Hús dagsins: Kotá (Kotárgerði 26)

Þar sem er þéttbýli hefur, nokkurn veginn undantekningarlaust, áður verið dreifbýli. Akureyrarkaupstaður er t.d. byggður upp á nokkrum jörðum. Drjúgur hluti Brekkunnar er t.a.m. byggður á landi Stóra- Eyrarlands og Nausta. Það var á áratugunum um og fyrir aldamótin 1900, að Akureyrarbær tryggði sér eignarhald á þessum jörðum og lögsagnarumdæmi. Innan þess voru mörg býli á 20. öld gátu lendurnar, sem nú eru komnar undir Brekkuna og Naustahverfi, framfleytt ýmsum búpeningi. Flest umrædd býli innan bæjarlandsins, sunnan Glerár, voru byggð úr landi Stóra- Eyrarlands og Nausta, en utarlega á Brekkunni má finna eina smærri jörð sem alla tíð var „sjálfstæð“ þ.e. var ekki hjáleiga eða byggð úr öðrum jörðum. Það er Kotá.

 

            Íbúðarhúsið á Kotá stendur nr. 26 við samnefnda götu, Kotárgerði, P6120954og það reistu þau Sigfús Jónsson og Brynhildur Þorláksdóttir árið 1949. Húsið er einlyft steinsteypuhús á lágum kjallara og með lágu valmaþaki. Veggir eru múrsléttaðir og bárujárn á þaki og einfaldir lóðréttir póstar í gluggum. Bílskúr, steinsteyptur með flötu þaki er áfastur við húsið norðanmegin. Ekki liggur fyrir hver teiknaði húsið.

            Hversu langt má rekja sögu Kotár er óljóst en víst, að um forna jörð er að ræða. Í Manntali 1703 búa þar Jón Þórarinsson og Guðrún Halldórsdóttir. Uppi hafa verið (umdeildar) kenningar um, að Kotá sé mögulega Syðri- Glerá, sem Helgi magri gaf vini sínum Ásmundi Öndóttssyni, eða a.m.k. reist á tóftum þess býlis. (Guðmundur, Jóhannes og Kristján 1990: 663). En réttum 1000 árum eftir að Helgi magri nam Eyjafjörð, árið 1890 bjuggu á Kotá þau Stefán Jónasson og Guðrún Jónasdóttir ásamt  fjórum börnum þeim Stefaníu, Jónasi, Aðalbirni og Svanfríði. Eigandi jarðarinnar þá var Daníel Halldórsson prófastur.  Það var árið 1893 að Akureyrarbær keypti Kotá, ásamt Stóra- Eyrarlandi. Síðarnefndu jörðina hugði bærinn beinlínis undir byggingarland en Kotá ætlaði bærinn að leigja til ábúðar í heilu lagi. (Það hefur e.t.v. þótt fjarstæðukennt á þeim tíma, að bærinn byggðist hingað upp eftir- enda varð sú ekki raunin fyrr en komið vel fram yfir miðja 20. öld). Fjórum áður síðar seldi bærinn húsakostinn og túnin á erfðafestu Þorláki Einarssyni frá Skjaldarvík. Stundaði hann hér búskap um áratugaskeið, en þegar líða tók á 20. öldina saxaðist smám saman á túnin enda voru mörg smærri býli hér í nágrenninu. Laugardaginn 20. september 1947 varð sá voveiflegi atburður að eldur kom upp í íbúðarhúsinu á Kotá og þar fórst Þorlákur Einarsson er hann reyndi að bjarga búslóðinni. Hann var þá orðinn 81 árs.

            Tveimur árum eftir hinn hræðilega harmleik á Kotá byggði dóttir Þorláks, Brynhildur og maður hennar Sigfús Jónsson frá Sauðhauga í Vallahreppi í Múlasýslu nýtt íbúðarhús, sem enn stendur. Ekki stóð búskapur þeirra lengi, því Sigfús lést fyrir aldur fram vorið 1950 og seldi Brynhildur býlið,  Birni Eiríkssyni og syni hans Kristni Björnssyni. Þeir feðgar voru stórhuga í búskap, byggðu nýtt fjós og svínahús og segir í Byggðum Eyjafjarðar 1990 að bústofn þeirra hafi talið 25 nautgripi, 5 gyltur með grísum, 40 ær, auk varphænsna. Hins vegar settu landfræðilegar aðstæður búskap þeirra feðga nokkrar skorður; sem áður segir var Kotárlandið að stórum hluta komið undir smábýli (m.a. Skarð) og erfðafestulönd. Auk þess var þéttbýlið nokkuð farið að þrengja að. Um 1950 markaði Byggðavegur nokkurn veginn efri mörk þéttbýlis Akureyrar, en þangað eru aðeins um 300 metrar að Kotá. Mýrahverfið tók að byggjast á 6. Áratugnum og Gerðahverfið á þeim sjöunda. Kotárgerði tók að byggjast um 1965, en 1966 telst búskap ljúka á Kotá. Hafa síðan margir átt húsið og búið þar.

           Húsinu hefur væntanlega alla tíð verið vel við haldið og lítur vel út. Lóð og nánasta umhverfi hafa greinilega hlotið endurbætur á síðustu árum, steyptur veggur og vegleg verönd og pallur úr timbri í forgrunni við götu. Á framhlið hússins er skilti með nafni þess, Kotá. Höfundur hefur nokkrum sinnum lýst þeirri skoðun, að fyrrum „sveitabæjarhús“ í þéttbýli eigi að njóta einhvers varðveislugildis eða friðunar. Það á að sjálfsögðu við um í tilfelli Kotár. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin þann 12. júní 2020.

Heimildir: Guðmundur Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. II bindi. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 48
  • Sl. sólarhring: 80
  • Sl. viku: 328
  • Frá upphafi: 420301

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 223
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband