klettaborg í þá þrjá aldarfjórðunga, sem húsið hefur staðið og öllum auðnast að halda því við í hvívetna. Árið 1999 var húsinu breytt örlítið, eftir teikningum Tómasar Búa Böðvarsonar, en að ytra byrði mun húsið að mestu óbreytt frá upphaflegri gerð.

Klettaborg 3 er reisulegt og snyrtilegt hús í mjög góðri hirðu; virðist nýlega hafa hlotið ýmsar endurbætur s.s. glugga. Þá er lóðin gróskumikil, vel hirt og öll hin snyrtilegasta. Umhverfi þessara austustu og elstu húsa við Klettaborg er einmitt sérstaklega skemmtilegt, þau standa raunar í jaðri lítils skógarlundar í brekkunni neðan Hamarkots- og Skipaklappar en þar hefur töluvert vaxið upp á síðustu árum og áratugum. Á lóð Klettaborgar er einnig margt gróskumikilla trjáa. Ekki er höfundi kunnugt um, hvort Klettaborg 3 hafi varðveislugildi. Ætti síðuhafi hins vegar að úrskurða um, hvort þessi litla þyrping steinhúsa frá miðri 20. öld við Klettaborg, ætti að hafa eitthvert varðveislugildi, yrði svarið að sjálfsögðu já (kemur lesendur e.t.v. ekki á óvart). Þá er grænt og geðþekkt umhverfi Klettaborgarinnar einstaklega aðlaðandi. Í húsinu eru tvær íbúðir, ein á hvorri hæð. Myndin er tekin þann 20. september 2020.

 

Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 883, 5. sept. 1941. Fundur nr. 843, 3. okt. 1941. Fundur nr. 1031, 14. sept. 1945. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Klettaborg 3 keypti Þórir Björnsson  vélstjóri á Gefjun og Hulda Stefánsdóttir húsið fokhelt 1947 af Konráði og bjuggu þar til 1977.

María  og Guðmundur leigðu  hjá þeim í nokkur ár þá var búið að innrétta eldhús  á  neðri hæðinni 

Kv. Stefán Þórisson 

Stefán Þórisson (IP-tala skráð) 3.2.2021 kl. 17:44

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæll Stefán

Kærar þakkir fyrir þessar upplýsingar, gaman að vita.

Kveðja, ABH.

Arnór Bliki Hallmundsson, 4.2.2021 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 34
  • Sl. viku: 279
  • Frá upphafi: 420217

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 203
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband