Hús dagsins: Kaupvangsstræti 4

Hin þéttingsbratta en fjölfarna gata úr Miðbænum upp á Brekku um Grófargil, í daglegu tali kallað Gilið (eða Listagilið), nefnist Kaupvangsstræti. Neðarlega við götuna, skammt neðan við hið valinkunna Kaupfélagshorn liggur Skipagatan til norðurs frá Kaupangsstrætinu og áleiðis að Ráðhústorgi. Á mótum gatnanna stendur Kaupvangsstræti 4. Það hús er reist í áföngum á síðari hluta 4. áratugarins, og hófst bygging þess árið 1934.P7240114

     Haustið 1934 fékk Tómas Björnsson verslunarmaður að byggja hús á  lóð sinni við Kaupangsstræti og Skipagötu, samkvæmt uppdrætti og byggingalýsingu. Húsið átti að vera steinsteypt, tveggja hæða og kjallaralaust 14 og 13,90m meðfram götu, 8m skáa á horni, álmurnar 10 m breiðar. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson. Fullbyggt telst húsið 1939, það er a.m.k. skráð byggingarár, en elstu heimildir um Kaupvangsstræti 4 sem timarit.is finnur eru frá 1937, þegar kosningaskristofa Bændaflokksins og afgreiðsla Bændablaðsins var þarna til húsa.

     Kaupvangsstræti 4 er tvílyft steinsteypuhús með einhalla aflíðandi þaki, undir þakkanti á framhlið. Þakdúkur er á þaki og gróf múrhúð á veggjum, einfaldir þverpóstar í gluggum efri hæðar en síðir „verslunargluggar“ á jarðhæð. Gluggar efri hæðar eru innrammaðir með steyptum böndum að ofan og neðan. Á bakhlið er einlyft álma, viðbygging frá því um 1966. Húsið er áfast Skipagötu 18 að norðan og er innangengt á milli húsanna.

      Tómas Björnsson, sem byggði húsið, var Þingeyingur, fæddur árið 1895 að Ljósavatni. Hann var umsvifamikill verslunarmaður með bygginga- og lagnavörur en hann stofnaði eigin byggingavöruverslun árið 1923 og rak hana allt til ársins 1958. Í Kaupvangsstræti 4 rak hann einnig fataverslun á fimmta áratugnum.

       Kaupvangsstræti 4 hefur alla tíð verið verslunar- og skrifstofuhúsnæði og hýst hina ýmsu starfsemi. Þegar heimilisfanginu er flett upp á timarit.is koma upp hartnær 2000 niðurstöður, þar af 38 ef götuheitið er skrifað án „v“-s.  En gatan heitir nokkuð örugglega KaupVangsstræti og er kennd við kaupvang (sbr. leikvang, fólkvang) eða svæði þar sem verslað er. (Kaupvangur gæti verið ágætt orð yfir verslunarmiðstöð...) Gatan er m.ö.o. ekki kennd við bæinn og kirkjustaðinn Kaupang í Eyjafirði, sem skrifaður er án „v“-s. Það heiti skildist höfundi einhvern tíma, að væri upprunið úr norsku sbr. Kaupanger. Það er svosem ekki skrýtið að þetta valdi misskilningi, enda margar götur bæjarins kenndar við Eyfirsk höfuðból.

Það yrði of langt mál að telja upp alla þá starfsemi sem Kaupvangsstræti 4 hefur hýst. Sem áður segir var húsið aðsetur Bændaflokksins og þar var skrifstofa Bændablaðsins. Breska setuliðið starfrækti skrifstofu skaðabóta- og leigumála í húsinu og þá var Sjúkrasamlag Akureyrar með afgreiðslu hér. Síðla árs 1949 opnaði Flugfélag Íslands afgreiðslu sína í Kaupvangstræti og var hún starfrækt hér fram á sjötta áratuginn. Síðar voru þarna m.a. kjötmarkaður, verslunin Tölvutæki/Bókval og leikfangaverslunin Dótakassinn á jarðhæð um aldamótin 2000. Í vesturhluta hússins hefur JB úrsmíðaverkstæði Jóns Bjarnasonar verið starfrækt um áratugaskeið. Á efri hæð hafa löngum verið skrifstofur og þjónustustarfsemi, og þá hafa þar einnig verið íbúðir. Þá hafði Sjálfstæðisflokkurinn þarna aðsetur um árabil og afgreiðsla dagblaðsins Íslendings.  Svo fátt eitt sé nefnt af því, sem haft hefur aðsetur á Kaupvangsstræti 4. Nú er í húsinu sportvöruverslunin Hornið, áðurnefndir úrsmiðir, JB úr og skart og skrifstofurými á efri hæðum.

        Kaupvangsstræti 4 er reisulegt og glæst og í mjög góðri hirðu og hefur væntanlega alla tíð hlotið hið besta viðhald. Húsið er í samræmi við götumyndir Miðbæjarins t.d. við Ráðhústorg og norðar við Skipagötu, en þessar götur eru að mestu byggðar eftir fyrir fyrsta Aðalskipulagi Akureyrar, sem samþykkt var árið 1927. Húsið er syðsti hluti þriggja húsa samstæðu, en áfast að norðan er Skipagata 18 (Bifröst), sem byggð er á svipuðum tíma, 1935 og nyrst er fjögurra hæða stórhýsi Pedrómynda, Skipagata 16.  Það hús er reist meira en hálfri öld síðar, eða 1992. Í Húsakönnun, sem unnin var um Miðbæjarsvæðið árið 2014 er húsið metið með ótvírætt varðveislugildi, sem hluti húsaraðar sem er „[...] í heild sinni er einn mikilvægasti þátturinn í svipmóti miðbæjarins[...]“ (Landslag arktitektastofa 2014: 48). Myndin er tekin þann 24. júlí 2015. 

Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 729, 29. sept. 1934. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. 

Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 296
  • Frá upphafi: 420269

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 199
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband